Dagblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. AGÚST 1981.
DB á ne ytendamarkaði
Uppskríft frá lesanda:
Lif ur með
pakkasósu
Eftirfarandi lifraruppskrift
fengum við senda frá S.E. sem búsett
er á Austfjörðum og kunnum við
henni þakkir fyrir.
Lifur er hreinsuð, himnudregin og
skorin í fremur þunnar sneiðar.
Krydduð með pipar, salti, papriku og
gjarnan hvítlauksdufti. Einnig getur
verið gott að marinera sneiðarnar í
kryddlegi ef tími er til.
Þetta er síðan brúnað á pönnu og
soðið í 5—10 mín. Á meðan er
spaghetti-pakkasósa frá Tóró hrærð
út í köldu vatni og hellt yfir lifrina.
Rétturinn er látinn malla þar til sósan
hefur þykknað og siðan borið fram
með hrísgrjónum. Gott er að bæta
lauk, papríkusneiðum og tómötum út
í, en það hækkar efniskostnaðinn.
P.S. Mér þykir sjálfri bezt að
krydda vel. - S.E.
Heimilisbókin
þægileg í
notkun og
sniðugt að
hafa
uppskriftir
,,Þá er það seðillinn frá júlí, sá
fyrsti úr bókhaldsbókinni,” segir
m.a. í bréfi frá húsmóður, M.B., sem
búsett er í þorpi á Suðurlandi.
„Bókin er þægileg í notkun og er
mjög sniðugt að hafa uppskriftir og
fleira í henni. En mér finnst dálítið
bjánalegt að vikumar skuli byrja á
miðvikudögum. Það hefði mátt vera
bara með fyrstu vikuna.
Liðirnir hjá mér eru nokkuð sæmi-
legir að þessu sinni (542 kr. að
meðaltali á mann en í fjölskyldunni
em þrír. Liðurinn „annað” er upp á
nærri3000kr.).
Liðurinn „annað” er sá lægsti hjá
mér síðan um áramót og maturinn er
ekki nema 540 kr. á mann. í liðnum
„annað” eru m.a. tannviðgerðir sem
hleypir dálknum upp.
Svo þakka ég bara fyrir.
-M.B.
Óalgengari fisktegundir æ
oftar á borðum almennings
Á undanförnum árum hefur ýsan
og þorskurinn verið á hálfgerðu
undanhaldi fyrir ýmsum
óvenjulegum fisktegundum. Á fisk-
markaðinum sem haldinn var í
Reykjavík í fyrri viku voru kynntar
ýmsar fisktegundir sem ekki eru
algengar á borðum landsmanna.
Gefið var að smakka á ýmsum
tegundum og útbýtt uppskriftum um
matreiðslu á ufsa, karfa og löngu.
Þessar uppskriftir hafa nú verið
birtar í öllum blöðunum en við
bætum hér nokkrum við.
Karfinn
Sjöða má karfann, flaka og steikja
en hann þykir beztur þegar hann er
bakaður. Hér er ítölskættuð upp-
skrift að karfarétti: — Ætlað fyrir
sex.
12 karfaflök
kryddað hveiti
2 egg, lauslega þeytt
brauðrasp
120 gr smjör
3 msk. ólifuolía
12 blöð af sage, gróft söxuð.
Kryddlögur
6—8 msk. ólifuolfa
safi úr 1 sftrónu
1 saxaður laukur, salt og pipar.
Búið til kryddlöginn og látið fisk-
inn liggja þar í um það bil klukku-
stund, snúið flökunum af og til.
Látið leka af þeim og þurrkið þau
lauslega. Dýfið flökunum í hveiti-
blönduna, egg og brauðraspið.
Steikið í smjörinu og olíunni þar til
flökin eru fallega brún. Geymið nú
flökin á heitu fati og látið sage blöðin
út á pönnuna og afganginn af
smjörinu, látið sjóða kröftuglega
smástund og hrærið vel í á meðan.
Hellið yfir fiskinn og berið fram
strax.
Ufsi
Ufsa er hægt að matreiða líkt og
um sé að ræða þorsk eða ýsu. Einnig
er hægt að glóðarsteikja ufsann.
Hann er þá smurður vel með bræddu
smjöri og borinn fram með sinneps-
smjöri eða þeyttum rjóma sem bragð-
bættur hefur verið með frönsku eða
þýzku sinnepi.
Ufsi hentar einnig vel til þess að
gratinerast í ofni með ostí.
