Dagblaðið - 28.09.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981
DB á ne vtendamarkaði
Hagdeild Verzlunarbankans býður
góða þjónustu við heimilisbókhald
Fólk ekki verið duglegt að notfæra sér þjónustu bankans, segir Geir Þórðarson sem er
viskiptamönnum til leiðbeiningar
aðstoð við skipulagningu fjárhagsá-
ætlunar fyrir heimilið.
„Fólk hefur ekki notfært sér
mikið þessa þjónustu okkar.
Ástæðan er sennilega sú að fólk
heldur að það sé þýðingarlaust að
gera áætlanir fram í tímann vegna
verðbólgunnar,” sagði Geir Þórðar-
son í Verzlunarbankanum í samtali
við neytendasíðuna. Um síðustu ára-
mót tók bankinn upp nýja þjónustu
fyrir viðskiptavini sína og bauð þeim
Fjárhagsáœtlanir
nauðsynlegar þrátt
fyrir verðbóiguna
„Það er reginfirra að ekki sé
hægl að gera áætlanir urn fjárhaginn
vegna verðbólgunnar. Auðvitað
hefur verðbólgan sitt að segja en
engu að síður eru fjárhags-
áætlanirnar ' nauðsynlegar.
Aðalkosturinn við heimilisbókhald er
betri áætlanagerð. Það er
nauðsynlegt fyrir fólk að fara ekki út
í of erfíðar eða miklar fjárfestingar.
Án áætlana er ekki óalgengt að fólki
verði það einmitt á.
Það eru til peningar í
þjóðfélaginu. Það er bara spurning
um það hvernig þeim er eytt. Það
hefur sýnt sig með safnlánunum.
Þess eru dæmi að hjón hafa t.d.
getað lagt fyrir um það bil 4 þúsund
kr. á mánuði.
Það hefur sýnt sig, að mun
heppilegra er fyrir fólk að safna fyrir
stórum og dýrum hlutum, sem það
ætlar að kaupa sér, eins og t.d. lita-
sjónvarpi og slíkum hlutum, en að
kaupa upp á afborganir,” sagði Geir.
„Fólk talar mikið um að það
borgi sig ekki að safna peningum, en
nú er svo komið að það gerir það
svo sannarlega. Vextir af banka-
innistæðum eru orðnir svo hagstæðir
að þeir halda í við verðbólguna. Það
er hins vegar dýrt að fá lánaða
peninga,” sagði Geir.
Verðtryggðir
sparireikningar
— Á hvern hátt getur fólk bezt á-
vaxtað peningana sína í bankanum?
Á hvers konar reikninga er hentugast
að leggja?
„Fyrst verður að athuga hve lengi
þú getur bundið peningana þína í
bankanum. Svokallaðir verðtryggðir
sparireikningar sem bundnir eru til
sex mánaða eru hagstæðastir. Þeir
eru miðaðir við lánskjaravísitölu.
Við getum nefnt dæmi um innlegg
á slikum reikningi. Ef t.d. þúsund kr.
hefðu verið lagðar inn í september í
fyrra væru þær orðnar að 1494 kr.
núna. Það er áreiðanlega hægt að
kaupa jafnmikið fyrir þessar fjórtán
hundruð krónur núna og þúsund
krónurnar í fyrra, ef ekki meira.
Margir eru smeykir við efnahags-
ráðstafanir og treysta ekki
vísitölunni, en ég held að það sé alveg
ástæðulaust,” sagði Geir.
Bankainnistœður
ekki skattlagðar
— Eru bankainnistæður skatt-
lagðar?
,,Nei, það eru þær ekki. Banka-
innistæður eru hins vegar framtals-
skyldar. Nú er einmitt að renna upp
fyrir fólki sem hefur lagt fé sitt í hús-
eignir, að skatturinn af þeim er
orðinn svo mikill, að það dæmi er
ekki lengur hagstætt. Það barf að
greiða eignaskatt af „steinsteyp-
unni” en ekki af peningum i banka.
-A.Bj.
BANKAREIKNINGARNIR MEÐ
LÆGSTU VÖXTUNUM BEZTIR
ÞVÍ ÞEIR ERU VERDTRYGGDIR
Geir Þóröarson er til
hvernig hentugast sé
ávaxta „sitt pund”.
viötals i aðalbankanum f Bankastræti og ráöleggur fólki um
aó gera áætlun um heimilisfjárhaginn og hvernig bezt er að
DB-mynd Sig. Þorri.
