Dagblaðið - 31.10.1981, Side 1
7. ÁRG. - LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981 — 248. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra haröorðurálandsfundi Sjálfstæöisflokksins:
Barátta Geirs fyrir auknum
völdum aðalvandi flokksins
ágreiningurinn kominn upp löngu áöur en nkisstjórnin var mynduö
Gcir Hallgrfmsson flokksformaður sat hinn rólegásti undir skammarræðu forsætis- I grein úr Morgunblaðinu eftir Styrmi Gunnarsson ritstjóra með fyrirsögninni „Sögu-
ráðherra á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Hér heldur Gunnar Thoroddsen á | legar sættir”. DB-mynd: Bjarnleifur.
Hvar er sérstaða starfsmanna Rannsóknarlögreglu ríkisins?
STJÓRN ARBYLTING HJÁ
RANNSÓKNARLÖGREGLUNNI
—fyrri st jórn velt vegna aðgerðaleysis — ný st jóm tekur við á aukaf undi
Auk Grétars Sæmundssonar for-
manns voru þessir kosnir í stjórnina:
Egill Bjarnason, Guðmundur H.
Jónsson, Högni Einarsson og Smári
Sigurðsson. í varastjórn voru þessir
kosnir: ísleifur Pétursson, Haraldur
Árnason og Þorsteinn Ragnarsson.
Smári og ísleifur sátu báðir í fyrri
stjórn.
Skipulegar aðgerðir eru ekki
hafnar af hálfu hinnar nýju stjórnar
enn sem komið er, sem ekki er von
til. Mun þó fyrr en síðar þess verða
vart að stjórnarbyltingin var gerð.
-BS/ÓV.
ífélaginu
Stjórnarbylting var gerð í Félagi
rannsóknarlögreglumanna ríkisins í
fyrrakvöld. Var hún óvopnuð og án
svo mikiis sem blóðdropa. Fyrri
stjórn sagði af sér og ný var kjörin.
Formaður nýju stjórnarinnar var
kosinn Grétar Sæmundsson rann-
sóknarlögreglumaður.
Astæðan fyrir þessum aðgerðum
er skiptar skoðanir félaga um það
hvernig halda skuii á kjaramálum
rannsóknarlögreglumanna. Fyrrver-
andi formaður mun hafa talið væn-
legast að fara sér hægt og ná sam-
komulagi án átaka. Öðrum sýndist
fullreynt að sú aðferð bæri ekki
árangur. Meðal þeirra voru tveir
stjórnarmenn félagsins sem sögðu af
sér störfum í stjórn vegna þessa
skoðanamismunar.
Bæði Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja og Landssamband lögreglu-
manna hafa lagt lið sitt með ýmsum
hætti til þess að knýja fram leiðrétt-
ingar á kjaramálum rannsóknar-
lögreglumanna ríkisins. Allt hefur
komið fyrir ekki og fjármálaráðu-
neytið verið fast fyrir eins og klettur.
Dómsmálaráðherra lýsti því yfir
þegar Rannsóknarlögregla ríkisins
var stofnuð 1978 að hún hefði mikla
sérstöðu. Lagði hann áherzlu á að
hún ætti að njóta hennar.
Hafa efndir á sérstöðuhugmynd-
inni helzt orðið þær, að mati sumra
rannsóknarlögreglumanna, að þeir
sitji skör lægra en þeim ber vegna
starfa sinna, varðandi launa- og
kjaramál. Hefur DB heimildir fyrir
því, að átta rannsóknarlögreglumenn
ýmist hafi sagt upp störfum eða
hyggist gera það af áðurgreindum
ástæðum.
—sjánánar
ábls.5
ogábaksíöu
Ingólfur Ingólfsson,
formaöur Vélstjóra-
félags íslands:
„Vænti þess
að menn
slíðri
sverðin
núna"
- en mæti þeim
mun betur
undirbúnir til
samninga um
áramótin
„Þrátt fyrir að mikil óiga sé
enn á meðal sjómanna á ég varla
von á því að fíotinn sigli í land,”
sagði Ingólfur Ingólfsson, for-
maður Vélstjórafélags íslands, i
samtali við Dagblaðið í gær.
Óánægja sjómanna er ekki
bundin við ákveðin skip heldur
virðist Ijóst að allir sjómenn eru
síður en svo sáttir við fiskverð.
Gildir þá einu hvort um loðnu-,
línu-, sildarbáta eða togara er að
ræða. Síldarsjómenn eru hins
vegar þeir einu sem sýnt hafa
verulega samstöðu til þessa.
Um miðjan dag í gær voru enn
að berast tilkynningar frá skipum
viða um land, einkum og sér í lagi
að austan, þar sem sjómenn mót-
mæltu fiskverði harðlega og tóku
undir orð þeirra sem fyrstir mót-
mæltu.
„Það er nú ekki nenia rétt
rúmur mánuður þar til setzt
verður að samningaborðinu á ný,
varðandi fiskverðið, svo að ég
vænti þess að menn slíðri sverðin
þann tíma en mæti þeini mun
betur undirbúnir til samninga um
áramótin,” sagði Ingólfur enn-
fremur og sagði reiði sjómanna
vera eðlilega en vart væri mögu-
iegt að skella skuldinni á einhvern
einn aðila. Hér hjálpaðist margt
að.
-SSv.
Sfldveiði-
leyfi aftur-
kölluð
Á hádegi i dag renna út leyfi
sjávarútvegsráðuneytisins til rek-
og lagnetaveiðibáta á sild.
í gær hafði verið landað um
16.000 lestum af síld og allt útlit
er nú fyrir að heildarkvótinn fyll-
ist um helgina.