Dagblaðið - 26.08.1981, Side 12

Dagblaðið - 26.08.1981, Side 12
i Iþróttir DAGBLADIÐ.MIÐVKUDAGUR2d.ÁGÍJSIim DAGBLAÐIÐ. MIÐVDCUDAGUR 26. ÁGÚST1981. Iþróttir Iþróttir Iþróttir _________^ Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 13 D Guðmundur og Magnús dæma úti Tvö fslenzk dómaratríó munu dæma leiki I fyrstu umferð Evrópukeppnanna f knattspyrnu f næsta minuði. Eru það lelkir Valerengen og Legla Varsji f Osló 16. september og lelkur Liverpool og OPS Oulu f Liverpool 30. september. Fyrri leikinn dæmir Magnús V. Pétursson, en þeir Þorvarður Björnsson og Sævar Sigurðsson verða linuverðir. Leikinn í Liverpool dæmir Guðmundur Haraidsson og linuverðir verða Óli P. Olsen og Róbert Jónsson. Hilmar sigursæll Hilmar Karlsson, GR, sigraði f Chrysler open golfmótinu sem haldið var í Grafarholti um sfðustu helgi. Hann var með bezt skor bæði með og án for- gjafar og hlaut farandbikarinn veglega i verðlaun. í keppni án forgjafar sigraði Hilmar, fór holumar 18 á 96 höggum. Bjami Ragnarsson, GR, varð annar á 97 höggum og Annel Þorkelsson, GS, þriðji á sama höggafjölda en með lakara skor á síðustu þremur holunuin. í keppni með forgjöf sigraði Hilmar á 81 höggi nettó. Annar varð Bjami Ragnarsson á 83 höggum nettó og Valur Fannar, GR, varð þriðji á 84 höggum nettó. Annel Þorsteinsson lék einnig á 84 höggum nettó en hafði sem fyrr greinir slakt skor á síðustu þremur holunum. Hávaðarok var þá er keppnin fór fram og náðu einungis 39 keppendur af 66 að ljúka keppninni. Bjóða mótherjunum á blómaball! Knattspyrnudeild Hveragerðis hefur ákveðiö að bjóða öllum mótherjum sinum frá 3. deildar- keppni íslandsmótsins í knattspyrnunni i sumar, það er í A-riðlinum, á blómaball í Hveragerði á laugar- dag. í riðlinum léku auk Hveragerðis Ármann, Afturelding, Óðinn, Grindavfk, ÍK og Grótta. Hljómsveitin Loðmundur leikur og blómaballið hefst kl. 22.00. — Aðgöngumiðar afhentir á skrif- stofu KSÍI Reykjavík. Kraftlyftingamót íJakabóli í dag, 26. ágúst, verður haldið kraftlyftingamót i .Jakabóli” f Laugardal. Á móti þessu mun Jón Páll Sigmarsson, KR, reyna við nýtt Evrópumet í rétt- stöðulyftu i 125 kg flokki. Mótið hefst kl. 18. Jafnframt verður biaðamönnum kynnt æfingar- aðstaða iyftingamanna en undanfarið hafa þeir unn- ið að miklum endurbótum á öllu innanstokks og reynt að gera staðinn aðlaðandi. Tilgangur þessa cr að gefa almenningi kost á afnotum af tækjum og böðum til Ifkamsræktar gegn 100 kr. mánaðargjaldi sem sett verður i sjóð til byggingar á nýju „Jakabóli”, sem þegar hefur verið teiknað. Áherzla verður lögð á að leiðbeina hinum venjulega borgara að efla Ifkamsvöxt sinn, ná af sér aukakilóum og að staðan f nágrenni ,4akabóls” til hlaupa og skokka býður upp á ýmsa mögulelka. Húsið verður opið alla daga frá 12 til 13 og er komutfmi á æfingar frjáls. Sérstakir kvennatimar eru á þriðjudögum frá 20 til 23 og á laugardögum og sunnudögum frá 9 