Taflan hér að neðan sýnir okkur kemur fram að hagstæðustu banka-
hvernig vaxtakjörin eru. Takið eftir reikningarnir eru verðtryggðu
því að í viðtalinu vð Geir Þórðarson sparireikningarnir. Af þeim eru hins
Frá og meö 1. júni 1981 eru vextir sem hér segir:
Innlánsvextir: %
Sparisjóðsbækur.....................;............34,00
Ávisana- og hlaupareikn...........................19,00
Safnlánareikn.....................................34,00
Sp.sj.reikn. m/3 mán. upps.....................* 37,00
Sp.sj.reikn. m/12 mán. upps...................* 39,00
Verðtryggðir sparireikn...........................01,00
* Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári 30. júní og 31. des. ár hvert
vegar ekki greiddir nema 1,00%
vexti, en reikningarnir eru
verðtryggðir.
Útlánsvextir: %
Víxilvextir (forvex)..............................32,00
Skuldabréf (6,5 + 33,5)...........................40,00
Safnlán...........................................37,02
Hlaupareikn. (5 + 28).............................33,00
Lánskjaravísitölulán..............................02,50
Vanskilavextir á mán..............................04,50
Áætlanagerðin er nauðsynleg
Ef tekjurnar hrökkva ekki fyrir gjöldunum verður annaðhvort að minnka útgjöldin eða auka tekjurnar
sem fólk greiðir mánaðarlega.
Þannig ætti að vera auðveldara að
gera áætlun fram í tímann um hver
útgjöldin verða.
Nokkur fjöldi manna hefur nú um
þriggja ára skeið haldið svokallað
heimilisbókhald með okkur hér á
neytendasíðunni. Við höfum ekki
gert annað en brýna fyrir fólki að
skrifa niður útgjöld sín, fyrst og
fremst til þess aö athuga hvort það sé
hægt að spara á einhverjum liðum.
Reynsla fólks af þátttöku í heimilis-
bókhaldinu hjá okkur hefur yfirleitt
verið á þann veg, að það telur bæði
að um sparnað sé að ræða og auk
þess sé að því mikill hagur að vita í
hvað peningunum hefur verið eytt.
Áætlanagerðin
Eftir að búið er að halda heimilis-
bókhald í nokkurn tíma vita menn
svona nokkurn veginn hvað þeir fara
með í t.d. fæði, benzín, tryggingar,
fatnað, skemmtanir og hvað annað
Sýnishorn af útfyllingu
^ANUÐUR J/W. m. m w',
NNBORGANIR A.>:ti,i n| kai nv |mism A/K!T.I’n| KAt’.NV MISM A.+m.l'N'j HAI'NV MISM A.fTI.IN KAl’NV ImLSM. A.+rruN KAl’NV. MISM A.+.TU’N RAL’NV Ml
-aun 8*700 - 8*700 - 9100 - 8ÍOO- 97oo - 97oo-
Ub. og vextir af láni vala eigna (BillT tOXÍO- 2000- Zooo- 1" . eooo-
2oöt>
.ántaka Jttekt úr banka fZ.ooo- fo ooo - -
Xco- ,
ÍAMTAl-S INNMOKGANIR 8*00.- S0 4oo-
!C9X> 79JOO - 7/ /PO -
ÍTBORGANIR A.ETI.I N HAUNV MISM KYDSI.A A.KTU Nj KAl’NV MISM KYDSI.A , Á.KTI.IN1 KAl'.NV KYHSIA MISM A.+tun| haúnv KYDSÍA MISM A.+m.l N | RAl’NV : KYDSI-X MISM A.+TI.ÚN RAl'NV KYDSIjX Ml
jjnldheimtan -asteignagjiiTd T ryggingar ZOVO - *20.- . %OHO -. 2040- 2040 - 2040 ■ 2040-
4X0 - 8oo- • : 420- /560-
Rafmagn -fúagjöld Sími Zoo - 370- zoo - ] | 200 - 3fO- ' 3/0 - 200 xoo : >20- ZOC - 350 - —
Aaknftir, happdrœtti nfl. Dagvistun Henain ofl. v bils XfO - YOO - 9oo - X5D - 7oc — \ 9oo - xso - roo - 9oo - ' Zto . 700 - 9oo - 250 - Voo 7700 - ' X50 - 400 - 1700 —
Matur ofl. v heimilia Afh. og vextir af akuld Fatnaður 4ooo.~ , -yLCO - 4SDO - XTOO -, : 4500 - . 2000 4500 f/oo-: 5000 - 7700 - — —
Keyptur bill SparnaAur bfooo - 3000 ■ — —
.......... —
—
— 85 W' 8*700-' ?*.XbO -' :o9oo '8870 '
SAMTAI-S UTBORGANIR 7/060
STAÐA 1 HYK.JUN ZOO ■ 9° -.. . _... 42&}n 740 40 - 2YO
INNBORGANIR ÚTBOHGANIR I I $0*700- 8*700 -' 73XÍ.C-~ 70800 .'oOoo ‘ 79 7oo *>jpro ’ /7/00- /7060
MISMUNUR 9o - ; 4X090 /40 - 40 - , 270 -
skyndiradstafanih 1
FI-UTT 90- 4X090 f40- ^ *-/o 240 3/V-
Eyðublað fyrir áætlanagerðina er
hægt að fá hjá Verzlunarbankanum.
