Dagblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. ÁOCST 1981. BÍLAR Það er í rauninni undarlegt að gera sér grein fyrir því eftir búsetu i erlendri stórborg og eftir að hafa gist fjölda annarra stórborga tíma og tíma aö þar sér maður sárasjaldan árekstur bíla og ekki aðeins það heldur sárasjaldan skemmdan eða beyglaðan bil. Einhver er ástæöan og mér sýnist að einkum tvennt komi til, veður- farið er okkur óhagstætt og svo hitt að frekja, tillitsleysi og beinn rudda- skapur einkenna íslenzka bilstjóra.. Vitanlega er mikið til af kurteisum og elskulegum bilstjórum hér lika en fjöldi hinna virðist vera meiri og því tekur umferðin svip af þeim. Ómar Ragnarsson raUikappi m. m. hefur i sjónvarpi sýnt ágætar myndir um akstur og umferð i borg- inni og jafnframt bent á ýmsar leiðir til þess fallnar að fá umferðina tU þess að fljóta betur og með jafnari hraða. Ómar sýndi í fyrra mynd um akstur eftir Breiðholtsbraut, ElUða- vogi, Kleppsvegi og niður i bæ eða öfugt. í myndinni sýndi hann hve vel og mjúklega umferðin getur flotið ef ökumenn á þessum tilteknu götum taka tUUt hverjir til annarra og tU þeirra ökumanna sem þurfa að komast af hUðargötum inn á þessar götur. Þessa mynd mætti gjaman sýna aftur og fela Ómari jafnframt að gera fleiri slíkar eða i sama dúr. BILAR OG BILSTJORAR Að beygja: Á þessari mynd rifjum við upp eitt atriði úr mynd Ómars en hún sýnir akstur upp Breiðholtsbraut. Bílarnir vinstra megin á myndinni gætu vitanlega verið dreifðir á báðar akreinarnar, og þeir sem koma af götunni tU hægri yrðu þá að stanza og safnast þar upp. Með því að nota stýrið ofurlítið færa bílarnir á Breið- holtsbrautinni sig yfir á vinstri akreinina, sem munar þvi að hinir sem eru að koma inn á brautina geta ekið óhindrað. AUt og sumt sem hefur gerzt er að nokkrir ökumenn setja á stefnuljós og hreyfa stýrið sitt örlítið og aUir verða væntanlega miklu ánægðari í umferðinni. Fleiri en ökumenn þurfa að læra og bæta sig. Lögreglan mætti gjarnan athuga tUlögu sem sýnd er hér á síðunni og fjaUar um viðbrögð lögreglu á árekstursstað. Lögreglan og við Hellissandur Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Hellissandi. Uppl. hjá umboðsmanni, sími93-6677 eða 91-27022. mmiABin Kennara vantar við Gagnfræðaskólann í Hveragerði. Æskilegustu kennslu- greinar: enska, stærðfræði og lesgreinar. Uppl. gefur Bjarni Eyvindsson í síma 99-4153 og Valgarð Runólfsson í síma 99-4288 og 99-4232. Skólastjóía ogkennara vantar að grunnskóla Hellissands. Æskilegar kennslugreinar: Enska, danska og íþróttir. Umsóknarfrestur er til 5. sept. Uppl. veitir skólanefndar- formaður í síma 93-6605. AUir kannast við það umferðar- öngþveiti sem oft verður vegna áreksturs og hve mikið það getur orðið í annatíma. LítiU árekstur getur valdið hálftíma eða miklu lengri vandræðum. Ástæðan er aðaUega sú að fyrst þarf að bíða eftir sérstökum bílum frá lögreglunni, sem koma tU þess að unnt sé að taka skýrslu af ökumönn- um og mæla upp árekstursstaðinn. AUt þetta tekur gjarnan langan tíma og loks eftir mæUngarnar og skýrsl- urnar eru árekstursbilarnir fjar- lægðir. Lögreglan gæti breytt þessu. Með því að búa alla sina bíla og mótorhjól spreybrúsum með sterkum Ut gæti það ökutæki lögreglunnar sem næst er árekstursstað ekið þangað í snar- hasti og lögreglumenn síðan merkti útlínur árekstursbUanna á götuna. Síðan mætti fjarlægja bUana á svip-1 stundu og umferðin kæmist í samt lag. Á þessum tveimur myndum sjáum við fyrst aðstæður með tjónbUana þar sem þeir loka annarri akreininni og svo nokkrum mínútum síðar þegar búið er að sprauta útlínur þeirra á götuna og kippa brakinu burt. Þar með er umferðin komin í lag, en lögreglan kemur svo á staðinn þegar umferð er lítU og framkvæmir nauðsynlegar mælingar og allir verða mjögánægðir. DB-myndir Bj. Bj. ^ SSÍÍf'A. A2 m DÖGUM * •sr_____ 2=> V KVIKMYNDA VÉLA ^ LEIGA FILMU LEIGA s, FILMUR OG VELAR S.F. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.