Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 18
18 I DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir UVERPOOL SIGRAR EKKI ÞRÁH FYRIR YF1RBURDI —jafntefli West Ham og Uverpool í Lundúnum og Ipswich komið í efsta sæti 1. deildar Gifurleg úrkoma var á Bretlands- eyjum aðfaranótt laugardagslns og fram eftir degi svo vellir voru viða mjög erfiðir, þegar sjöunda umferð deildakeppninnar var háð. En sólin náði að senda geisla sina gegnum skýjaþykknið um það bil er leikirnir hófust og þeir voru háðir i fegursta veðri. Tveimur leikjum á Skotlandi var þó frestað vegna vatnselgsins og Skotar voru þvi á sama báti hvað það snerti og Austfirðingar. Aðalleikurinn á Englandi var á Uþton Park í Austurbæ Lundúna- borgar, þar sem efsta liðið í 1. deild, West Ham. fékk Evrópumeistara Liverpool í heimsókn. Bráðskemmtilegur leikur, þar sem Evrópumeistararnir gáfu lengstum tóninn. En eins og áður á lciktíma- bilinu gekk þeim illa að finna leiðina í markið þrátt fyrir snilldarleik úti á vellinum. Jafntefli 1—1 og jöfnunarmark Liverpool var heppnis- mark á 78.min. Phil Parkes, hinn snjalli markvörður West Ham, slasaðist í leiknum. Var draghaltur og gat ekki spyrnt frá marki — John Lyall, stjóri West Ham, var meira að segja að hugsa um að taka hann út af. Og á 78. mín. gaf Parkes Liver- pool mark. Alan Kennedy lék upp vinstri kantinn og gaf vel fyrir markið. Parkes greip knöttinn en missti hann til David Johnson, sem þakkaði gott boð og skoraði, 1—1. Þarna var Johnson heppinn því hann hafði verið slakastur leikmanna Liverpool. Það kom vel í Ijós i leiknum að West Ham — án landsliðsmannsins Trevor Brooking — er enn ekki í flokki með aibeztu liðum Englands. Það var talsverður munur á getu liðsins og Liverpool á laugardag. í fyrri hálfleiknum var Liverpool mun betra liðið. Ray Kennedy átti stang- arskot og það var svo mjög gegn gangi leiksins að West Ham náði forustu á 28. mín. Þeir léku þá sam- an Geoff Pike og Alan Devonshire. Eftir nokkrar skiptingar þeirra á milli gaf Devonshire fyrir mark Liverpool til Pike, sem skoraði með þrumufleyg. í síðari hálfleiknum varð þungi sóknar Liverpool enn meiri. Jöfnunarmarkið lá í loftinu en það kom þó á heldur slysalegan hátt fyrir Lundúnaliðið. Eftir markið tók West Ham við sér. Tvisvar munaði litlu að West Ham skoraði. Á 80. mín. fékk liðið aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Bruce Robbelaar, markvörður Liverpool, varði, en missti knöttinn i horn. Eftir hornspyrnuna skallaði fyrirliði West Ham, Billy Bonds, rétt framhjá marki Liverpool. Fjórum mín. síðar komst miðherji WH, David Cross, frír að marki Liverpool en Grobbelaar varði. Lokakaflinn var það bezta sem West Ham sýndi en áður hafði veruleg taugaspenna einkennt leik liðsins. Liðin voru þannig skipuð. West Ham. Parkes, Lampard, Stewart, Bonds, Martin, Allen, Devonshire, Pike, Neighbour, Cross og Goddard. Liverpool. Grobbelaar, Neal, A. Kennedy, Hansen, Thompson, R. Kennedy, Souness, McDermott, Lee, Johnson og Dalglish. Þá eru það úrslitin á laugardag. 