Dagblaðið - 26.08.1981, Page 9

Dagblaðið - 26.08.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981. 9 Þáttur Dagblaðsins í biskupskjöri: skoðanakönnun, opnuviðtöl, úttekt á hræringum innan þjóðkirkjunnar: „Enginn treysti sér til að spá um úrslit” — sagði DB 4. ágúst og þykir engum mikið sem sér nú úrslitin „örfá atkvæði kunna að ráða úrslitum um 1 hvort það verði séra Ólafur Skúlason eða séra Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup sem taki við biskupsembætti af herra Sigur- bimi Einarssyni. Almennt er talið að mjótt verði á munum, úrslit geti veriðáhvom veginnsemer. . . ” „Enginn einasti maður treysti sér til að fullyrða með rökum hvemig úrslitin yrðu. Allir voru sammála um að þau yrðu tvísýn. Jafnvel höfðu sumir orð á því að þriðji möguleikinn kæmi tilgreina: nefnilega jafntefli!” Framangreindar tilvitnanir eru úr Dagblaðinu 4. ágúst sl. Þar var i opnugrein reynt að skyggnast bak við tjöldin í þjóðkirkjunni og kanna hvemig staða þeirra væri í biskups- kjörinu, sr. Ólafs og sr. Péturs. Rætt var við fjölda presta um allt land og aflað upplýsinga gegn loforði um nafnleynd viðmælandaos. Greint var frá helztu hræringum í herbúðum stuðningsmanna hvors um sig, hvern- ig fylgi fluttist til á milli umferða í biskupskjöri, nefndir nokkrir stuðn- ingsmenn hvors um sig, reynt að spá í hvernig fylgið skiptist eftir landshlut- um, hvemig stuðningsmenn höguðu kosningastarfi með fundarhöldum og símhringingum o.s.frv. Úttekt Dagblaðsins vakti athygli og umtal, enda er þetta eina tilraun fjölmiðils til að reka nefið inn um gættina bakdyramegin og skoða meira en „framhlið” biskupskjörs. Helztu viðbrögð við greininni voru þau, að niðurstaða hennar var dregin í efa: Menn töldu úrslitin ekki jafn- tvísýn og boðað var. Nú, þegar úrslit- in liggja fyrir, er hægt að segja að niðurstaðan hafi verið anzi nálægt lagi! Úrslitin gátu verið á hvorn veg- inn semvar. Hér í Dagblaðinu voru líka birt í júlí opnuviðtöl við sr. Ólaf og sr. Pétur. Viðtalið við sr. Ólaf birtist 8. júlí en við Pétur þann 9. júli. Sá siðarnefndi segir þá orðrétt: „Þjóðin lítur upp til og ber virð- ingu fyrir herra Sigurbimi Einarssyni vegna verðleika hans. Það verður engum manni létt verk að taka við embætti af honum. Ef starfssystkini mín og leikmenn í kirkjunni hafa hug á að velja mig næsta biskup þá mun ég með Guðs h jálp gera mitt bezta. ’ ’ Enn má nefna skoðanakönnun Dagblaðsins sem birtist í vor. Úrslit hennar vom á þann veg að sr. Pétur naut mests fylgis þeirra sem spurðir voru um hvem þeir vildu fá í biskups- embættið næst á eftir herra Sigur- birni. Sr. Ólafur var í öðm sæti, sr. Amgrímur Jónsson í þriðja sæti. Dagblaðið hefur eins og framan- greint sýnir kynnt biskupskjörið og þátttakendur í því sem mest og bezt. Það er eðlilegur hlutur enda kirkjan og biskupsembættið ekki undanþegið athygli fjölmiðla og almennings. Þáttur annarra fjölmiðla, undan- tekningarlaust, er snautlegur. -ARH. Séra Ólafur Skúlason, dómprófastur I Reykjavik: „í tveimur tilvikum töpuðu minir stuðningsmenn hlutkesti. Það réð úrslitum.” DB-mynd: Sig. Þorri. Séra Ólafur Skúlason dómprófastur: Hafði sjálfur spáð litlum atkvæðamun „Auðvitað varð ég fyrir vonbrigð- um, að segja annað væri hræsni. Úrslitin eru þó ekki mjög fjarri því sem ég ætlaði, ég hafði oft sagt sjálf- ur að þau myndu ráðast á einu, tveimur eða þremur atkvæðum,” sagði sr. Ólafur Skúlason dómpróf- astur við Dagblaðið um hádegisbilið í gær. Þá lágu úrslit í. biskupskjöri fyrir og sr. ólafur var eðlilega ekki ánægður með þau. „Satt að segja hafði ég á tilfinning- unni síðasta hálfan mánuðinn að ég myndi tapa kosningunni. Ég er þakk- látur fyrir hið mikla fylgi sem ég hlaut í biskupskjörinu. Séra Pétri óska ég til hamingju og bið guð um að styrkja hann í starfi. Svo lítill munur var á okkur að segja má að hann hafi orðið biskup á hlutkesti.” — Hvað áttu við með því? „Við kosningar kjörmanna vegna biskupskjörs