Við látum þetta duga í bili en
birtum fleiri uppskriftír síðar. Næsta
mál á dagskrá hjá okkur er að mat-
reiða sólkola „að hætti malarakon-
unnar”, það er að velta honum upp
úr hveiti og steikja í smjöri, sem
sorinn hefur verið fjarlægður úr.A.Bj
DB-mynd Gunnar örn.
Mikil aðsókn var i fiskinn sem var boöinn á útimarkaði Bæjarútgerðar Reykjavíkur i vikunni sem leið.
fra Ugerm husholdnings-udgifter
/ - / Mantíag TirsdBg Onsdag Torsdag Fredag Lardag Sendag lalt
Supermarketí
Mejerl
Bager
Kod, pólæg
Físk
Frugtog grent
Koloníalvarer
Kaffe, te
01, sodavand, vin
Rengerfngsmítíler
■
, .1
Nusholdníng íalt
Andre udgifter Andro udgiftsr iait
Aviser, blade, boger overfort Udgifter lalt
Tobak Rensning Samtet ugeregnskab
Forlystelser Vinduespoiering
Transport Intítægter
Gaver og blomster
Toiletartlkler
Frisor Rest fra forrige uge
Beklœtínlng Intítaagter íalt
Vask Udgifter íalt
ovetíores Andre utígifter lalt 'j. '■) Rest
Okeypis fískur lækkar
matarkostnaöim mkiö
— Fæðiskostnaður hálf s árs bams svipaður og annarra
heimilismanna
„Sendi ykkur hér með júliseðilinn
svona til þess að sýna lit á að vera
með,” segir m.a. í bréfi frá hús-
móður á Austurlandi. Hún er meö
fjögurra manna fjölskyldu og meðal-
talið hjá henni er 527 kr. á mann á
mánuði.
„Matarkostnaðurinn er ekki svo
mikill því fisk fáum við ókeypis.
Einnig var oft elduö kindalifur sem
við höfum fengið að gjöf.
Stærstu diðirnir í „annað” eru
málning á húsið sem við erum að
kaupa, rúml. 2500 kr., stimpilgjald
af láni, rúml. 1500 kr., bíla-
kostnaður, rúml. 1000 kr., afborgun
af sjónv., tæpl. 1000 kr., og rafmagn
og sími, tæpl. 1000 kr.
Svona er formið úr KVINDENs
Hvem, Hvad, Hvor, afskaplega
skemmtilegt og vel hannað. t þeirri
bók, sem er ákaflega vönduð að allri
gerð, voru elnnlg fjölmargar gagn-
legar upplýslngar.
Upphæðirnar eru ótrúlega fljótar
aðsafnast saman.
Viðvíkjandi heimilisbókinni er ég
ekki ánægð með formið á henni. Ég
hefði viljað hafa meiri sundurliðun á
matvælum og öðru. Sendi aö gamni
mínu með form sem mér Iíkaði sér-
lega vel við en það er úr KVINDENS
Hvem Hvad Hvorfrál977.
Ffflðiskostnaður ungbarns
Þessi bréfritari okkar tók saman
hver fæðiskostnaður sex mánaða
drengs reyndist í júlimánuði. Það var
375 kr., þ.e.a.s. það sem keypt var
sérstaklega fyrir drenginn. Hann er
afar duglegur að borða mat sem til-
reiddur hefur verið með töfrasprota.
Kveðjur, s.E.
Svar:
Við þökkum þetta bréf og ábend- .
ingar varðandi heimilisdagbókina.
Það var einmitt þetta sem við vorum
að biðja um, að fólk léti okkur vita
hvemig því líkaði við formið.
Ég þekki einnig þetta form úr
dönsku bókinni og notaði það á
sínum tima og líkaði mjög vel. Ég er
eiginlega á sama máli að hentugra sé
að hafa dálkana sundurliðun á mat-
vælunum. Fyrir kemur að maður
ruglast í ríminu við að sundurgreina
allt sem á samlagningarseölinum er
þegar heim kemur og á að fara að
skrá niður útgjöldin.
Mjög athyglisverð var samantektin
á fæðinu fyrir ungbarnið. Sá
kostnaður ætti að lækka núna ef þar
hefur verið um að ræða ungbarnamat
í pökkum eða krukkum, sem hefur
nú stórlækkað í verði.
Þá þökkum við einnig fyrir lifrar-
uppskriftina sem birtist annars staðar
hér á siðunni. Lifur er afskaplega
hollur matur og ætti að vera á
borðum manna að minnsta kosti einu
sinni í viku. Hún er heldur alls ekki
dýr matur, jafnvel þótt hún sé keypt
fullu verði i búð. - A.Bj.