tii 14. Fannarsbikarinn áf ram í dag Fannarsbikarinn i golfi hófst um siðustu helgi en á laugardag var fyrsti dagur keppninnar. Annar dagur keppninnar átti sfðan að vera á sunnudag en var frestað vegna veðurs. Nú hefur verið ákveðið að halda keppni um Fannarsbikarinn áfram f dag á Grafarholtsvelii og verður keppt miili 16 og 18. Þá verður Video-keppni GR, sem vera átti um síðustu helgi, næstkomandi sunnudag og á laugar- dag verður Jóns Agnars mótið fyrir pollana. Unglingalandsleikur íFæreyjum íkvöld Unglingalandslið íslands leikur fyrri leik sinn við landslið Færeyja i kvöld og verður leikurinn i Þórs- ’ höfn i Færeyjum. Seinni leikurinn verður svo i Klakksvik á föstudag. Jóhannes Atlason unglingalandsliðsþjálfari valdi 16 manna hóp til fararinnar og skipuðu hann eftir- taldir leikmenn: Guðmundur Erlingsson, Þrótti, R, Stefán Arnarson, KR, Björo*Rafnsson, Snæfelli, Davíð Egilsson, KR, Einar Björnsson, Fram, Gísli Hjálmtýsson, Fylki, Gylfi Aðalsteinsson, KR, Hannes Jóhannsson, KR, Kristinn Jónsson, Fram, Kristján Jónsson Þrótti R., Mark Christiansen, Þrótti N., Olgeir Sigurðsson, Völsungi, Steinn Guðjónsson, Fram, Sverrir Pétursson, Þrótti R. Valdimar Stefánsson, Fram, og Þorsteinn Vil- hjálmsson, Fram. -SA. íslandsmeistarar 3. Bokks IA Úrslit Í3. flokki: DB-mynd GSv. Skagamenn sigruðu Val í hörkuleik 1-0 Úrsiitakeppni 3. aldursflokks i knatt- spyrnu fór fram á Akureyri um síðustu helgi og léku lA og Valur til úrslita. Skagamenn sigruðu 1—0. Átta liö tóku þátt f úrslitakeppninni f tveimur riðlum og léku Týr Ve., Valur, ÍK og Þór Ak. f A-riðli en i B-riöli léku Fylkir, ÍA, Þróttur R. og Höttur. Á laugardag voru úrslitaleikir í báð- um riðlunum. í A-riðli léku Þór og Valur til úrslita og nægði Þórsurum jafntefli til að komast i úrslitaleik 3. flokks. f fyrri hálfleik blés byrlega fyrir heimamönnum, því þeir leiddu 1—0 er flautað var til hlés, en Valsarar léku betur í síðari hálfleik og sigruðu 3—1. Þar hefur reynslan eflaust verið Völs- urum drjúgt veganesti. í B-riðli var það sama upp á teningn- um. fA nægði jafntefli gegn Þrótti til að komast í úrslitin og jafntefli urðu úrslit leiksins, 1 — 1. Á sunnudag mættust síðan ÍA og Valur í leiknum um fsiandsmeistara- titilinn og var það hörkuleikur. Skaga- menn skoruðu sitt eina mark beint úr aukaspyrnu og þar við sat þrátt fyrir mikinn atgang við mark Akurnesinga. Skall þar oft hurð nærri hælum. Áður höfðu Þór og Þróttur leikið um 3. sætið í mótinu og sigraði Þór 4—1. Gat sá sigur alveg eins orðið stærri. Þessi fjögur lið voru í nokkrum sér- flokki á mótinu og eiga eflaust margir af þessum ungu og efnilegu drengjum eftir að klæðast landsliðspeysum. Sumir þeirra eru þegar byrjaðir að leika með drengjalandsliði okkar. -G.Sv. Akureyri. Ingþór Bjarnason afhcndir Ólafi Þórðar- syni, fyrirliða í A, sigurlaunin. Ólafur Unnsteinsson símarfrá Kaupmannahöfn: Sól og hiti og grasteppi