Dagblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981.
Veðrið
Gert er réð fyrir suðlœgri átt um
land allt, vfðast goki eða kalda, súld
og rigning é Suöur- og Vesturlandi
vioa bfart é Norðaustur- og Austur-
landi. Hlýtt é norðanverðu landinu.
Kl. 6 var f Reykjavik austan 2,
skýjað og 10 stig, Gufuskélar austan
4, skýjað og 11, Gaharviti suðaustan
2, alskýjað og 10, Akureyrl lögn,
skýjað og 8, Raufarhöfn suðvestan 3,
skýjað og 7, Hðfn norðnorðvestan 3,
skýjað og 7, Stórhöfði suðaustan 4,
þoka og 10stlg.
í Þórshöfn var alskýjað og 10,
Kaupmannahöfn skýjað og 15, Osló
skýjaö og 13, Stokkhólmur rigning og
12, London þokumóða og 15, Ham-
borg þokumóöa og 14, Parfs þoku-
móða og 13, Madrid haiðrfkt og 17,
Lissabon heiörlkt og 20, New York
alskýjaðog 18.
ndSát
Ragnheiður Hafstein Thorarensen
lézt 22. ágúst, 78 ára að aldri.
Ragnheiður fæddist á ísafirði 4.
janúar 1903. Hún var dóttir Hannesar
Hafstein, þáverandi sýslumanns og
síðar fyrsta íslenzka ráðherrans og
konu hans Ragnheiðar Hafstein. Hún
fluttist til Reykjavíkur með foreldrum
sínum og stundaði síðan nám um tíma
við Menntaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan gagnfræðaprófi.
Ragnheiður giftist síðan Stefáni
Thorarensen 1923 og varð þeim 6 barna
auðið og eru þau öll á lífi. Mann sinn
missti hún árið 1975.
Guðrún Guðmundsdóttir frá Læk,
Freyjugðtu 5, lézt 24. ágúst á EUiheim-
ilinuGrund.
Guðmundur Ketilsson, Smáratúni 4
Selfossi, lézt í Sjúkrahúsi Selfoss 21.
ágúst.
Kristmundur Sæmundsson frá
Draumbæ lézt í Sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 21. ágúst.
Óskar Bjarni Brynjólfsson, Bergþóru-
götu 45, lézt 19. ágúst. Hann verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju 28.
ágúst kl. 13.30.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr. 14 - S 21 715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þýónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum eriendis
Ljósritum
sam -
itundis
\Vélritunar-
þjónusta
FJÖLRITUN
LJÓSRITUN
VÉLRITUN
STENSILL
ÓÐINSGÖTU 4 -REYKJAVÍK - SIMI24250
Elsa Dagmar Runólfsdóttir lézt 20.
ág. 1981. Hún var fædd 11. júní 1931.
Foreldrar hennar voru Runólfur Árna-
son og Þóra Jónsdóttir. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Andrés
Hjörieifsson. Elsa Dagmar verður
jarðsungin frá Neskirkju 27. ágúst kl.
13.30.
Jón Kristinn Waage lézt 17. ágúst
1981. Foreldrar hans voru Magnús
Waage og Himinbjörg Jónsdóttir.
Nokkurra daga gömlum var honum
komið í fóstur að Auðkúlu í Arnar-
firði. Hann kvæntist Guðnýju
Þórarinsdóttur, en hún lézt fyrir níu
árum. Eignuðust þau tvo syni,
Gunnar og Garðar. Auk sonanna
tveggja ólu þau upp tvö fósturbörn,
Huldu Þórarinsdóttur og Sigurð
Magnússon. Jón Kristinn verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju 26.
ágúst kl. 13.30.
Kristján Helgi Sveinsson lézt 20. ágúst.
Hann verður jarðsunginn frá Háteigs-
kirkju 28. ágúst kl. 15.
Steinunn Thorlacius, Sigluvogi 7,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
27. ágúst kl. 13.30.
Kristján Sveiniaugsson, Laugarnesvegi
102, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju 27. ágúst kl. 10.30.
