Dagblaðið - 28.09.1981, Qupperneq 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981.
Qart ar ráfl fyrir hsagri norflauatan-
átt um aNt land, skýjuflu og úrkomu á
Auatur- og Norfluriandi an láttskýj-
uflu á Suflur- og Suflvasturiandi.
Kl. 6 var 1 Raykjavik austan 1, látt-
skýjafl og 1; Gufuakálar austan 5,
skýjafl og 6; Akurayri hasgviflri,
skýjafl og 2 stig; Raufarhflfn norfl-
austan 1, skýjafl og 3 stig; Daiatangi
norflan 5, skýjafl og 4; Hflfn norfl-
norflvastan 4, láttskýjafl og 3; Stór-
hflffli austan 1, láttskýjafl og 6.
í Þórshflfn var rigning og 11; Kaup-
mannahöfn þokubakkar og 10; Osló
skýjafl og 13; Stokkhólmur þoka og
15; London láttskýjafl og 8; Hamborg
láttskýjafl og 8; Parfs skýjafl og 11;
Madrid láttskýjafl og 10; Ussabon
rigning og 13 og Naw York láttskýjafl
og21.
Andlát
tí:; '
Gfsll Sighvatsson frá Sólbakka lézt 19.
september 1981. Hann var fæddur 4.
mai 1889 I Gerðum í Garði. Foreldrar
hans voru Ingibjörg Gísladóttir og Sig-
hvatur Gunnlaugsson, saman eign-
uðsut þau fjögur börn en Gisli átti eina
hálfsystur sem dó á unga aldri. Fyrri
kona Gísla var Steinunn S. Steinsdótt-
ir, eignuðust þau 4 börn. Eftir lát
hennar kvæntist hann Helgu Steins-
dóttur, þau eignuðsut einn son. Gisli
stundaði sjósókn í mörg ár, hann lærði
prentiðn, var formaður ýmissa félaga
og fulltrúi á fiskiþingum um margra
ára skeið. Gísli var jarðsunginn frá Út-
skálakirkju laugardaginn 26. septem-
ber.
Óalfur Steinsson á Barkarstöðum lézt
10. september. Hann var fæddur 23.
marz árið 1900 sonur Sólveigar
Guðmundsdóttur og Steins Magnúss-
sonar, þau eignuóust 5 börn. Ólafur
var jarðsunginn iaugardaginn 26.
september.
Valgerður Andrésdóttir, Framnesvegi
5, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju i dag, 28. september, kl. 13.30.
Ársæll Kristinn Kjartansson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 29. september kl. 15.
Þorleifur Bjarnason fyrrverandi náms-
stjóri, Kolgerði 3 Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 29. september kl. 14.45.
Elisabet J. Brand, Barmahlíð 48
Reykjavík, andaðist 18. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Bjarni H. Sigurðsson bólstrari, Mel-i
gerði 22 Kópavogi, andaðist í Borgar-
spítalanum 25. september.
Axel Björnsson bryti, Hverfisgötu 59
Reykjavík, lézt 24. september.
Hafsteinn Bergþórsson, Marargötu 6
Reykjavík, lézt 25. sept.
Guðbrandur J. Jónasson, Glaðheimum
8 Reykjavík, lézt 24. september.
Kristfn Viktoria Gisladóttir verður
jarðsett frá Útskálakirkju kl. 14.
Dagnýr Bjarnleifsson skósmiður
veðrur jarðsunginn frá Fossvogskap-
ellu kl. 13.30 þriðjudaginn 29. septem-
ber.
Tilkynningar
Nýlega er komin út
Saga Húsavfkur
I. bindi. aöalhöfundur verksins, Karl Kristjánsson
fyrrum alþingismaöur, lézt 1978, áöur en handrit
hans var fullbúið til prentunar, en Kristján Karis-
son og Ingimundur Jónsson hafa séð um útgáfu
þessa bindis.
Bókin er í köflum. Fyrsti kaflinn er mikil ritgerö
eftir Sæmund Rögnvaldsson og heitir Húsavik fyrri
tima, með undirfyrirsögninni: Verzlun, brennisteins-
nám og kirkja. Húsatal nefnist langur þáttur, þar
sem lýst er hverju húsi í kaupstaðnum. Yfirleitt er
mikil persónusaga i bókinni, svo sem þættir af
sveitarstjórnar- og bæjarstjórnarmönnum, læknum,
prestum, sýslumönnum og bæjarstjórum. Alllangir
þættir eru um Kaupfélag Þingeyinga og um Funda-
félag Húsvíkinga. Ýmsir fleiri kaflar eru í bókinni.
Hún er prýdd miklum fjölda mynda af fólki, mann-
virkjum og staðháttum.