Idretsparken fagurgrænt — Mikill einhugur meðal íslenzku landsliðsmannanna og allir ákveðnir að gera sitt bezta í landsleiknum Frá Ólafi Unnsteinssyni, Kaup- mannahöfn: „Nei, ég er ekki hræddur við lands- leikinn hér á Idretsparken við Dani. Ég veit að strákarnir munu gera sitt bezta og ég er ánægður með það sem þeir hafa sýnt á æfingunum hér i Kaup- mannahöfn. Við höfum æft tvisvar á dag siðan við komum og það er mikill samhugur meðal liðsmanna. Sjálfur á ég harma að hefna gegn Dönum. Var með i 14—2 leiknum hér á Idretsparken 1967,” sagði Guðni landsliðsþjálfarí Kjartansson, þegar ég hitti hann og landsliðsmennina á æfingu á Idrets- parken kl. sjö f gær að dönskum tfma. Það var stift tekið á, æft vel. Veður er mjög gott hér i Kaupmannahöfn, sól og hiti, 17—20 stig. Idretsparken Iftur mjög vel út, ég hef sjaldan eða aldrei séð völlinn glæsilegri — grasteppið fagurgrænt og öll umgjörðin fyrir landsieik Danmerkur og íslands — fjórtánda landsleik þjóðanna i knatt- spyrnu innbyrðis — eins og bezt má vera. Starfsmenn vallaríns, sem ég talaði við, bjuggust við 15—20 þúsund áhorfendum á landsleikinn i kvöld en hins vegar eru allir aðgöngumiðar seldir á leik Danmerkur og Júgóslavíu í heimsmeistarakeppninni, sem verður á Idretsparken fyrst f september. Upp- selt, 49 þúsund miðar. Leikurinn f kvöld hefst kl. 17.30 að íslenzkum tima. ,,Ég er ekki hræddur við Danina eða úrslit leiksins, meira að segja er ekki iaust við að ég sé bjartsýnn. Við mun- um leika sterkan varnarleik og þegar við höfum boltann munum við leika af öryggi. Gæta þess vel að sambandið milli vamar- og sóknarmanna slitni ekki og eyður myndist á miðjunni,” sagði Marteinn Geirsson, fyrirliði islenzka iandsliðsins. Hann hefur leikið langflesta landsleiki islenzku leikmann- anna. Leikur sinn 56. landsleik i kvöld. Enginn nýliði er í ísienzka liðinu. Fimm leikmannanna léku sinn fyrsta lands- leik gegn Nigeríu á laugardag. Guðni Kjartansson reiknaði með því að Atli Eðvaldsson kæmi til Kaup- mannahafnar í dag en vissi þó ekki nánar um það mál. Reiknaði þó fast- lega með Atia og það hefur veriö farið fram á við Dani, að 17 leikmenn verði í íslenzka landsliðshópnum. Sem sagt einum bætt við og einnig hefur verið Danska landsliðið Frá Ólafi Unnsteinssyni, Kaup- mannahöfn: Danir hafa valið landslið sitt, sem leikur gegn íslendlngum á Idretsparken. Aðeins einn núver- andi atvinnumaður er f liðinu, Allan Simonsen. Margir leik- menn, sem áður léku með at- vinnuliðum. Liðið er þannig skip- að. Ole Kjær, Esbjerg, Ole Quist, KB, Ole Madsen, Esbjerg, Hend- rik Ejenbröd, KB, Steen Hansen, Hvidövre, Ole Rasmussen, OB, Karsten Nielsen, Allan Hansen, OB, Lars Lindquist, Allan Simonsen, Barcelona, og Per Röntved, Randers, sem er fyrir- Uði. farið fram á að nota megi fjóra vara- imenn í leiknum. Ekki tvo eins og venjulega er. Danir hafa tekið mjög vel i þetta. Liðiö tilkynnt f dag Þá sagði