Dagblaðið - 31.10.1981, Qupperneq 24
Ellert gef ur ekki kost á sér en átelur samherja sína harðlega:
Ellert B. Schram flytur rædu sfna: hörö ádeila á flokksforystu, stjórnarand-
stæöinga og stjórnarsinna.
DB-mynd: Bj. Bj.
Égheffengið
nógafþessum
bræðravígum!
— Geir sameinar ekki f lokkinn en við
bítum á jaxlinn og þreyjum þorrann
,,En ég hef fengið nóg — fengið
nóg af þessum bræðravígum. Og ég
er ekki einn um það. Þúsundir sjálf-
stæðismanna um allt land líða fyrir
þessar væringar, fyllast örvæntingu
og ráðleysi og fjarlægjast starf og
stuðning við flokkinn,” sagði Ellert
B. Schram ritstjóri á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær.
Ræða ritstjórans var hörð gagn-
rýni á ástandið í flokknum, bæði á
forystu og ekki síður á stjórnarsinna.
Ellert hefur verið mjög orðaður við
framboð til formennsku í flokknum
og ræðan var beinskeytt framboðs-
ræða. Það kom því á óvart undir lok
ræðunnar er Ellert lýsti því yfir að
hann hefði tekið ákvörðun um að
vera ekki í kjöri til formanns, frekar
en hver annar landsfundarfulltrúi í
óbundinni kosningu.
Ellert velti fyrir sér afleiðingum
framboðs til formennsku. Fengi hann
meira eða minna fylgi, án þess að ná
kjöri, þá yrði það áminning til for-
manns, aðvörun fyrir fylkingarnar en
formaðurinn sæti áfram. Ástandið
væri óbreytt en ringulreiðin aðeins
meiri. ,,Sá möguleiki væri einnig
fyrir hendi að ég sigraði í kosningun-
um,” sagði Ellert. ,,Er það til góðs
fyrir flokkinn að fella formanninn?
Stendur Sjálfstæðisflokkurinn vel að
vígi við slíkan skell? Verður það gæfu-
legt veganesti fyrir nýjan formann að
niðurlægja fráfarandi formann og
skilja alla hans stuðningsmenn eftir í
sárum? Ég held ekki. Ég held að for-
mannaskipti í Sjálfstæðisflokknum
verði að bera að með öðrum hætti.”
Ellert sagði að glöggt væri að engar
sættir ættu sér stað. Til marks um
það nefndi hann framboð land-
búnaðarráðherra, setningarræðu for-
manns og svarræðu forsætisráð-
herra.
„Sjálfstæðismennirnir í rikisstjórn
geta setið þar út kjörtímabilið óg
notið valda sinna. En þeir sameina
aldrei flokksmenn til fylgis við þá
ríkisstjórn. Það er öllum ljóst. Geir
Hallgrimsson getur verið endurkjör-
inn á þessum landsfundi og setið sem
formaður næstu tvö árin. En hann
sameinar ekki flokksmenn undir
sínum merkjum. Það er öllum ljóst.”
1 lok ræðu sinnar bað Ellert
flokksmenn að bíta á jaxlinn og
þreyja þorrann. Trú sín væri sú að
ekki væri þess langt að bíða að Sjálf-
stæðisflokkurinn risi upp aftur,
sterkur, voldugur og sameinaður.
-JH.
Ríkisstjórnin afleið-
ing vandans, ekki orsök
—sagði Pálmi Jónsson í ræðu sinni
,,Ég mun ekki ræða vanda Sjálf-
stæðisflokksins með hinum hörðu
orðum formanns í setningarræðu og
forsætisráðherra í ræðu í dag,” sagði
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins i gær.
Sem kunnugt er gefur Pálmi kost á sér
til framboðs gegn Geir Hallgrímssyni
formanni flokksins.
„Fullyrðingin um að vandinn sé til
kominn vegna þess að við sitjum i ríkis-
stjórn er í meira lagi hæpin,” sagði
Pálmi. ,,Það má spyrja hvort engin
vandamál væru i flokknum ef þessi
ríkisstjórn hefði ekki verið mynduð.
Svari því hver fyrir sig.
Ég hef gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn
undanfarin ár. Margítrekað hafa verið
teknar rangar ákvarðanir sem hafa
veikt tiltrú fólks á flokknum. Stefnu
flokksins var breytt í grundvallar-
atriðum fyrir síðustu kosningar. Þar
var tekin veruleg hætta á því að Sjálf-
stæðisflokkurinn yrði litill hægri
flokkur og áhrifalítiil.
Ríkisstjórnarmyndunin er afleiðing
vandans, ekki orsök hans. Sjálfstæðis-
flokkurinn þarf að hafa stefnu sem
rúmar skoðanir sem flestra. Hann þarf
að vera frjálslyndur og umburðar-
lyndur. Fyrri forystumenn hans hafa
virt þettaogskilið.”
-JH.
Pilmi Jónsson: Margitrekað hafa verið
teknar rangar ákvarðanir sem veikt
hafa tiltrú manna á Sjálfstæðisflokkn-
um. DB-mynd. Bj. Bj.