Húsavíkurkaupstaður gefur bókina út. Hún er
prentuð í prentverki Guðjóns Ó. Almenna bóka-
félagiö annast drcifingu. Með þessu bindi fylgir
yfirlit um efni II. bindis sem kemur síðar.
Amerískir vísinda-
styrkir í boöi
J. E. Fogarty-stofnunin í Bandarikjunum býður ár-
lega fram styrki handa crlendum vísindamönnum til
rannsóknastarfa við visindastofnanir þar í landi.
Styrkir þessir eru boönir fram á alþjóðavettvangi til
rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina
(biomedical science). Hver styrkur er veittur til 6
mánaða eða 1 árs.
Á þessu ári veitti stofnunin eftirgreindum tveimur
islenzkum vísindamönnum styrki til eins árs og eru
þeir fyrstu íslendingarnir sem hljóta slíka styrki:
Einar Árnason, PhD., Hffræðingur, hlaut styrk til
rannsókna í stofnerfðafræði og þróunarfræði við
Harvard-háskóla í Boston.
Einar Stefánsson, Iæknir, hlaut styrk til rann-
sókna á sviði augnlækngina við Duke-háskólann i
North Carolina.
Menntamálaráðuneytið auglýsir árlega eftir um-
sóknum um styrki þessa og er skilafrestur til 20.
október.
Vísitala
byggingarkostnaöar
Hagstofan hefur reiknað vísitölu byggingar-
kostnaðar eftir verðlagi í fyrra hluta sept. 1981
og reyndist hún vera 811,23 stig, sem lækkar í 811
stig (október 1975 = 100). Gildir þessi vísitala á
tímabilinu október-desember 1981. Samsvarandi
vísitala miðuö við eldri grunn er 16108 stig og gildir
hún einnig á tímabilinu október-desember 1981, þ.e.
til viðmiðunar við visitölur á eldri grunni (1.
október 1955 = 100).
Samsvarandi vísitölur reiknaðar eftir verðlagi i
fyrrahluta júní 1981 og með gildistíma júli-
september 1981 voru739stig og 16477 stig. Hækkun
frájúnitilseptember 1981 er 9,7*70.
23. ársþing
ungtemplara
Dagana 12. og 13. september sl. héldu ísl. ung-
templarar 23. ársþing sitt að Skógum undir Eyja-
fjöllum. Þingiö sátu 20 fulltrúar. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa var fjallaö um ýmis mál á þinginu,
s.s. friðarmál og frammistöðu æskulýðssamtaka í
forvarnarstarfi í vlmuefnamálum. Voru ályktanir
um þessi mál m.a. samþykktar i þinglok.
í ársskýrslu samtakanna kom fram að veruleg
starfsemi varsl. ár.
Má nefna í því sambandi aö á vegum
samtakanna voru haldin námskeið með nemendum
7.-9. bekkja í grunnskólum Reykjavíkur og ná-
grennis sl. vetur undir heitinu Veröld án vimu.
Af framtíðarvcrkenum samtakanna má nefna
þátttöku í alheimsmóti ungtemplara, sem haldiö
verður í Bergen í Noregi næsta sumar. Slíkt mót
verður síðan haldiö á Islandi 1984.
Formaður samtakanna var endu»-kjörinn Árni
Einarsson.
Hóraðsbókasafn
Kjósarsýslu
Gagnfræðaskólanum í Mosfellssveit simi 66822,
opið mánudaga til föstudaga frá kl. 16—20, sögu-
stund fyrir börn á aldrinum 3—6 ára laugardaga frá
kl. 10.30—11.30
Mmningar$p|dld
JVIinningarkort Sambands
dýraverndunarfélaga íslands
fást á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVlK: Loftið Skólavörðustig 4. Verzlunin
Bella Laugavegi 99. Bókaverzlun lngibjargar Einars
dóttur Kleppsvegi 150, Flóamarkaður SDl, Laufás
vegi 1, kjallara, Dýraspitalinn Víðidal.
KÓPAVOGUR: Bókabúðin Veda Hamraborg.
HAFNARFJÖRÐUR: Bókabúð Olivers Stcins
Strandgötu 31.
AKUREYRI. Bókabúð Jónasar Jóhannssonar Hafn
arstræti 107.
VESTMANNAEYJAR: Bókabúðin Heiðarvegi 9.
SELFOSS: Engjavegur 79.
UM
HELGINA
UM ENDURMINNINGAR
0G LANGL0KU
Laugardagssyrpan auðveldaði mér
tiltektir og leiðinda hreingerningar á
ymdislegum sólardegi, sem auðvitað
varð mun eftirsóknarverðari til úti-
veri fyrst ég gat ekki látið slíkt eftir
mér. I kjölfar hennar fylgdi frásögn
gamals og heitins fjölskylduvinar,
Ingólfs Gíslasonar læknis, sem ég ber
lán til að muna eftir, þótt óljós sé
minningin sú.