1. dcild Arsenal-Man. Utd. 0—0 Aston Villa-Birmingham 0—0 Coventry-Southampton 4—2 Everton-WBA 1—0 Ipswich-Leeds 2—1 tvlan. City-Tottenham 0—1 Middlesbro-Stoke 3—2 Nottm. For.-Brighton 2—1 Swansea-Sunderland 2—0 West Ham-Liverpool 1 — 1 Wolves-Notts. County 3—2 2. deild Barnsley-Cardiff 0—2 Blackburn-Leicester 0—2 Chelsea-Norwich 2—1 C. Palace-Shrewsbury 0—1 Derby-QPR 3—1 Grimsby-Sheff. Wed. Luton-Watford Newcastle-Orient Oldham-Cambridge Rotherham-Bolton Wrexham-Charlton 3. dcild Bristol Rov.-Lincoln Carlisle-Oxford Doncaster-Brentford Fulham-Chester Gillingham-Exeter Huddersfield-Southend Millwall-Burnley Newport-Preston Plymouth-Chesterfield Portsmouth-Bristol City Swindon-Reading Walsall-Wimbledon 4. deild Aldershot-Mansfield Blackpool-Hull Bournemouth-Rochdale Bradf ord-Colchester Bury-Darlington Hartlepool-Halifax Northampton-Hereford Peterbro-Crewe Port Vale-Stockport Sheff. Utd.-Scunthorpe Tranmere-Wigan Torquay-York Skozka úrvalsdeildin Airdrie-Aberdeen Celtic-Partick Dundee Utd.-Ran—Ts Morton-Dundee St. Mirren-Hiberman Celtic átti í basli með neðsta liðið, Partick. Skozki landsliðsmark- vörðurinn Allan Rough varði mark Partick af miklum glæsibrag. I siðari hálfleiknum tókst þó Charlie Nicholas og Tommy Burns að koma knettinum í markið hjá honum. Ipswich á toppinn „Ipswich verður ekki lengi á toppnum ef Frans Thijssen verður lengi frá,” sagði fréttamaður BBC eftir að Ipswich hafði sigrað Leeds 2—1 á heimavelli og komizt við það í efsta sætið. Leeds var einnig án Allan Brazil og Russell Osman. Allir meiddir. Ipswich hafði þó undirtökin gegn slöku liði Leeds mest allan leikinn. Tókst illa að nýta það og á 27. mín. náði Leeds forustu með marki Peter Barnes. Áður höfðu Miihren og O’Callaghan verið nálægt að skora fyrir Ipswich. Það var ekki fyrr en á 63. mín. að Terry Butcher, miðverðinum hávaxna, tókst að jafna með skalla eftir hornspyrnu. Á 76. mín. skoraði Eric Gates sigur- markið, einnig með skalla. Ipswich- liðið allt annað en sannfærandi í leiknum þrátt fyrir sigurinn. Swansea var einnig talsvert frá sínu bezta á heimavelli en tókst þó að hala þrjú stig í land enda lék Sunder- land mjög illa. Markverðirnir þurftu varla að verja skot í fyrri hálfleik. í þeim síðari lagaðist leikur Swansea talsvert. Allan Curtis skoraði á 56. mín. eftir undirbúning Bob Latchford og Leighton James. Siðara markið skoraði James úr vítaspyrnu. Swansea, sem leikur nú í fyrsta skipti í 1. deild, hefur nú 15 stig eins og West Ham en bæði liðin komust upp í 1. deild í vor. Heppnissigur Forest Nottingham Forest er komið í fjórða sætið og vann enn einn heppnissigurinn á laugardag. Fékk þá Brighton í heimsókn og Gordon Smith náði forustu fyrir Brighton á 10. mín. Tvívegis í fyrri hálfleik varð Peter Shilton að verja af snilid til að koma í veg fyrir mörk Brighton. 