Guðni að liðsskipan gegn Dönum yrði tilkynnt upp úr hádegi í dag. Ekki þori ég að gera upp á milli þeirra Guðmundar Baldurssonar, Fram, og Þorsteins Bjarnasonar, Keflavík, í sambandi við markvarðar- stöðuna. Báðir vörðu með miklum glæsibrag á æfingunni hér á Idrets- parken. Hvað vöminni viðkemur heyrðist mér á mönnum að þar yrðu Viðar HaUdórsson, FH, Sævar Jóns- son, Val, Marteinn Geirsson, Fram, og öm Óskarsson, örgryte. Þetta eru sem sagt fjórir öftustu menn og talað um að Marteinn mundi leika fyrir aftan Sævar. Á miðjunni yrðu þá Magnús Bergs, Borussia Dortmund, sem aft- astur af framvörðunum, Ómar Torfa- son, Víking, Árni Sveinsson, Akranes, og Atli Eðvaldsson, Borussia Dort- mund, en alUr reikna með að hann leiki. Leiknir 4-4-2 og mér heyrist, að þeir Láms Guðmundsson, Víking, og Pétur Ormslev, Fram, verði sóknar- mennirnir. — Fleiri koma þó tU greina, Ragnar Margeirsson, Keflavík, Sigur- lás Þorleifsson, Vestmannaeyjum. Aðrir leikmenn í landsliðshópnum eru Skagamennirnir Sigurður HaUdórsson og Sigurður Lárusson og Ólafur Bjömsson, Breiðabliki. Leikiðf fljóðljósum VaUarstarfsmenn hér á Idretsparken sögðu mér, að leikið yrði í flóðljósum — að minnsta kosti aUur siðari hálf- leikurinn. Jafnvel einnig sá fyrri en ákvörðun um það verður tekin nokkru fyrir leikinn. Fer eftir veðri en veður er mjög gott í Kaupmannahöfn, sól og hiti. Ég talaöi við ýmsa leikmenn íslenzka iiðsins, Viðar Halldórsson, Ómar Torfason, Áma Sveinsson og fleiri og alls staðar það sama. Mjög gott hljóð i mönnum. Allir tóku fram að sérstak- lega góður andi væri meðal leikmanna, aUir sem einn maður. ÓU/hslm. Ólafur Unnsteinsson, fréttamaður DB á landsleiknum Þrír leikmenn íbann — og missa leikinn milli KR og Akraness Tveir KR-ingar og einn Skagamaður voru dæmdir i eins leiks bann á fundl aganefndar KSÍ i gærkvöid. Bannið tekur gildi næsta laugardag og leik- mennirnir þrir missa þvi hinn þýðingar- mikla leik KR og Akraness i 1. deild á Laugardalsvelli fimmtudaginn 3. september. Leikmennirnir eru Börkur Ingvars- son og Sigurður Pétursson, báðir KR, sem komnir voru með 10 refsistig, og Jón Alfreðsson, Akranesi, fyrir brott- rekstur. Ólafur Unnsteinsson símar frá Kaupmannahöfn: Krafa danskra er stórsigur á íslenzka liðinu í landsleiknum — En ég er viss um að markatel jarinn á Idretsparken f ær ekki krampa í höndina núna við að færa á markatöf luna eins og í landsleiknum 1967, segir Ólafur Unnsteinsson Ólafur Unnsteinsson, Kaupmanna- höfn. „Ég veit að þetta verður ekki einn af minum léttustu landsleikjum. Ég er alls ekki bjartsýnn og hef varað leikmenn danska landsliðsins við allt of mikilli bjartsýni. Þeir spá allir tveggja til þríggja marka sigri — en þetta verður erfiðara. Ef islenzka landsliðið stendur sig vel framan af og fær ekki á sig mörk þá er eins vist að við fáum áhorfendur á bakið á okkur. Allir meðal áhorfenda munu telja það áfall ef við vinnum Tveir Svíar í Evrópuliðinu í heimsbikarkeppninni í Róm Tveir Sviar hafa verið valdir i lið Evrópu sem keppir i heimsbikarkeppn- inni i Róm 5.