Dagblaðið - 31.10.1981, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981.
SAGA
SJÓFERÐANNA
—sjónvarp
kl. 17,00
sunnudag:
Á morgun hefst sjónvarp kl. 16.00
með hugvekju séra Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar í Hruna. Kl. 16.10
kemur gamall kunningi á skjáinn,
Húsið á sléttunni eða Grenjað á
gresjunni, eins og sumir kalla það.
Að því loknu kl. 17.00 hefst nýr
myndaflokkur. Hann er franskur og
fjallar um skip og sjóferðir frá
fornöld fram á okkar daga.
í fyrsta þættinum sjáum við
hvernig menn byrjuðu að fleyta sér á
holum trjábolum. Siðan komu flekar
og loks var farið að smíða báta.
Það eru tekin dæmi frá Tahiti-
eyjunum þar sem frumstæð sjóför
eru enn á floti. Síðan koma sérfræð-
ingar og lýsa því hvernig Miðjarðar-
hafið varð vagga nútíma siglinga-
tækni.
Grikkir, Fönikíumenn og síðar
Rómverjar áttu hraðskreiðar galeiður
og knerri, sem gerðu þeim kleift að
stunda bæði verzlun og hernað.
Næsta blómaskeið í siglingum
Evrópubúa hófst þegar vikingarnir
komu til sögunnar. í myndinni er
sýnt langskip við Danmerkurströnd,
mannað ungum Norðmönnum í
sögualdarbúningum. Og Frakkar fá
sérfræðing sinn i víkingum, sagn-
fræðinginn Regis Boyer, til að segja
frá siglingum til íslands og Græn-
lands.
Skyldi þetta nú passa við það sem
Magnús segiráþriðjudagskvöldið?
-IHH.
Ágúst Eyjólfsson. Organleikari:
Ebba Eðvaldsdóttir. Hádegistón-
leikar.
12.10 Dagskrá: Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Ævintýri úr óperettuheimin-
um. Sannsögulegar fyrirmyndir að
titilhlutverkum í óperettum. 2.
þáttur: Madame Pompadour,
ástmær Loðvíks XV. Þýðandi og
þulur: Guðmundur Gilsson.
14.00 Dagskrárstjóri í klukkustund.
Óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri
ræðurdagskránni.
15.00 Regnboginn. örn Petersen
kynnir ný dægurlög af vinsælda-
listum frá ýmsum löndum.
15.35 Kaffitíminn. Francis Lai og
hljómsveit og Tony Hatch og
hljómsveit leika.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Rannsóknir á áfengisneyslu.
Tómas Helgason prófessor flytur
sunnudagserindi.
17.00 Tónskáldakynning: Jón
Þórarinsson. Guðmundur Emils-
son ræðir við Jón Þórarinsson og
kynnir verk hans. Annar þáttur af
fjórum. 1 þættinum segir Jón frá
Paul Hindemith, aðalkennara
sinum í tónsmiðum i Yale-háskól-
anum i Bandarikjunum, og leikin
verður hljóöfæratónlist eftir Jón.
18.00 Sjómannalög sungin og
leikin.Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Ari fróði og Islendingabók.
Dr. Björn Þorsteinsson flytur
erindi.
20.00 Harmonikuþáttur. Kynnir:
Bjarni Marteinsson.
20.30 „Litla Kát” eftir Guðrúnu
Jacohscn. Höfundur les.
20.45 I.jóð handa hinum og þessum.
Sveinbjörn I. Baldvinsson les Ijóð
úr nýútkominni bók sinni.
20.55 Konsert í h-moll fyrir selló og
h.jómsveit op. 104 eftir Antonin
Dvorák. Anne Britt Sævig leikur
með hljómsveitinni „Philharmonia
Hungarica”; Uri Segal stj. (Hljóð-
ritun frá tónlistarhátíðinni í
Björgvin i vor).
21.35 Að tafli. Jón Þ. Þór sér um
skákþátt.
22.00 Edmundo Ros og hljómsveit
leika og syngja.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Phil frændi gengur aftur”,
smásaga eftir J. B. Priestley í
þýðingu Ásmundar Jónssonar.