Þar er einnig að finna greinargóðar
leiðbeiningar. Þar segir m.a. frá
manni sem gerir greiðsluáætlun og
sýnt hvernig það er gert sex mánuði
fram í tímann. Skrá þarf niður helztu
greiðsluliði, bæði innborganir og út-
borganir. Innborganir geta verið
laun, tryggingabætur, leigutekjur,
afborganir og vaxtatekjur, sala
eigna, lántökur og úttektir.
Útborganir geta verið: skattar, út-
svar, fasteignagjöld, tryggingar,
húsaleiga, rafmagn, hiti, húsgjöld,
sími, blöð og áskriftir, happdrætti,
dagvistun, félagsgjöld, rekstur bíls,
matur og hreinlætisvörur, fatnaður,
eignakaup, afborganir og vextir og
sparnaður.
Þeir, sem ekki gera neinar
áætlanir, lifa bara eftir efnum og á-
stæðum hverju sinni, eins og það er
kallað, vita í rauninni aldrei hvar þeir
standa fjárhagslega. Þeir eru alltaf á
heljarþröminni fjárhagslega.
Ef einhver óvænt útgjöld koma á
daginn, eins og t.d. að það brotnar
hjá þeim vaskur eða eldavél eða
annað dýrt heimilistæki bilar
alvarlega er allt í voða. Ekki er neinn
varasjóður til þess að grípa til og
jafnvel verður að grípa til þess
óyndisúrræðis að taka rándýrt
bankalán til þess að bjarga sér úr
brýnustu vandræðunum.
Fyrir nokkrum árum, áður en
vextir voru færðir til raungildis og
áður en farið var að verðtryggja og
vísitölubinda bankalán, var hægt að
taka bankalán jafnvel til þess að lifa
af. Sú upphæð sem endurgreidd var
eftir nokkra mánuði eða jafnvel ár,
var ekki lengur í neinu samræmi við
þá upphæð sem fengin var að láni.
Er þetta meðal annars talin á-
stæðan fyrir því, að svo margir
efnalitlir einstaklingar gátu byggt yfir
sig húsnæði, sem er mun erfiðara
fyrir fólk að gera í dag. Sömu sögu er
að segja um lán sem námsmenn
fengu. Endurgreiðsluupphæðin var
ekki í neinu samræmi við þá upphæð
sem fengin var að láni.
Þá komum við aftur að nauðsyn
þess að gera fjárhagsáætlun. Ef í ljós
kemur að tekjurnar hrökkva ekki
fyrir útgjöldunum verður að gera
annað af tvennu, minnka útgjöldin
eða aukatekjurnar.
í möppunni sem viðskiptavinir
Verzlunarbankans fá, og áður er
vikið að, er einnig greinargóður listi
til þess að skrá skuldir sínar, hverjir
eru skuldareigendur, og hverjir eru
gjalddagar o.s.frv. Það getur verið
erfiðleikum bundið að halda reiður á
skuldhöfum ef skuldirnar eru marg-
ar. Þá eru ekki sendar út rukkanir
vegna ýmissa skulda eins og t.d.
vegna húsnæðismálaskulda.
Eins og allir vita getur það verið
dýrt að greiða ekki skuldir sínar á
réttum tíma.
Við viljum eindregið hvetja sem
flesta til þess að sinna heimilis-
bókhaldsgerðinni í ríkara mæli en
e.t.v. hefur verið gert. Við getum
ekki aðstoðað öðru vísi en við höfum
gert og svo auðvitað bent á bankana,
sem eru eða eiga að vera ráðunautar
fólks í peningamálum. -A.Bj.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981.
5
Götur fóru illa. Vatnselgurinn reif upp
slitlagið og liggja jarðstrengir berir eftir.
Ljóst er að tjónið nemur hundruðum
þúsunda króna.
DB-myndir Emil Thorarcnsen, EskiGrði.