-6. september næstkom- andi. Það eru þau Linda Haglund og Eric Josjö, bæði hlauparar. Linda hleypur i 100 m hlaupinu og hefur auk þess verið tilnefnd i 4 X100 boðhlaups- sveit Evrópu. Lið Evrópu lítur þannig út, karla- greinarnar taldar upp fyrst. Alan Wells, Bretlandi, keppir í 100 og 200 m hlaupi og hefur auk þess verið tilnefnd- ur til keppni i 4x 100 boðhlaupi. Aðrir sem hafa verið tilnefndir í boðhlaups- sveitina eru Pólverjarnir Krysztof Zwolinski, Zenon Liczenerski, Leszek Dunecki og Marian Woronin, en þeir skipuðu sigursveit Póllands á Evrópu- bikarleikunum fyrir stuttu. Þá hefur Frakkinn Hermann Panzo einnig verið tilnefndur i sveitina. Evrópuliðið mun koma saman í Róm nokkrum dögum fyrir heimsbikarkeppnina og þá verður eflaust ákveðið hverjir fjórir þessara munu skipa boðhlaupssveitina. LUdegt má þó telja að það verði Pólverjarnir fjórir, sem sýndu á Evrópubikarleikun- um að þeir eru ekki auösigraðir. í 400 m hlaupi keppir Harmut Weber, Vestur-Þýzkalandi, og hann hefur einnig verið tilnefndur i 4x400 boð- hlaupssveitina. Aðrir tilnefndir i hana eru Sviinn Josjö, sem frá var skýrt hér að framan, David Jenkins, Bretlandi, Alfons Brydenbach, Belgiu, Koen Gijs- berg, Holiandi og Harald Schmidt, Vestur-Þýzkalandi. í 800 m hlaupi keppir heimsmethaf- inn Sebastian Coe frá Bretlandi og Iandi hans Steve Ovett keppir i 1500 m hiaupinu. Eamon Coghlan, írlandi, keppir í 5000 m hlaupi og Martti Vainio Finnlandií 10.000 metrunum. Boguslaw Maminski, PóIIandi, hleypur í 3000 m hindrunarhlaupi og Tékkinn Ivan Julius í 110 m grinda- hiaupi. Harald Schmidt keppir í 400 m grindahlaupi. Gerd Nagei, Vestur-Þýzkalandi, keppir í hástökki, Jean Michel Bellot, Frakklandi, f stangarstökki, Laszlo Szaima, Ungverjalandi, i iangstökki og Bela Bokosi, Ungverjalandi, i þri- stökki. Ralf Reichenbach, Vestur- Þýzkalandi, keppir i kúluvarpi, Imrich Bugar, Tékkóslóvakiu, i kringlukasti, Karl-Hans Riehm, Vestur-Þýzkalandi, i sleggjukasti og Pentti Sinersaari, Finnlandi, i spjótkasti. Kvennaliðið lítur þannig út: Linda Haglund í 100 m hlaupi og Jarmilla Kratochvilova Tékkóslóvakiu í 200 m hlaupi. I 4x100 m boðhlaupið hafa verið tilnefndar Kathy Samallwood, Wendy Hoyte, Beverley Goddard og Shirley Thomas, allar frá Bretlandi, og Kratochvilova og Haglund. Kratochvil- ova hleypur í 400 m hlaupi og hún hefur einnig verið tilnefnd í 4 x400 m boðhlaupið ásamt þeim Baby Bussman og Claudia Steger, Vestur-Þýzkalandi báðar, og ensku stúlkurnar Jocelyn Hoyte-Smith, Verona Elder og Michelle Scutt. Pólska stúlkan Iolanta Januchta hleypur i 800 m hlaupinu og landi hennar Genowefa Blaszak í 400 m grindahlaupi. í hástökki keppir Ulrika Meyfarth, Vestur-Þýzkalandi, Anna Wlodarczyk, Póllandi, í langstökki, Elena