Dagblaðið - 16.09.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 16.09.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981. óitir Bþróttir fþróttir íþróttir % <á Iþróttir ortmund til Diisseldorf: „BUK> AÐ SEUA MG” —sagði þýzkur blaðamaður, sem hringdi f Atla. Atli skrifar undir samning við Fortuna Diisseldorf fyrir helgi. Félagið hefur líka mikinn hug á að fá Pétur Ormslev „Eg hef mikinn áhuga á að fara til Fortuna Diisseldorf, já, mjög spenntur en ég er ekkert að flýta mér. Reikna þó með að skrifa undir samning við Diiss- eldorf fyrir helgi. Á sunnudag kem ég heim í HM-leikinn við Tékka,” sagði Atli Eðvaldsson þegar Dagblaðið ræddi við hann i gærkvöld. Dusseldorf hefur gert Borussia Dortmund tilboð i Atla og félögin hafa gengið frá samn- ingum sin á milli. Atii á aðeins eftir að skrifa undir. „6g gat alltaf reiknað með þessum félagaskiptum en samningar hjá félög- unum gengu heldur betur fljótt fyrir sig. Það var um 10 leytið á mánudags- kvöld að blaðamaður frá þýzku blaði hringdi til min og sagði: Það er búið að selja þig til Fortuna Diisseldorf. — Ég sagði honum að það gæti ekki staðizt. Mennirnir yrðu fyrst að tala við mig, verða að gera það. En hvað sem því líður þá hafa samningar tekizt milli fé- laganna. Diisseldorf hefur hvað eftir annað reynt að fá mig eða frá því þýzki lands- liðsmaðurinn Klaus Allofs var seldur til Kölnar í sumar. Síðast fyrir 10 dögum en þá sögðu þeir hjá Dortmund nei. Ég skrifa örugglega undir en er ekk- ert að flýta mér, alla vega læt ég það bíða fram undir helgi. Ég mun því ekki leika með Fortuna Dtlsseldorf um þessa helgi en reikna fastlega með því að leika með liðinu í næstu umferð. Hlakka til að skipta um félag. Það verður mikil tilbreyting. Dússeldorf er mjög falleg borg. Ég hef rætt við þjálf- ara liðsins og nokkra leikmenn. Þeir virðast líka spenntir að ég komi, búnir að reikna með því nokkuð lengi. Leik- mennirnir segja mér að það vanti alveg leikmann frammi í stað Allofs. En eins og ég sagði þá er ég ekkert að flýta mér. Læt þá bíða aðeins hjá Dortmund, þeir hafa ekki komið alltof vel fram við mig,” sagði Atli ennfremur. Þá gat hann þess að Dortmund væri að kaupa rúmenska landsliðsmanninn Raducanu, sem flúði, þegar rúmenska landsliðið var á ferð í Dortmund. srzlunarerindum ;in voru að semja hans til Diisseldorf öðru hvoru undanfarnar vikur. Aðalástæðan fyrir sölu Atla mun vera rúmenski flóttamaðurinn Raducanu. Dort- mund er að festa kaup á honum, fjórða leik- manni félagsins sem er frá landi utan Efna- hagsbandalags Evrópu, og þá varð einhver hinna þriggja að fara. Atli mun leika með Dtisseldorf gegn Bremen í Bundesligunni á föstudagskvöld. Lœti hjá Köln Allt er nú I kalda koli hjá Köln. Nýju leik- mennirnir dýru, Klaus Allofs og Klaus Fischer, finna sig ekki með liðinu og Tony Woodcock, enski landsliðsmaðurinn, fer fram á sölu í hvert skipti sem hann er settur á varamannabekkinn. Nú vill svissneski lands- liðsmaðurinn Rene Botteron fara frá félag- inu þar sem hann hefur ekki verið fasta- maður í liðinu að undanförnu. Stjórn Kölnar neitar honum um sölu. Félagið vill hafa sterkanfimmtán mannahóp ef svo kynni að fara að það yrði í toppbaráttu í vetur og fróðlegt verður að fylgjast með gangi mála í Köln á næstunni. -Viggó / VS. napp þjálfari hjá >ta félagi Noregs tur af störfum hjá Viking í Stafangri í haust Noregs gegnum árin, Fredrikstad. Hefur gert samning við félagið til tveggja ára. Fredrikstad ér í 5.—8. sæti i 1. deildinni í Noregi en Viking er að berjast í toppbarátt- unni og er einnig komið í undanúrslit bikars- ins. Knapp hefur verið fjögur ár þjálfari hjá Viking. Tók við liðinu eftir að hafa verið landsliðsþjáifari á íslandi í fjögur ár. Undir stjórn Knapp náði Stafangurs-liðið mjög góðum árangri. Sigraði meðal annars bæði í deild og bikar 1979. Þess má geta að hart hefur verið deilt á erlenda þjálfara í Noregi I norska Dagblaðinu síðustu vikurn- ar. Margir þeirra taldir lélegir. Knapp er þó ekki í þeim hópi. Þá kom einnig fram í norska Dagblaðinu að Knapp hafi verið á höttunum eftir starfi á íslandi en farið bón- leiður til búðar. -SJ/SA. Enginn erlendur leikmaður er hjá Dúss- eldorf svo liðið getur keypt einn til við- bótar auk Atla. ,,Ég veit að þeir hjá Dússeldorf hafa mikinn hug á því að fá Pétur Ormslev, Fram, til sín. Hann kemur til Dússel- dorf eftir síðari leik Dundalk og Fram í Evrópubikarkeppninni um mánaða- mótin. Formaður félagsins sá landsleik Danmerkur og Islands í Kaupmanna- höfn i ágúst. Hreifst þá mjög af Pétri. Taldi hann leikmann, sem félagið vant- ar, leikmann, sem getur haldið knettin- um. Leikmenn Dússeldorf hafa einnig spurt mig mikið um Pétur,” sagði Atli. En hvað er að frétta af Magnúsi Bergs hjá Dortmund? „Það getur verið að hann sé einnig á förum frá Dortmund. Nokkur félög hafa spurzt fyrir um hann. Ég veit ekki UPP FÓR Joachim Kunz, silfurmaður frá Moskvuleikunum, varð i gær heims- meistari i léttvigt, 67,5 kg, á HM i Lille i Frakklandi í gær. Snaraði 150 kg og jafnhattaði 190 kg. Samtals 340 kg. Honum mistókst tvívegis við 187,5 kg í jafnhöttun. Lét þá þyngja í 190 og upp ULÓDIN fóru lóðin. Þessi austur-þýzki lyftinga- maður á öll heimsmetin þrjú i þyngdar- flokkunum. Annar í keppninninni varð Mincho Pashov, Búlgaríu, með samtals 330 kg. Þá Frakkinn Daniel Senet með 320 kg. hvaða félög en ég held að talsverðar likur séu á að Magnús skipti um félag. Athygli félaganna beinist að honum sem miðverði. ” -hsím. VÍKINGUR BORDEAUX eftir 1 dag • yfir i-ið þegar griU”-matur er annars vegar i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.