Viðskiptaviðræður
við Póiverja
Dagana 17.—20. ágúst sl. fóru fram í Reykjavík
viöræður um viðskipti íslands og Póllands. Um við-
skipti landanna gildir viðskiptasamningur frá 30.
apríl 1975.
í sameiginlegri fundargerð sem undirrituð var af
formönnum viöræðunefndanna, Stefáni Gunnlaugs-
syni deildarstjóra og Adam Martowski skrifstofu-
stjóra, er fjallað um þróun viðskipta milli landanna
en þau voru vaxandi á árinu 1980 en drógust saman
á fyrra misseri yfirstandandi árs.
Af beggja hálfu kom fram áhugi fyrir áframhald-
andi viðskiptum, þrátt fyrir efnahagsörðugleika Pól-
verja, og voru ræddir ýmsir möguleikar í því sam-
bandi, þar á meðal greiðslufrestir. Hér er um að
ræða almennar viðræður milli stjórnvalda en sölu-
samningar eru gerðir milli islenzkra og pólskra fyrir-
tækja.
w
I
GÆRKVÖLDI
KIRKJAN EÐA
PERSÓNULEGUR FRAMI?
í gærkvöldi ásetti ég mér að ein-
skorða mig við innlendar fréttir út-
varps og sjónvarps í þessum pistli.
Raunar bjóst ég Við ■teiðindafréttum
ýmiss konar, en aldrei því sem raun
bar vitni.
Tvennt bar hæst — biskupskjör
annars vegar og gengisfellingu hins
vegar. Ég nenni ekki að eyða orðum í
gengisfellinguna, því slíkt er orðið
daglegt brauð á íslandi og telst þar af
leiðandi ekki til nýjunga, fremur en
endalausar bensínhækkanir. Slíkt
flokka ég undir ólæknandi mein-
semdir á borð við víðfeðmar rusla-
kistur læknanna: „inflúensur” og
„pestir”. Allt sem þeir kunna ekki
skil á fellur undir þau heiti.
Hvað biskupskjöri viðvíkur, þá
finnst mér það, þvi miður, hafa
farið fram álíka „smekklega” og
gengur og gerist með prestskosningar
á íslandi, er aldrei verða til annars en
sundrungar og flokkadrátta — og ég
tel kirkjunni til smánar.
Kirkjan ætti að tákna umburðar-
lyndi, fyrirgefningu og kærleik, en
hvað er búið að gera úr henni í dag?
Hún er orðin vígvöllur eiginhags-
muna og metnaðar — og hverjir
standa að því? Kirkjunnar „þjónar”.
Síðan fárast menn yfir lélegri kirkju-
sókn. Það tel ég vera makalausa
ósvífni. Kirkjan og það sem hún er
látin standa fyrir virðist mér vera í
fjarska litlum tengslum við boðskap
Krists. Og hverjum er það að kenna?
Kirkjunnar „þjónum”. Sumir þjóna
hennar virðast mér kirkjunni hættu-
legri en verstu fjendur gætu orðið.
Séra Pétur Sigurgeirsson var lýstur
rétt kjörinn biskup Islands í gær. Og
fram að kvöldfréttum útvarpsins
skipti biskupskjörið mig minnstu
máli, ef satt skal segja. Þá bar svo
við, að sagt var frá, að séra Árni
Pálsson lét sig hafa það að kæra
kosninguna — eins og gengur og
gerist um pólitísk kjör. Ekki bættu
viðbrögð séra Ólafs Skúlasonar úr
skák er hann tjáði sig um málið í
sjónvarpinu.
Það munaði minnstu — einu at-
kvæði — að séra Ólafur Skúlason
yrði biskup. Voru þetta réttmæt og
umburðarlynd viðbrögð hugsanlegs
biskups? Biturð og heift virtust mér
vera í fyrirrúmi. Sem einstaklingur
ætlast ég til annarra eiginleika í
biskupi — ef kirkjan á að halda
virðuleika sínum. Sem einstaklingur
tek ég því afstöðu á móti séra Ólafi
og séra Árna Pálssyni, er kærði
þessar kosningar, án tillits til hvað
átti í hlut — fremur en hver — nefni-
lega kirkjan sem andlegur leiðtogi,
fremur en veraldlegur.