Sjúkrasaga Guðna gamla, með
sullinn í lifrinni, minnti mig á svo
margt sem liðið er án þess að við
höfum borið gæfu til þess að læra af
því. í þá daga bar einstaklingurinn
ábyrgð, fann fyrir henni og axlaði
hana, því hann átti ekki annars kost.
Ingólfur heitinn Gíslason var náinn
vinur föðurafa mins og saga hans
kom mér til þess að minnast tiltölu-
lega nýlátinnar móðurömmu minnar,
Hildar Jónsdótturljósmóður.
Amma starfaði við svipaðar að-
stæður — ein. Á hennar herðum
hvídli öll ábyrgðin, ekki hluti hennar.
Hún tók á móti 135 börnum og missti
aldrei konu af barnsförum — og ein-
ungis eitt barn. Hjá henni rifnaði
aldrei kona, enda sagði hún mér að
það væri óþarft; sagði mér nákvæm-
lega hvers vegna og hvernig mætti
varna því.
Hún var nefnilega engin fæðingar-
deild, hún amma, þar sem ábyrgðinni
er dreift og samtryggingin er í háveg-
um höfð. Hún stóð ein með tvö líf í
höndunum hverju sinni, móður og
barns. Hún hætti lífi sinu yfír illfær
stórfljót og margir lifa einungis
hennar vegna — en vanþakklæti eru
heimsins laun. Ekkert þessara ljósu-
barna minntist hennar að löngum
lífsferli gengnum.
Jónasi Jónassyni kann ég þakkir
fyrir að skreppa með mig og aðra að
Klaustri, því min móðurætt er úr
Skaftafellssýslunum og að Klaustri
bjuggu afi minn og amma — og
þaðan vann hún flest sín líknarstörf.
Það er sérkennilegur og angurvær
blær yfir nöfnunum er þarna skutu
upp kollinum: Systrastapi; Systra-
vatn Hjónasteinn; Sönghellir — að
ógleymdum eldprestinum okkar sem
starfsbróðirinn, séra Sigurjón Einars-
son, minntist fallega.
Blærinn áðurnefndi er umfram allt
sérkennilegur fyrir það að hann
minnir á óumflýjanleika dapurra ör-
laga. Svo fjarska margt í okkar sögu
er blóði drifið á einn eða annan veg
— og það leiðir hugann að kvik-
myndinni um Snorra Sturluson.
Frá barnsaldri hef ég aldrei getað
afborið sögu okkar þótt ekki þyki
slíkt gott til frásagnar; þessa dáðu
sögu um blóði drifinn uppruna. Þar
beið hið góða, mannúðlega og rétta
ávallt ósigur fyrir grimmdinni og
drápseðlinu. Hið illa hrósaði ávallt
sigri þótt stundum væri hann skamm-
ur.
Það er mér raunar ráðgáta hvernig
hægt er að gera svona stórbrotið efni
þurrt og heimildamyndarlegt. Þegar
upp er staðið, finnst mér lítið hafa
lagzt fyrir góðan dreng, svo ég steli
nú úr umsögn Ingólfs Arnarsonar, er
hann frétti lát Hjörleifs.
Myndin llnnst mér vera óskapleg
langloka. Hefði nú ekki mátt segja
minna og gera betur?
Minningarkort Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Köpavogi
eru seld á skrifstofunni að Hamraborg I. sími 45550.
og cinnig i Bókabúðinni Vedu og Blóniaskálanum við
Nýbýlaveg.
Afmæli
70 ára er í dag Bogl Matthiasson vél-.
stjóri, Litlu-Hólum, Vestmannaeyjum.
Hann er fæddur að Jaðri, Eyjum. For-
eldrar hans voru Matthías Finnbogason
og Sigríður Þorsteinsdóttir, eignuðsut
þau átta börn. Árið 1939 kvæntist Bogi
Rósu Bjarnadóttur frá Eskifirði, þau
eignuðust þrjú börn. Bogi er vélstjóri
hjá tsfélagi Vestmannaeyja, hefur hann
starfaðþarí 50 ár.
90 ára er 1 dag Óskar Eyjólfsson frá
Hvammi. Foreldrar hans voru hjónin
Guðbjörg Jónsdóttir og Eyjólfur Guð-
mundsson, eignuðust þau 10 börn og er
Óskar sá eini af þeim systkinum sem
eftir lifir. Óskar hefur dvalizt á Landa-
kotsspítala síðastliðin tæp þrjú ár,
hannerástofu217.
til um Ijóðabækur. Fyrir hana hlaut hún m.a.
bókmenntaverðlaun norrænna kvenna 1979. 1
bókinni fjallar Márta opinskátt um hjónaband sitt og
rithöfundarins Henriks Tikkanens, drykkjusýki hans
og áhrif hennar á börnin og allt fjölskyldulífið.
