Dagblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981.
DB á ne vtendamarkaði
Dóra
Stefánsdóttir
Hnífsdalur 673,-v
r /Isafjörður 805-
'--/ Uu!
Raufarhöfn 1132
Húsavík 696,-
Vopnafjörður 867
/S_______
Hvammstangi 728
Akranes 704 - w
Reykjavík 746,- ^Mosfellssveit 1165,-
Seltjarnarnes 841^sKópavogur 804.
Njarðvík 830,- Se,foss847(.
Sandgerði577, ' Vogar 991,-Þorlákshöfn820
Keflavik 668»-
. Höfn 807 -
Vestmannaeyjar 882-
Septembermeðaltal frá
þrjátíu og tveimur stöðum
— Mosfellssveitin langhæst, en Raufarhöfn fylgir fast á eftir
Eins og áður höfum við reiknað út
meðaltalið á öllum þeim stöðum sem
okkur hafa borizt upplýsingaseðlar
frá. Að þessu sinni komu seðlar frá
þrjátíu og tveimur stöðum. Fara
tölurnar héráeftir:
Akranes 704
Akureyri 906
Bolungarvfk 693
Blönduós 922
Egilsstaðir 729
Eskifjörflur 923
Garflur S35
Hafnarfjörflur 474 x
Hveragerfli 598
Hella 978 x
Hellissandur 709 x
Hrfsey 643 x
Húsavik 741
Höfn, Hornaf. 807
Keflavik 668
Kópavogur 804
Njarflvfk 830
Mosfellssv. 1165
Raufarhöf n 1132 x
Snæfellsnes 437 x
Seltjarnarnes 841
Selfoss 847
Vestmannaeyj. 882
Sauflárkr. 594 x
Vogar 992
Vopnafjörflur 867 x
ísafjörflur 805
Hnffsdalur 673 x
Hvammstangi 728 x
Sandgerfli 577 x
Þorlákshöfn 820
Reykjavfk 746
Eins og menn eflaust vita merktr
krossinn fyrir aftan stöku staðarnöfn
að aðeins einn seðill hefur borizt. Við
vorum satt að segja dálítið undrandi
hvað Hafnfirðingar voru slappir í
september að senda inn sína seðla.
Áður hafa Hafnfirðingar komizt í
sex. Annars eru það minni staðirnir
úti á landi sem ótrúlega margir seðlar
berast frá. Nefna má t.d. Bolungar-
vík, en þaðan hafa komið sex seðlar í
sama mánuði, hafa verið sjö frá
Akranesi, átta frá Akureyri, fjórir
frá Eskifirði og Selfossi.
-A.Bj.
Verðlaunin
á Blönduós
Verðlaunin að þessu sinni fara á
Blönduós. Vinningshafinn er Ingi-
björg Kristjánsdóttir. Hlýtur hún í
verðlaun mínútugrill frá Rafiðjunni.
Eru það samskonar verðlaun og veitt
voru í síðasta mán. Sá er þó einn
munur að ekki voru til í augnablikinu
sléttu plöturnar sem breytt geta grill-
inu í steikarpönnu. í staðinn fær
Ingibjörg hárliðunarbursta og getur
síðan skipt aftur ef hún vill, þegar
plöturnarkomaafturíbúðina. -OS.
Erf itt að ná úr
blekblettum
Kristín skrifar:
Þið fenguð aldrei ágúst-uppgjörið
frá mér, eins og fleirum, einfaldlega
vegna þess að mér tókst ekki að
halda tölunum saman í sumarfríinu.
Mig langar að koma því á framfæri
hér hvort ekki er hægt að fá hér
sunnanlands keypta jógúrt í 1/2 1
umbúðum (eins og rjómi er í). Ég
rakst á þetta í Kaupfélaginu á
Egilsstöðum þegar fjölskyldan var
á leið i útilegu í Atlavík. Líkaði öllum
mjög vel við krúsirnar sem jógúrtin
fékkst í. Betur en þær sem hér fást og
mega ekki við minnsta hnjaski.
Svo ætla ég ennfremur að spyrja
hvort einhver eigi ekki gott ráð í
fórum sínum. Ég á „löber” á
stofuborðið hjá mér og í hann komst
eitt sinn pennablek. Ég hef hreinlega
ekki þorað að gera neitt í málinu ef
það gerði illt verra.
Svar:
Hér í Reykjavík fæst jarðar-
berjajógúrt í 1/2 lítra krukkum
samskonar og litlu krúsirnar eru. En
aðrar jógúrttegundir fást aðeins í litlu
krúsunum. Ég skal hér með koma
þessu á framfæri við rétta aðila.
Varðandi ullardúkinn þinn er illt í
efni. Það getur verið mjög erfitt og
jafnvel ómögulegt að ná öllu sem
heitir blek úr. Bæði er blek orðið svo
niargs konar að uppbyggingu að
gömul húsráð eins og að núa
blekbletti með sítrónusafa duga
skammt. Með svoleiðis tilraunum er
líka hætta á því að hluturinn sé
eyðilagður. Ég myndi í þínum
sporum helzt reyna að fara með
dúkinn í hreinsun og gera grein fyrir
blettinum þegar þangað er komið. Ef
fólk sem vinnur allan daginn við að
hreinsa svona hluti nær ekki
blettinum úr tel ég hæpið að hann
náist á annað borð úr. En á
árangurinn, jafnvel í hreinsun myndi
égekkiveðja. -DS.
Fljótlegur pylsuréttur
Uppskrift dagsins er af fljótlegum
og þægilegum pylsurétti. Hún er úr
bókinni Lostæti með lítilli fyrirhöfn.
Efni:
450 g pylsur
110 g ostur
8 beikon-sneiðar
2 msk. eplachutney
Undirbúningur: 5 mínútur
Steiking 20 mínútur
Grillið pylsurnar hægt í 15
minútur. Skerið rauf langsum eftir
hverri pylsu. Setjið ostsneiðar í rauf-
arnar. Takið pöruna af beikoninu og
berið chutneyið á það. Vefjið
beikoninu því næst utan um pyls-
urnar þannig að hliðin sem chutneyið
var borið á snúi inn. Festið það
með kokkteilpinnum. Pylsurnar eru
síðan settar undir heitara grill u.þ.b.
5 mínútur, þar til beikomið er stökkt
og gullið og osturinn hefur bráðnað.
Húsráð:
Gættu þess að stinga ekki í pylsurn-
ar. Farðu þér hægt þegar þú grillar
þær eða steikir, þannig að húðin
springi ekki. Snúðu þeim þannig að
þær brúnist jafnt.
Upplýsingaseðííl
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsinganviðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að ta nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
F]öldi heimilisfólks.
Kostnaður í októbermánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað ' kr.
Alls kr.
m niíix
i