Ef ég hefði verið annar hvor
þessara manna, þá hefði ég þagað —
kirkjunnar vegna — og látið persónu-
legan frama fara veg allrar veraldar.
-FG.
Helztu útflutningsvörur tslands eru fiskimjöt,
skinn og saltsíld en af hálfu Pólverja var lögð mest
áherzla á sölu fiskiskipa.
Óvenju gott
arnarvarpsár
Um hafamarstofninn: Varp heppnaðist hjá 15
arnarpörum og út komust 16 ungar. Með vissu er
vitað um niu önnur pör sem urpu en varpið misfórst.
Það sem af er þessu ári hafa ernir sézt frá Skjálf-
andaflóa vestur um að Árnessýslu. Tala fullvaxinna
fugla mun vera nálægt 70, auk ungfugla, en tala
stofnsins gæti verið um eitt hundrað, auk þeirra 16
unga sem upp komust i ár.
Þrjú arnarhræ fundust á árinu, 2 ernir, eins og
þriggja ára, munu hafa fengið í sig grút þegar þeir
voru i hnísuhræjum. Dánarorsök eins þeirra er
ókunn.
Þetta ár mun vera bezta arnarvarpsár hvað snertir
tölu verpandi ama sl. 80 ár eða siðan um aldamót en
á árunum eftir 1900 var haferninum útrýmt úr 3/4
hlutum landsins með refaeitri.
Varp fálka virðist hafa tekizt vel enda þótt tölur
liggi ekki fyrir.
Haftyðrill og þórshani em á mörkum þess að
hverfa sem varpfuglar á íslandi, og er brýrit fyrir
landsmönnum að vara sig á eggja- og fuglaþjófum
sem sækja í þessar.tegundir.
Allir nýir félagar Fuglaverndarfélags íslands fá
ókeypis hina frábæru bók dr. Finns Guðmunds-
sonar, Haförninn, sem er sérprentun úr bók Birgis
Kjarans með sama nafni.
Tilkynningu um nýja félaga má gefa í síma 19995 í
Reykjavik eða senda i pósti til Fuglavemdarfélags
íslands Bræðraborgarstíg 26, Reykjavik.
Nýtt verð á heyi
í fréttabréfi Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins nr.
12—14, dagsettu 7. ágúst 1981, er ranglega farið
með tölur um framleiðslukostnað á heyi frá Bú-
reikningastofu landbúnaðarins. Hið rétta er að Bú-
reikningastofan hefur áætlað framleiðslukostnað á
heyi í sumar kr. 1,40—1,50 pr. kg fullþurru í hlöðu
og er ekki sérstaklega tekið tillit til þess hvort heyið
er vélbundið eða ekki. Á túni er líklegur framleiðslu-
kostnaður þá kr. 1,20—1,30 pr. kg.
Ráðstefna ITF
(Reykjavík
Dagana 26. til 28. ágúst nk. verður ráðstefna Fiski-
mannadeildar ITF haldin að Hótel Loftleiðum.
ITF eru alþjóðasamtök flutningaverkamanna og
hefur Sjómannasambandið verið aðili að því siðan
1957. Áður var Sjómannafélag Reykjavíkur eitt og
sér aðili að samtökunum, þ.e.a.s frá árinu 1926.
Ráðstefnur Fiskimannadeildar ITF eru haldnar á
fjögra ára fresti og er þetta í fyrsta sinn sem ísland
verður fyrir valinu sem ráðstefnuland og mun einnig
vera í fyrsta skipti sem alþjóðasamtök verkalýðs-
félaga halda ráðstefnu hér á landi.
Ráðstefnuna sækja fulltrúar frá sjómanna-
félögum viða að úr heiminum er hafa fiskimanna-
deild innan sinna vébanda.
Danmörk fór með umboð fyrir ísland og
Færeyjar í aðalstjóm samtakanna allt til ársins 1980
en á þingi ITF, sem haldið var á Miami 17.—25. júlí
1980, hlutu íslendingar og Færeyingar fylgi þingfull-
trúa um sameiginegan fulltrúa þessara beggja
landa í aðastjóm ITF. óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands íslands skipar þetta sæti nú. Oli
Jacobsen formaður Fiskimannafélagsins í Færeyjum
er núverandi formaður Fiskimannadeildar ITF.