FLOKKURIDDARINN - sjónvarp íkvöld kl. 21,25:
S0FFÍA L0REN 0G PÉTUR O’TOOLE
ISÖGUNNIUM DON QUIJ0TE
í þessari mynd segir frá Don Quijote,
vindmylluriddaranum spánska og
tryggum þjóni hans, Sancho Panza.
Þessi ódauðlega saga er núna að koma
út á íslenzku í þýðingu Guðbergs Bergs-
sonar. Hefur Guðbergur verið mörg ár
að þýða hana, enda er hún í frumgerð
kringum þúsund blaðsíður.
Don Quijote hefur orðið listamönn-
um óþrjótandi hugmyndauppspretta.
Meðal annars gerðu Bandaríkjamenn
söngleik um hann og var hann sýndur á
Broadway við miklar vinsældir
kringum 1970. Var þá formið þannig
að höfundurinn, Cervantes, var látinn
lenda í fangaklefa. Til að stytta
samföngum sínum stundir segir hann
þeim söguna sína af vindmylluriddar-
anum.
Á þessum söngleik var byggð kvik-
mynd sú, sem við sjáum i kvöld. Sam-
kvæmt handbókum okkar er hún ekki
sérlega vel heppnuð. Þeir sem að henni
stóðu hafa ekki notfært sér hreyfanleik
kvikmyndarinnar til að fylgja riddar-
anum um þveran og endilangan Spán.
Allt gerist i fangaklefanum, eins og
möguleikarnir væru enn takmarkaðir
af þröngu leiksviði.
Soffia Loren leggur sárabindi á enni
Péturs O’Toole, sem sennilega hefur
dottif á holuöió í bardaga sínum við
vindmyllur. Dyggur þjónninn þrýstir
hönd húsbóndans til hughreystingar.
En Pétur O’Toole og Soffía Loren
eru í aðalhlutverkum og alltaf er gaman
að horfaáþau.
-IHH.
Þorsteinn Hannesson les síðari
hlutasögunnar.
23.00 Á franska vísu. I. þáttur: Yves
Montand. Umsjón: Friðrik Páll
Jónsson.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
Laugardagur
31. október
17.00 íþróttir. Umsjón: Bjarni
Felixson.
18.30 Kreppuárín. Niundi þáttur.
Þetta er síðasti danski þátturinn í
myndaflokknum um börn á
kreppuárunum. Þýðandi: Jóhanna
Jóhannsdóttir. Lesari: Bogi Arnar
Finnbogason og Bjargey Guð-
mundsdóttir, (Nordvision —
Danska sjónvarpið).
19.00 Enska knattspyrnan. Umsjón:
Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættarsetrið. Breskur gaman-
myndaflokkur. Fjórði þáttur.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
21.00 Spurt. NÝR FLOKKUR.
Fyrsti þáttur. Spurningakeppni í
sjö þáttum. Alls taka átta þriggja
manna lið þátt í keppninni, sem er
útsláttarkeppni. Áð loknum
fjórum þáttum verða fjögur lið
eftir og keppa tvö og tvö innbyrðis
i undanúrslitum. Sigurvegarar i
undanúrslitum keppa svo til úrslita
í sjöunda og síðasta þætti. Fyrirliði
hvers liðs hefur stjórnað spurn-
ingaþætti i útvarpi eða sjónvarpi,
og velur hann með sér tvo menn í
keppnina.
Spyrjendur: Guðni Kolbeinsson og
Trausti Jónsson.
Dómarar: Sigurður H. Richter og
örnólfur Thorlacius.
Stjórn upptöku: Tage Ammen-
drup.
21.25 Flökkuriddarinn (Man of La
Mancha). Bandarísk bíómynd frá
1972. Leikstjóri: Arthur Hiller.
Aðalhlutverk: Peter O’Toole,
Sophia Loren, James Coco og
Harry Andrews. Mynd þessi er
sambland af ævi Cervantesar og
söguhetju hans Don Quijote i sam-
nefndu verki. Cervantes hefur
verið settur í dyflissu, eh áður en
hann er færður fyrir rannsóknar-
réttinn segir hann samföngum
sinum söguna af Don Quijote og
dyggum þjóni hans, Sancho
Panza. Myndin er jafnframt byggð
að hluta til á söngleik. Þýðandi:
Óskar Ingimarsson.
23.30 Dagskráriok.
Sunnudagur
1. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sókn-
arprestur i Hruna, flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. Fyrsti þátt-
ur. Óvelkomin. Þýðandi: Óskar
Ingimarsson.