Hef vart geð í mér að
svara rangfærslunum
— í máli forsætisráðherra, sagði Ólafur G. Einarsson
Ólafur G. Einarsson: Hafa menn hug-
mynd um hvað gert hefði veriö við
varaformann i þingræðislandi sem gert
hefði það sem Gunnar Thoroddsen
gerði? DB-mynd: Bj.Bj.
„Eftir að menn hafa gerzt slikir
offarar í málflutningi eins og forsætis-
ráðherra hef ég vart geð í mér til þess
að svara rangfærslunum en get þó ekki
setið undir þeim,” sagði Ólafur G.
Einarsson formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins á landsfundi flokksins i
gær. Ólafur fékk klapp margra lands-
fundarfulltrúa er hann sneri orðum
Gunnars Thoroddsen um Geir
Hallgrímsson upp á hann sjálfan:
„Þeir sem hugsa smátt setja sjálfan sig
í háan söðul.” Ólafur greip til lýsingar
Lúðvíks Jósepssonar á Gunnari, en
Lúðvík kallaði hann eitt sinn mýkstu
silkitungu Sjálfstæðisflokksins.
„Mér þótti dálítið undarlegt,” sagði
Ólafur, „þegar Gunnar Thoroddsen
vitnaði í önnur þingræðislönd og sagði
að í þeim löndum hefði verið búið að
setja formann af. En hafa menn hug-
mynd um það hvað gert hefði verið við
varaformann í þingræðislandi ef hann
hefði gert það sem Gunnar Thoroddsen
gerði?”
Ólafur þakkaði Ellert B. Schram
ræðu hans og sagði hana þarfa áminn-
ingu. „Ég vil bæta því við ræðu Ellerts
að við tryggjum bezt einingu í flokkn-
um með því að gera kosningu Geirs
Hallgrímssonar sem glæsilegasta. Eftir
að hafa hlýtt á ræðu Geirs ættu menn
ekki að vera í neinum vafa.” —JH.
Stjórnmálaályktun landsf undar Sjálfstæöisf lokksins:
LYST VANTRAUSTIA RIKISSTJORNINA
Drög að stjórnmálaályktun Sjálf-
stæðisflokksins voru lögð fram i
tveimur hlutum á landsfundi flokks-
ins í gær. Fyigdi Jónas Haralz málinu
úr hlaði og sagði að aldrei hefði
verið jafnerfitt að vinna að stjórn-
málaályktun flokksins og nú. Því
hefði verið horfið aö því ráði að hafa
hana I tveimur hlutum.
Fyrri hlutinn er almenns eðlis. Þar
segir m.a. „Sjálfstæðisflokkurinn,
einn flokka, getur veitt þjóðinni þá
forustu sem hún þarfnast. Brýna
nauðsyn ber til að sjálfstæðismenn
sameinist i baráttu fyrir öryggi lands-
ins, frelsi og rétti einstakiingsins og
frjálsu og heilbrigðu atvinnulífi er sé
grunnur velferðar hvers og eins og
samhjálpar allra á komandi árum.”
í siðari hlutanum segir aðstefna og
störf núverandi rikisstjórnar séu í
ósamræmi við sjónarmið Sjálfstæðis-
flokksins. Lokaorðin eru: „Fundur-
inn lýsir yftr eindreginni andstöðu við
rikisstjórnina og skorar á þá þing-
menn flokksins sem stutt hafa stjórn-
ina aö láta af þeim stuðningi.”
-A.Sl.
frfálst, nháð dagblað
LAUGARDAGUR 31. OKT. 1981.
Átta áradrengur
fyrirbíl:
Skóla-
taskan
kom í veg
fyrir alvar-
legt slys
Átta ára gamall drengur slasaðist
nokuð er hann varð fyrir bíl á Snorra-
brautinni í gærdag og var hann enn í
rannsókn í gærkvöldi. Aðdragandi
slyssins var sá að drengurinn hljóp
blint yfir Snorrabrautina á milli
Austurbæjarbíós og verzlunarinnar
Teningsins. Um leið kom Volkswagen
bifreið akandi og lenti drengurinn
framan á henni. Drengurinn stöðvaðist
undir bílnum, við framhjól bílsins, og
var talin mesta mildi að bíllinn fór ekki
yfir hann. Var þvi þakkað að á bakinu
bar drengurinn skólatösku sem flæktist
í stuðara bílsins og hindraði þannig að
bíllinn færi yfir hann.
-ELA.
Helgarveðrið:
Mild norð-
austlæg
átt á öllu
landinu
„Það verður norðaustlæg átt á öllu
landinu, fremur mild,” sagði Knútur
Knudsen veðurfræðingur um helgar-
veðrið. „Víða frost á nóttunni en frost-
laust að deginum. Þurrt verður á
suðvestanverðu landinu en smávæta
annars staðar. Snjór er ekki nema til
fjalla.”
-ELA.
fm T3* PT7
mú 'i■ff SL m ÍVIKU Q NIN HVE e RRI
Áskrifendur
DB athugið
Vinnirtgur í þessari viku er 10
gíra Raleigh reiöhjól fró Fálk-
anum, Suðurlandsbraut 8 Reykja-
vík, og hefur hann verið dreginn út.
Nœsti vinningur verður kynntur í
blaðinu á mánudaginn.
hressir betur.