Bókin hefur verið þýdd á mörg tungumál og eftir
henni hafa veríð gerðar margar mismunandi leikgerðir
fyrir leiksvið og sjónvarp. Ástarsaga aldarinnar
nefnist bókin I islenskri þýðingu Kristínar Bjarna-
dóttur leikkonu er út kom sl. vor, en Kristín hefur nú
ásamt Kristbjörgu Kjeld gert leikgerð þá, sem
frumsýnd verður í Þjóðleikhúsiu á naestunni og leikur
hún einnig einleikshlutverkið.
Nýjasta bók Mártu Tikkanen „Mörkret som ger
gládjen djup" kom út sl. vor. Hún skiptist í tvennt: í
fyrri hlutanum er brugðið upp myndum úr lífi ellefu
bama móður um miðja siðustu öld, og einkum
sambandi hennar við einn soninn (skáldið Josef Julius
Wecksell). í siðari hlutanum fjallar Márta um
samband sitt vifl sjúkan son sinn. 1 bókinni koma
fram ýmsar hliðstæður i iifi þessara tveggja kvenna,
þrá þeirra eftir að ná sambandi viö þann sem þær
elska og vonbrigði er það mistekst.
Eins og fyrr segir les Márta Tikkanen úr verkum
sinum þriðjudaginn 29. september og hefst dagskráin
kl. 20.30.
Sumarmynda-
keppni DB:
Þau mistök urðu við vinnslu laugar-
dagsblaðsins, þar sem greint var frá úr-
slitum Sumarmyndakeppni DB 1981,
að þess var ranglega getið á tveimur
stöðum að Baldur Ólafsson hefði
hlotið 2. verðlaun í keppninni um lit-
myndir.
Eins og rækilega var tekið fram á
forsíðu og í inngangi í opnu var það
Vigfús Sigurðsson sem hreppti 2.
verðlaun fyrir Hringaná í hringnum.
Baldur og Vigfús og aðrir lesendur
eru beðnir margfaldrar velvirðingar á
þessum mistökum.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 178 Ferflamanna-
— 28. septemberkl. 09.15. gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7.838 7.860 8.646
1 Steriingspund 13.854 13.893 15.282
1 Kanadadollar 6.514 6.533 7.188
1 Dönsk króna 1.0824 1.0654 1.1719
1 Norsk króna 1.3085 1.3122 1.4434
1 Sœnskkróna 1.3891 1.3930 1.5323
1 Rnnsktmark 1.7457 1.7506 1.9257
1 Franskur franki 1.3909 1.3949 1.5344
1 Belg. franki 0.2038 0.2044 0.2248
1 Svissn. franki 3.9190 3.9300 4.3230
1 Hollenzk florina 2.9882 2.9968 3.2963
1 V.-þýzkt mark 3.3244 3.3337 38871
1 itölsk líra 0.00868 0.00660 0.00728
1 Austurr. Sch. 0.4727 0.4741 0.5215
1 Portug. Escudo 0.1196 0.1199 0.1319
1 Spánskur peseti 0.0809 0.0811 0.0892
1 Japansktyen 0.03382 0.03391 0.03730
1 frskt Dund 12.110 12.144 13.358
SDR (sérstflk dráttarréttlndl) 01/09 8.8844 8.9096
Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190.
Bókmenntír
Márta Tikkanen í
Norræna húsinu
Norræna húsiö á von á góðum gesti þar sem er
finnlands-sænska Ijóðskáldiðog rithöfundurinn Márta
Tikkanen. Hún er mörgum Islendingum að góðu
kunn fyrir bækur sínar, einkum skáldsöguna „Mán
kan inte váldtas” og ljóðabókina „Arhundradets
kárlekssaga”. Márta mun lesa úr verkum sínum í
Norræna húsinu þriðjudagskvöldið 29. september.
Márta Tikkanen hefur lengi starfaö sem kennari og
blaðamaður, hún er rektor Svenska arbetarinstitutet í
Helsingfors (hliðstætt Námsflokkum Reykjavíkur),
en fyrst og fremst er hún skáld.
Fyrsta bók hennar skáldsagan „nu imorron” kom
út 1970 og siðan fylgdu á eftir 2 skáldsögur;
„Ingenmansland” 1972 og „Vem bryr sig om Doris
Mihailov” 1974. En það var fyrst er skáldsagan „Mán
kan inte váldtas" kom út 1975 að hún slð 1 gegn sem
rithöfundur. Sú bók hefur verið þýdd á mörg
tungumál og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd,
sem sýnd hefur verið víða um lönd.
Árið 1978 sendi Márta frá sér ljóðabókina
„Árhundradets kárlekssaga”, sem strax vakti geysilega
athygli og hafa selst af henni fleiri eintök en dæmi cru