17.00 Saga sjóferðanna: NÝR
FLOKKUR. Fyrsti þáttur. Hafið
kannað. Sjö þættir um sögu skipa
og sjóferða frá upphafi til vorra
daga. Fyrsti þátlurinn fjallar um
upphaf sjóferðanna og ólíkar teg-
undir báta og skipa, scm notast var
við. Þýðandi og þulur: Friðrik Páll
Jónsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjón:
Bryndis Schram. Upptökustjórn:
Elín Þóra Friðfinnsdóttir.
18.50 Karpov gegn Kortsnoj. Skák-
skýringaþáttur i tilefni heimsmeist-
araeinvígisins í skák.
19.10 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Frétlirogveður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Umsjón
Magnús Bjarnfreðsson.
20.50 Stiklur. Annar þáttur. Í lita-
dýrð steinaríkis. í þessum þætti er
fyrst skoðað steinasafn Petreu
Sveinsdóttur á Stöðvarfirði, en
síðan farið til Borgarfjarðar eystri
og þaðan í eyðibyggðina í Húsavík
eystri og í Loðmundarfirði. Á
þessum slóðum er hrífandi lands-
lag með litskrúðugum fjöllum og
steinum.
Myndataka: Einar Páll Einarsson.
Hljóð: Vilmundur Þór Gíslason.
Umsjón: Ómar Ragnarsson.
21.20 Æskuminningar. NÝR
FLOKKUR. Fyrsti þáttur af fimm.
Breskur framhaldsmyndaflokkur
byggður á sjálfsævisögu Vcru
Brittain. Sagan gerist á árum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Þýðandi:
Dóra Hafsteinsdóttir.
22.10 Myndir' hins dulda.
Heimsóttir þrír nútimamálarar,
^sem segja frá þvi hvernig þeir fara
að þvi að koma hugsunum sinum
yfir á léreftið. Þýðandi: Franz
Gislaon.
22.40 Dagskrárlok.
Inngangur:
Restaurant
HORNIÐ
Hafnarstræti 15.
ÚTVARPIDídagkL 15.40:
íslenzkt mál
Á laugardaginn kl. 15.40, að lok-
inni syrpu Þorgeirs Ástvaldssonar og
Páls Þorsteinssonar, verður flutlur
þátturinn íslenskt mál. Hefst hann
nú að nýju eftir sumarhlé og verða
víst margir glaðir yfir því — þetta er
með vinsælustu dagskrárliðum. Jón
Aðalsteinn Jónsson sér um þáttinn.
Önnur nýjung er kl. 16.20. Þá
verður barnatíminn „Klippt og
skorið”, í umsjá Jónínu H. Jóns-
dóttur. í sumar hefur á þessum tíma
verið sent út endurtekið efni fyrir
fullorðna.
Héðan í frá verður þessi tími helg-
aður yngri hlustendunum. Takið eftir
því að alla daga nema sunnudaga er
sent út efni fyrir börn og unglinga á
tímanum 16.20—17.00síðdegis.
Á Iaugardagskvöldið hættir
Hlöðuball Jónatans Garðarsonar en
tveir nýir þættir byrja. Hjalti Jón
Sveinsson hefur umsjón með léttum
söngvum um ástina kl. 20.40 og
21.15 kynnir Jón Gröndal tónlist
stóru danshljómsveitanna, sem
blómguðust á tímabilinu frá 1936 —
1945. Það var áður en rokkið og
diskóið komst til valda. Jón byrjar á
að segja frá Glen Miller, en alls
verður hann með eina tólf þætti, ef
okkur misminnir ekki.
Svo má minna á framhaldssmásög-
una, sem lesin verður i kvöld og
annað kvöld kh 22.35. Þorsteinn
Hanncí'íon ler draugasögu eftir
Priestlcy
Oe ci i ií hef ti na ætla ég að reyna
að heyra viðtalið kl. 19.35 við Ingi-
björgu Bjarnadóttur sem fór úr
Kópavogi og settist að í Skötufirði
við ísafiarðardiúp. -IHH.
Þátturinn „islenzkt mál” á sér marga aðdáendur sem fagna þvi að hann hefst nú
á ný. Jón Aðalsteinn Jónsson hefur umsjón með honum i dag.