1 sæðari hálfieiknum lagaðist leikur Forest en liðið átti alls ekki skilið að sigra. Kenny Burns jafnaði í 1—1 og þótti það mark heldur vafasamt. Línuvörður hafði veifað en skipti svo um skoðun. Mark var dæmt þrátt fyrir áköf mótmæli leikmanna Brighton. Tveimur mín. fyrir leikslok Kevin Keegan, fyrirliði enska landsliðsins og Southampton, skoraði tvfvegis f Coventry á laugardag. Er nú markhæstur I 1. deild ásamt Paul Goddard, West Ham, með sex mörk. DB-mynd Bjarnleifur. skoraði Ian Wallace sigurmarkið með skalla næstum á marklínunni. Skemmtilegur leikur var í Coventry. Kevin Keegan náði fljótt forustu fyrir Southampton en Steve Hunt jafnaði fyrir heimaliðið á 20. mín. eftir að varið hafði verið frá Steve Whitton. í síðari hálfleik komst Coventry í 3—1 með tveimur mörkum Gary Thompson. Keegan minnkaði muninn í 3—2 úr vita- spyrnu sem dæmd var á Hunt fyrir að handleika knöttinn innan vitateigs. Hunt bætti það upp með því að skora fjórða mark Coventry. Meistarar Aston Villa áttu mjög í vök að verjast í fyrri hálfleik gegn ná- grönnum sínum, Birmingham. Jimmy Rimmer kom þó í veg fyrir mörk. í síðari hálfleiknum náði Villa hins vegar yfirtökunum án þess að takast að knýja fram sigur. Gordon Cowans var miðherji með Peter Withe, svo mikil meiðsli eru hjá meisturunum. Withe var klaufi að tryggja Aston Villa ekki bæði stigin jafnaði. Notts County komst aftur yfir með marki Mark Goodwin, en Eves og Peter Daniel svöruðu fyrir Úlfana. Terry Cichrane náði forustu fyrir Middlesbrough á 2. mín. Peter Griffiths jafnaði en heimaliðið komst aftur yfir í leiknum með marki Billy Ashcroft. Stoke jafnaði, Lee Chapman, en það nægði ekki. David Shearer skoraði sigurmarkið. Markhœstir í l.deiid Þeir Paul Goddard, West Ham og Kevin Keegan eru nú markhæstir í 1. deild með 6 mörk. Síðan koma Tony Evans, Birmingham, lan Wallace, Forest, Lee Chapman, Stoke, og Bob Latchford, Swansea, allir með fimm mörk. Í 2. deild vann Sheff. Wed. góðan sigur í Grimsby. Terry Curran skoraði og Sheff. Wed. er efst með 16 stig. Luton vann stórsigur á ná- grönnum sínum frá Watford, komst í 3—0 fljótt í leiknum. Moss skoraði tvívegis úr vítaspyrnum, Stein hin tvö mörkin. Kevin Hector skoraði tvö af mörkum Derby gegn QPR og Emlyn Hughes hefur dregið fram skóna á ný. Lék með Rotherham í 2—0 sigrinum á Bolton. í 3. deild er Reading efst með 15 stig og í 4. deild er Bournemouth David Webb efst með 16 stig. Bradford Roy McFarlands í öðru sæti með 15 stig. Staðan er nú þannig: Emlyn Hughes, fyrrum fyririiöi Englands og Liverpool, hefur dregið fram knattspyrnuskóna á ný. Lék með Rotherham á laugardag. Hann er framkvæmdastjóri liðsins. þegar hann fékk knöttinn frír sex metra frá marki undir lokin. Miðherjinn stóri hitti ekki knöttinn. Áhorfendur í Birmingham, þessari annarri stærstu borg Englands, voru 40 þúsund. Hins vegar aðeins 12.500 í Coventry. Tottenham