Fibin- gerova, Tékkóslóvakiu, í kúluvarpi, Maria Petkova, Búlgaríu, i kringlu- kasti og Antoaneta Todorova, einnig frá Búlgaríu, i spjótkasti. Islendinga ekld með fjögurra til fimm marka mun,” sagði Per Röntved, fyrir- liði danska landsliðsins, i viðtali. Hann setur í kvöld nýtt landsleikjamet dansks knattspyrnumanns. Leikur þá sinn 63. landsieik. Landsleikjamet hans og Henning Munk Jensen, OB, er 62 landsleikir. Per Röntved varar Dani við allt of mikilli bjartsýni. Hann hefur áður leikið gegn íslendingum í jafnteflisleik íslands og Danmerkur á Laugardals- velli 1970 — jafntefli 0—0 — og þekkir því talsvert til islenzkra knattspymu- manna. Hann hefur verið í landsUðinu meira og minna í 11 ár. Var um tíma at- vinnumaður hjá Werder Bremen í Vestur-Þýzkalandi, meiddist þar og var um tíma talið að ferli hans sem knatt- spyrnumanns væri lokið. En Röntved náði sér á strik og sló í gegn í leiknum í heimsmeistarakeppninni fyrr í sumar, þegar Danir unnu ítali á Idretsparken. Hann ætlar sér að ná að minnsta kosti 75 landsleikjum. Mikið skrifað um leikinn Það er mikið skrifað um landsleik Danmerkur og íslands i dönsku blöð- in: Allir reikna með stórsigri. Sepp Piontek, þjálfari danska lands- liðsins, er þó ekki meðal þeirra bjart- sýnustu. Hann segir: ,,Ég verð ánægður ef við vinnum bara 2—1 — já, það er nóg að vinna 2—1. Ég vona að okkur takist vel upp í sóknarleikn- um og leikurinn verði skemmtilegur fyrir áhorfendur og leikmenn. En ég lít á leikinn fyrst og fremst sem upphitun fyrir leikinn við Júgóslavíu í heims- meistarakeppninni. Leikurinn við ísland getur orðið erfiður vegna áhorf- enda. Það getur verið erfitt að uppfylla kröfur þeirra og takist það ekki fljótt getur eins farið að þeir snúist i lið með íslendingum”. Piontek segir ennfremur að Danir séu með gott landslið og er í skýjunum í sambandi við Allan Simonsen. Hvað leikmaðurinn hafi lagt á sig til að komast í landsleikinn f Hann var mætt- ur á mánudag og fór strax á æfingu og um landsleikinn sagði Simonsen: „Þetta er leikur, sem við verðum að vinna,” og litli Allan þekkir vel til íslenzkra knattspymumanna. Hefur oft leikið gegn okkar landsliði. BT segir í mikilli fyrirsögn: „Krafan til Röntved og Co. er stórsigur” — en Röntved svaraði með því að segja. „Leikurinn gegn íslandi getur orðið áfall fyrir okkur, svp miklar vonir eru bundnar við stóran sigur,” og hann segir ennfremur: „Menn minnast ef til vill sigursins 14—2 á íslandi 1967, þegar markateljarinn á Idretsparken fékk krampa í höndina við að færa mörkin á markatöfluna,” og nokkuð er minnzt á þá martröð íslendinga á Idretsparken í blöðum hér. Ég hef hins vegar trú á að markateljarinn á Idrets- parken fái ekki neinn krampa núna. ÓU/hsim. Úrslitaleikur bikarkeppninnar á sunnudag: Tekst Eyjamönnum að hefna tapsins frá þvf í fyrra? — eða vinna Framarar bikarinn þriðja árið í röð „Ég á von á því að Eyjamenn verði 2. Fram