VERSLIÐ I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
Stórtjón í vatnsveðrinu á Eskifirði:
AURSKRIÐA FÉLL ÚR
HLÍDUM FJALLSINS
— .atn og aur rann yf ir garða og inn í íbúðir
— Fólk flutt af Dvalarheimili aldraðra og manni naumlega
bjargað úr skurðgröf u
Gífurlegt vatnsveður var á Aust-
fjörðum á föstudag og um kvöldið féll
aurskriða úr hlíðum fjallsins fyrir ofan
Eskifjörð og olli miklu tjóni á húsum
og öðrum mannvirkjum í bænum. Aur-
skriðan kom í framhaldi af langvarandi
rigningartíð, en heita má að rignt hafi
stanzlaust á Eskifirði í þrjár vikur.
Um kl. 22.45 á föstudagskvöld urðu
íbúar við Botnabraut og Lambeyrar-
braut varir við það að vatn, aur og
leðja barði húsin að utan og vatnið
flæddi inn í húsin. Aurskriðan féll úr
hlíðum fjallsins úr 300 metra hæð og
rann í Lambeyrará. Áin flutti aurinn og
mölina niður í byggðina með þeim af-
leiðingum að áin stiflaöist rétt fyrir
ofan og innan Dvalarheimili aldraðra
á Eskifirði.
Vatnið, mölin og moldareðjan rann
á næstu hús og inn í og gegnum þá
garða sem fyrir voru. Mestur varð
skaðinn í kjallaraibúð Guðnýjar
Aradóttur, en þar leigir Guðmundur
Gíslason kennari. Guðmundur var að
horfa á bíómyndina I sjónvarpinu og
átti sér einskis ills von þegar aurlitað
vatn streymdi skyndilega inn i íbúðina
og með svo miklum krafti að með
ólíkindum var. Mestöll íbúðin var
undirlögð 20—30 cm aurlagi.
Vatnið og aurinn flæddi einnig inn í
fleiri hús og garða en ekki eins alvar-
lega og í íbúð Guðmundar, en ljóst er
að tjón er talsvert, bæði á húsum og
görðum.
Af öryggisástæðum voru íbúar
Dvalarheimilis aldraðra fluttir þaðan á
hótelið þar sem þeir voru um nóttina.
Talið er að bílskúr fyrir ofan dvalar-
heimilið hafi komið í veg fyrir að verr
færi. Hann braut aðalstrauminn, sem
ella hefði farið á efri hlið heimilisins.
Lambeyrará hljóp síðast árið 1946.
Þegar rignir eins lengi og nú hefur gert
verður hlíðin fyrir ofan bæinn full af
lækjum. Fleiri tugir lækja verða til.
Mikið tjón varð á götunum
Lambeyrarbraut og Botnabraut. Áskell
Jónsson bæjarstjóri sagði að tjónið
vegna þessa vatnsveðurs skipti
hundruðum þúsunda, en það verður
nánar metið síðar.
í tilefni þess að 29. september 1981 eru 75 ár liðin frá
opnun símaþjónustu hér á landi verður jarðstöðin
Skyggnir við Úlfarsfell til sýnis almenningi þann dag kl.
13.00 til 17.00. Einnig verðurhún tilsýnis 3. og 4. október
nk. á sama tíma.
Póst- og símamálastof nunin.
Vatnið bar með sér aur og möl eftir götum bæjaríns og inn I hús. Menn höfðu I nógu
að snúast I björgunarstörfum. Hér má sjá lögreglubll og traktorsgröfu I miðjum
straumnum aðfaranótt laugardagsins.
Þá varð það óhapp inni i
Eskifjarðará að skurðgrafa í eigu Gylfa
Gunnarssonar lenti ofan í djúpum
pytti. Fyrir snarræði ökumanns tókst
honum að koma í veg fyrir að grafan
færi á hliðina. Þarf vart að spyrja að
leikslokum hefði það gerzt.
ökumanninum tókst að komast upp á
þak gröfunnar og var línu kastað til
hans og honum bjargað.
Björgunarsveitarmenn og sjálf-
boðaliðar unnu aðfaranótt laugardags
og á laugardag við að bjarga þvi sem
bjargaðvarð. Emll, Eskifirði.
4 gerdir
Stórar flöskur,
360 g
Nýtt, gæöa-
sjampó með
góðri lykt
— fyriralla
fjölskylduna.
Gott verð.
Spurðu
um
KOMMÓÐUR
| * * * ^
;
' -
* 4
«
Litir fura, tekk og brúnt
B. 80 cm, d. 40 cm, h. 48—101 cm
Þriggja skúffa, kr. 528^)0
Fjögurra skúffa, kr. 6364»
Rmm skúffa, kr. 696,00
Takmarkaóar birgóir i þessu hagstæða verði. Einmg
fyrirllggjandl speglar, kertastjakar og ýmsar smíða-
jámsvörur. Bókahillur og skatthol.
Sex skúffu
Kr. 797,00
8637-5997
Háteigsvegi 20 Simi 12811
Opið laugardag 10—18
Dl-li