vann á Maine Road Man. City virðist ekki ætla að gera miklar rósir þrátt fyrir stór orð stjórans John Bond. Liðið tapaði á heimavelli fyrir Tottenham. Mark Falco skoraði sigurmark leiksins. Hitt Manchesterliðið, Man. Utd., náði jafntefli í Lundúnum gegn Arsenal. Ekkert mark skorað í slökum leik. Leikmenn United hafa þó eflaust verið ánægðir með eitt stig. Liðið hefur ekki sigrað á Highbury í 13 ár. Framan af var Arsenal betra liðið og leikmenn liðsins fengu góð færi, sem þeir mis- notuðu. Voru svo heppnir að fá ekki á sig mark í lokin. Gary Birtles hefði átt að skora fyrir United og á lokamínútunni átti hinn miðherji liðsins, Frank Stapleton, skot í stöng. George Best var meðal áhorfenda á Highbury. Áritaði nafn sitt fyrir marga en hvarf svo á braut löngu áður en leiknum lauk. Best er nú 35 ára og sá orörómur gengur að hann gerist nú í vikunni leikmaður á ný hjá Man. Utd. Var þar lengi ein skærasta stjarnan í miklu stjörnuliði Sir Matt Busby. Þær fréttir berast líka frá Manchester að Busby, sem er forseti stjórnar Man. Utd., sé allt annað en ánægður með nýja stjórann Ron Atkinson og formanninn Edwards. Um aðra leiki i 1. deild er það að segja að Everton hlaut öll þrjú stigin gegn WBA með marki fyrirliðans Mick Lyons. Úlfarnir og Middles- brough komust af botninum með heimasigrum. Bæði sigruðu, Notts County og Stoke, með oddamarkinu af fimm og sigurmörkin skoruð rétt fyrir leikslok. George Berry, mið- vörður Úlfanna, sendi knöttinn i eigið mark í byrjun. Mel Eves Ipswich l.deild 7 5 2 0 15—7 17 West Ham 7 4 3 0 15—6 15 Swansea 7 5 0 2 15—10 15 Nottm. For. 7 4 2 1 11—7 14 Tottenham 7 4 0 3 10—10 12 Man. City 7 3 2 2 11—8 11 Everton 7 3 2 2 9—9 11 Coventry 7 3 1 3 14—13 10 Southampton 7 3 1.3 13—12 10 Brighton 7 2 3 2 9—8 9 Man. Utd. 7 2 3 2 6—5 9 Liverpool 7 2 3 2 6—6 9 Arsenal 7 2 3 2 4—4 9 Birmingham 7 2 2 3 10—10 8 Stoke 7 2 1 4 13—13 7 A. Villa 7 j 4 2 7—7 7 Notts. Co. 7 2 1 4 10—15 7 Middlesbro 7 2 1 4 7—13 7 Wolves 7 2 1 4 5—11 7 Sunderland 7 I 3 3 6—11 6 WBA 7 1 2 4 5—7 5 Leeds 7 1 2 4 6—16 5 Sheff. Wed 2. deild 7 5 11 9—2 16 Luton 7 5 0 2 15—10 15 Norwich 7 4 1 2 11 — 11 13 Watford 7 4 1 2 8—8 13 Oldham 6 3 3 0 10—4 12 Blackburn 7 4 0 3 8—7 12 Leicester 7 3 2 2 9—8 11 Barnsley 7 3 1 3 10—5 10 Chelsea 6 3 1 2 9—8 10 Grimsby 7 3 1 3 9—8 10 Rotherham 7 3 1 3 8—8 10 Derby 7 3 1 3 11—12 10 Shrewsbury 7 3 I 3 8—10 10 QPR 7 3 0 4 10—10 9 C. Palace 7 3 0 4 5—5 9 Newcastle 6 3 0 3 5—6 9 Cardiff 6 2 1 3 8—10 7 Charlton 6 2 1 3 6—8 7 Cambridge 7 2 0 5 7—9 6 Wrexham 6 1 1 4 4—8 4 Orient 6 1 1 4 3—7 4 Bolton 6 1 0 5 3—11 3 Skozka úrvaisdeildin Celtic 5 5 0 0 14—4 10 St. Mirren 5 3 1 1 8—7 7 Aberdeen 5 3 0 2 9—7 6 Morton 5 3 0 2 5—4 6 Dundee Utd. 4 2 0 2 10—6 4 Hibernian 5 1 2 2 5—5 4 Rangers 4 1 2 1 4—5 4 Dundee 5 2 0 3 9—11 4 Airdrie 5 1 1 3 8—15 3 Partick 5 0 0 5 2—10 0 -hsim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.