Aðalviðfangsefni ráðstefnunnar eru m.a.:
1. Tillögur Alþjóðaverkamannasambandsins til
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) og Alþjóða
siglingamálastofnunarinnar (IMCO) um öryggismál
og heilsugæzlu fiskimanna.
2. Alþjóðlegar fiskveiðistefnur.
Tónskóli S.D.K.
tekur til starfa
Nú er að hefjast 18. starfsár Tónskólans.
Síðastliðinn vetur var skólinn fullskipaður og
vom nemendur á sjötta hundrað á öllum stigum
námsskrárinnar.
Skólinn hefur frá upphafi tekið á móti
nemendum á öllum aldri og nýlega sett á laggir
undirbúningsdeild fyrir fullorðna, þar sem
byrjendur fá kennslu i nótnalestri og nokkra þjálfun
í að hlusta á tónlist. Þessi deild býr nemendur undir
nám í hljóðfæraleik eða söng og samsvarar því for-
skólanámi yngri nemenda.
í skólanum gefst nemendum tækifæri á að vinna
saman í samspili, hljómsveitarleik og kórsöng og á
vegum Tónskólans eru haldnir fjölmargir tónleikar
ár hvert.
Skólinn starfar ekki aðeins niðri í bær, við
Hellusund, heldur einnig við Norðurfell og undirbýr
nú kennslu i hinni nýju félagsmiöstöð Árbæinga,
Árseli.
Innritun og móttaka námsgjalda verður 1
skólahúsinu við Hellusund 7, seinnipart dags í þess-
ari viku. Sjá nánar í auglýsingu í blaðinu í dag.
Afmæli
Sextíu og fimm ára er f dag, 26. ágúst,
Ragnar Sigurmundsson vélstjóri,
Eskifirði. Hann er fæddur í Svínhólum
i Lóni, en fluttist til Eskifjarðar laust
eftir 1930 og hefur átt þar heima síðan.
Ragnar hefur verið vélstjóri á fiski-
skipum yfir 40 ár og er nú vélstjóri á
Áttatíu og fimm ára er í dag Gróa
Ágústa Guömundsdóttir Grettisgötu
33 B. Afmælisbarnið verður heima í
13árastrákurtýndi
700 krónum í Lágmúla
Þrettán ára piltur, Páll Ómarsson,
varð fyrir því óláni í gær að týna 700
krónum. Palli, en svo er Páll jafnan
kallaður, telur líklegast að hann hafi
týnt 700 krónunum, einum 500 króna
seðli og tveim 100 króna, annaðhvort
inni í eða fyrir utan Múlaútibú Lands-
bankans. Gerðist þetta rétt fyrir kl. 16.
Palli ætlaði að nota 700 krónurnar
til að fara til Siglufjarðar þar sem hann
hugðist taka þátt í íþróttamóti. Hann
vonast til að einhver góðhjörtuð mann-
eskja hafi fundið peningana og komi
þeim til skila. Palli er sendill á ritstjórn
Dagblaðsins í sumar og þar er hægt að
finna hann.
Átján ára týndi veski
með öllum skilríkjum
' Ungur, átján áragamall skólapiltur
varð fyrir því óhappi þriðjudaginn eftir
verzlunarmannahelgina að týna
peningaveskinu sínu. I veskinu voru
700 kr. í peningum og auk þess öll
skfrteini piltsins sem er vitaskuld mjög
bagalegt að missa. Pilturinn, sem heitir
Jóhann Þorsteinsson til heimilis að
Langholtsvegi 116 B vann í sumar við
akstur á kókbíl og telur sig hafa týnt
veskinu er hann var við vinnu sína
einhvers staðar í Laugarneshverfinu.
Hann væri mjög þakklátur ef
fmnandi veskisins vildi senda honum
skilríkin í pósti.
Hólmanesi SU 1. dag.
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
að frelsi geti viðhaldist
1 samfélagi