urðu kjörmenn efstir og jafnir að atkvæðum í Kjalarness- og Suður-Múlaprófastsdæmum. Varpað var hlutkesti og mínir stuðningsmenn töpuðu í bæði skiptin. Það réð úrslit- um. Svo minni ég á að í kjörinu hafði ég við fleiri en einn að tefla. ’ ’ -ARH. REÐU „OGILDU AT- KVÆÐIN” URSUT- UM í BISKUPSKJÖRI? eitt atkvæði skilaði sérof seint og var ekki talið með Þrir kjörseðlar í biskupskjöri komu ekki til talningar í gærmorgun. Fylgiskjöl vantaði með þeim og þeir töldust hvorki auðir eða ógildir. Hér er um að ræða atkvæði Jósafats J. Líndals sparisjóðsstjóra í Kópavogi (leikmaður), sr. Auðar Eir Vilhjálms- dóttur og sr. Sigurjóns Einarssonar á Kirkjubæjarklaustri. Einn atkvæða- seðill barst of seint og kom því ekki við sögu. Það var atkvæði sr. Sigfúsar Jóns Árnasonar á Hofi í Vopnafirði. Spurningar vakna um hvort úrslit biskupskjörs hafi ráðizt af atkvæð- unum þremur sem ekki voru talin með. Því er ekki hægt að svara svo fullvíst sé. Þó má segja með tals- verðri vissu að sr. Ólafur hefði fengið atkvæði sr. Sigurjóns og Jósafats Líndals. Þá hefði hann verið kominn með 73 atkvæði gegn 72 atkvæðum sr. Péturs. Ekki er vitað um afstöðu sr. Auðar Eir. Með þvi að sr. Auður Eir kysi sr. Pétur hefðu þeir sr. Ólafur orðið hnífjafnir að at- kvæðum. Þá væri það Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra sem stæði í dag frammi fyrir því að velja annaðhvort sr. Ólaf eða sr. Pétur í biskupsembættið! Ef sr. Auður hefði hins vegar kosið sr. Ólaf eða skilað auðu þá væri embættið sr. Ólafs. Sr. Sigfús Jón í Vopnafirði er tal- inn stuðningsmaður sr. Péturs. Ef hans atkvæði hefði borizt nógu snemma og verið talið fullgilt, ásamt margumræddum þremur atkvæðum, þá hefðu þeir.sömuleiðis verið jafnir með 73 atkvæði, sr. Ólafur og sr. Pétur. Og þá hefði það komið í hlut sr. Auðar Eir að vera í hreinni odda- aðstöðu. Hvað sem öllum vangaveltum líður eru úrslitin auðvitað skýr: sr. Pétur hafði vinninginn. Kærufrestur er tal- inn ein vika. Menn velta fyrir sér hvort úrslitin verði kærð með hliðsjón af framansögðu. Blaðamaður spurði sr. Ólaf að þvi í gær hvort hann hygðist kæra. Hann kvað nei við: „Ég hef ekki geð í mér til þess. Margir stuðningsmenn sr. Ólafs eru gramir yfir þessum málalokum og telja ósanngjarnt að úrslit skuli ráðast af „hreinum handvömmum manna” eins og einn þeirra orðaði það í samtali við Dagblaðið. -ARH. Kjörncfndin hefur talninguna i gærmorgun: fjögur atkvæði ekki talin með — seint. þrjú vegna „formgalla” og það fjórða barst of DB-mynd: Gunnar Örn. Biskupskjörið: Hægt að kæra úr- slitin til Friðjóns — en ekki er hægt að segja tíl um hverjir megi kæra! „Þátttakendum í biskupskjöri voru send kjörgögn útbúin þannig að þeir áttu að skrifa á kjörseðil og setja í lokað umslag. Síðan var umslagið og undirrituð yfirlýsing viðkomandi, um að hann tæki þátt i kjörinu, sett saman í annað umslag. Umslaginu lokað og það sent dómsmálaráðu- neytinu í ábyrgðarpósti eða afhent ráðuneytinu beint. Eitt atkvæði barst of seint en fylgiskjöl (undirritaðar yfirlýsingar) vantaði með þremur at- kvæðum. Þau komu því ekki til taln- ingar,” sagði Ólafur Walter Stefáns- Ólafur Walter Stefánsson, formaður kjörnefndar biskupskjörs: „Ef kærur berast tekur dómsmálaráð- herra afstöðu.” DB-mynd: Ragnar son, skrifstofustjóri í dómsmálaráðu- neytinu, við Dagblaðið. Hann gegndi formennsku kjörnefndar biskups- kjörs í fjarveru Baldurs Möllers ráðu- neytisstjóra. Kærufrestur vegna kjörsins er ein vika frá því talið var og kjörnefnd felldi úrskurð um úrslitin. Sam- kvæmt lögum má vísa úrskurði til dómsmálaráðherrans. — Hverjir mega kæra úrslit í biskupskjöri, Ólafur Walter? ,,Ég held að ekki sé hægt að svara ákveðið hver megi kæra. Ef kærur berast tekur dómsmálaráðherrann af- stöðu til hvort viðkomandi hafi kærurétt en menn sem kæra hljóta að þurfa að eiga aðild að biskupskjörinu aðeinhverjuleyti.” -ARH.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.