hefur hins vegar leikið 13 leiki í sterkari nú en i fyrra,” sagði Hólmbert röð án taps í bikarkeppninni. Friðjónsson þjálfari Fram, á blaða- KR hefur oftast unnið bikarinn, eða mannafundi i gær en á sunnudag eigast Fram og Vestmannaeyjar við í úr- siitum bikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 15.30. Var leiknum seinkað um hálfa klukkustund vegna tilmæla frá Riklsútvarpinu, en lýsing verður frá leiknum. Þetta er 22. úrslitaleikurinn í keppninni og annað árið í röð leika Fram og ÍBV til úrslita um bikarinn. í fyrra sigruðu Framarar 2—1 og var það í fjórða sinn sem þeir unnu bikarinn. Vestmannaeyingar hafa tvívegis unnið sigur i bikarkeppninni en þeir hafa sýnt það i leikjum sínum i keppninni i ár að þeir eru til aJQs liklegir. Þeir hafa leikið alla leiki sina á útivelli og ætið unnið, m.a ÍA 5—0 og KA 3— sjö sinnum, en Fram og Valur hafa unnið hann fjórum sinnum hvort félag. ÍBV hefur einu sinni unnið og ÍBA, ÍA, ÍBK og Víkingur einu sinni hvert félag. Þótt Akurnesingar hafi aðeins einu sinni unnið bikarinn hafa þeir þó leikið oftast til úrslita um hann eða niu sinnum. Þetta verður í áttunda skiptið sem Framarar leika til úrslita um bikarinn, þar af í fjórða skiptið á undanförnum fimm árum Þeir unnu í fyrra og einnig árið 1979 er þeir lögðu Val 1—0 í úr- slitaleik. Árið 1977 sigraði hins vegar ValurFram 2—1. Lið Fram verður sennilega skipað sömu mönnum og leikið hafa síðustu leiki félagsins. Þó mun Viðar Þorkels- son ekki vera gjaldgengur í úr- slitaleikinn, þar sem hann hefur áður ieikið með 2. flokki í bikarkeppninni. Þá meiddist Þorsteinn Þorsteinsson á æfingu í fyrrakvöid, en ekki er fullkannað hvort meiðsli hans eru alvarleg. Framarar vonast til!< að Trausti Haraldsson verði orðinn góður af meiðslum sínum fyir úrsUta- leikinn á sunnudag. VaUnn hefur verið 20 manna hóp- ur Eyjamanna fyrir leikinn gegn Fram og skipa hann eftirtaldir leikmenn: PáU Pálmason, Guðmundur S. Maríusson, Sigurlás Þorleifsson, Þórður HaUgrimsson, Helgi Einarsson, Hlynur Stefánsson, ÞórhaUur ÞórhaUsson, Guðmundur ErUngsson, Kári Þorleifsson, Gústaf Baldvinsson, Ómar Jóhannsson, Viðar Elíasson, Snorri Rútsson, Kári Vigfús- son, Valþór Sigþórsson, Jóhann Georgsson, Ingólfur Ingólfsson, Bergur Ágústsson, Sigurjón Kristins- son og Ágúst Einarsson. Þjálfari Eyja- manna er Kjartan Másson. Þess má að síðustu geta að tveir Ieikmenn Fram geta nú orðið bikar- meistarar með Fram í 5. skiptið, þeir Marteinn Geirsson og Gunnar Guðmundsson. Sem fyrr getur hefst leikurinn á sunnudag kl. 15.30 en á undan leiknum og i hálfleik leikur Hornafiokkur Kópavogs fyrir áhorf- endur. Dómari á leiknum verður Hreiðar Jónsson og linuverðir ÓU P. Olsen og Sævar Sigurðsson. Verð aögöngumiða verður kr. 70 í stúku, 50 í stæði og 20 kr. fyrir böm 13 ára og yngri. Miðasalan hefst kl. 11 á sunnu- dag. -SA.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.