Dagblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981.
Ferðafélag íslands
Dagsferflir sunnudaKÍnn 8. nóvember:
1. Kl. 10.30 Hengill (767 m). Þar sem má gera ráð
fyrir einhverri hálku á fjallinu er nauðsynlegt að
vera i góðum skóm.
Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson og Guðmundur
Pétursson. Verð kr. 50.-
2. Kl. 13. Gengiö með Hólmsá. Farið úr bílnum við
Lækjarbotna og gengið í áttina að Elliðavatni.
Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. Verð kr. 40.-
Farið frá Umferðarmiðstööinni, austanmegin. Far-
miðar við bíL Börn i fylgd fullorðinna fá frítt í ferð-
irnar.
Útivistarferðir:
Sunnudaginn 8. nóvember kl. 13.00 Blákollur-Eld-
borgir. Hressandi ganga fyrir alla. Fararstjóri Jón I.
Bjarnason, verð kr. 50,- frítt fyrir börn með
fullorðnum. Farið frá BSÍ vestanverðu. —
Tunglskinsganga, fjörubál miðvikudaginn 11.
nóvember kl. 20.00, vetrarferðin er um næstu helgi.
Skrifstofan, Lækjargötu 6 A, sími 14606, er opin
mánudaga-föstudaga frá kl. 10.15—14.00 og
fimmtudaga og föstudaga, fyrir helgarferðir kl.
10.15—18.00.
Árshétfðir
Árshátíð Átthaga-
félags Strandamanna
í Reykjavík verður haldin laugardaginn 7. nóvember
í Ártúni. Aðgöngumiðar verða seldir í. anddyri
ILaugarnesskóla í dag, 5. nóvember frá kl. 17—19.
Framsókn heldur basar
Basar félagsins verður laugardaginn 7. nóvember i
Lindarbæ. Tekið á móti basarmunum á skrifstofu
félagsins, opið frá kl. 9—19, aðeins þessa viku.
Basar kvennadeildar
Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra á morgun
Að þessu sinni veröur basarinn haldinn í nýbyggingu
styrktarfélagsins aö Háaleitisbraut 11 — 13 sem núl
er á lokastigi. Með tilkomu hinnar nýju byggingar
stækkar endurhæfingastöö félagsins verulega og
aukast því möguleikar fyrir margs konar endurhæf-
ingu og aðstoð við þá sem eru fatlaðir eða lasburða.
Kvennadeild styrktarfélagsins hefur ávallt unnið
ötullega að framfaramálum félagsins og lagt fram
drjúgan skerf til uppbyggingar þess. Mörgum er í
fersku minni kvikmyndin Dagur í Reykjadal sem
sýnd var í sjónvarpinu nýlega og lýsti degi í lífi
fatlaðra barna á sumardvalarheimili félagsins.
Ágóða af basar kvennadeildarinnar er m.a. varið
til stuðnings sumardvöl fatlaðra barna og einnig til
stækkunar endurhæfingasiöðvarjnnar að Háaleitis-
braut.
Auk þess að geta gert góð kaup á basarnum sér
diskótekið Doll\ un :.músik viö allra hæfi og verk-
smiðjan Vífilfell hf. mun bjóða öllum basargestum
upp á coca-cola og fleiri svaladrykki.
*
Basar Kvenfélaga
Háteigssóknar
verður að þessu sinni i félagsmiðstöðinni Tónabæ,
Skaftahlíð 24, Iaugardaginn 7. nóvember og stendur
yfir frá kl. 14til 17.
Á basarnum verður margt fallegra og eigulegra
muna, sem konurnar hafa unnið af mikilli smekkvísi
og vandvirkni. Veit ég aö margir veröa til þess að
koma i Tónabæ á laugardaginn til þess að kaupa þar
góða muni á sanngjörnu verði. Konurnar í Kven-
félagi Háteigssóknar hafa af miklum dugnaði og
ósérhlífni unnið að því að gera kirkjuna sem bezt úr
garði og framlag þeirra til félags- og líknarmála er
mjög umtalsvert, sem þeir geta vitnað um sem þess
hafa notið.
Tekið verður á móti basarmunum föstudaginn 6.
nóvember i Háteigskirkju milli kl. 18—20. og í
Tónabæ laugardaginn 7. nóvember kl. 9—12.
Fundur verður í félaginu 10. nóvember kl. 20.30. í
Sjómannaskólanum.
Basar á Hrafnistu
Vistmenn á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra
sjómanna, halda basar i dag, laugardag, og hefst hann
klukkan 14. Basarinn er haldinn i föndurstofu á þriöju
hæð í C-álmu heimilisins. Þar verður til sölu fjölbreytt
handavinna vistmanna og má sja hluta sölugripanna
á myndinni. Þarna verða ýmsar jólavörur eins og
merkja má af húfum vistkvennanna tveggja.
DB-mynd: KÖE.
Basar Blindrafélagsins
Hamrahlíð 17
Á laugardaginn 7. nóvember nk. verður hinn árlegi
basar Blindrafélagsins haldinn að Hamrahlíð 17. Hefst
hann kl. 2 e.h.
Fundir hafa verið haldnir reglulega einu sinni i viku
þar sem fólk hefur komið saman til vinnu. Bæði
blindir og sjáandi hafa unnið af kappi við aö prjóna,
sauma og föndra allt mögulegt sem verður á
boðstólum.
Eins og venjulega verða fjölbreyttir munir til sölu,
m.a. prjónles, jóladúkar, föndur, tilbúinn fatnaöur
og margt, margt fleira.
Einnig verður kökusala og jafnvel pottablómasala
aðógleymdu hinu vinsæla happdrætti.
Nú eru byrjaðar byggingaframkvæmdir að
Hamrahlíð 17 og þá er ekki sízt þörf fyrir aðstoð.
Fundir AA-samtakanna á
íslandi
LAUGARDAGUR: Reykjavlk,
Tjarnargata 5 (91-12010 ) Græna húsiö kl. 14 og
Sporafundir kl. 16. Tjarnargata 3 (91-16373) Rauöa
húsiö kl. 21 og 23.30. Langholtskirkja kl. 13. öldu-
selsskóli Breiðholti kl. 16.
Landifl:
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 kl. 16. Höfn
Hornafirði, Miðtún 21 kl. 17. Staöarfell Dalasýslu,
(93-4290) Staðarfell kl. 19. *Tálknafjöröur, Þing-
hóll kl. 13. Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata
24 opinn kl. 17. Keflavík (92-1800) Klapparstíg 7 kl.
14.
* og þegar togari er inni.
Ténleikar
Mezzoforte
á ísafirði
Hljómsveitin Mezzoforte mun leika á tvennum tón-
leikum að Uppsölum á ísafirði á morgun. Fyrri tón-
lcikarnir hefjast klukkan 4 síðdegis og þeir síðari kl.
9 um kvöldiö. Það er tónlistarklúbbur Mennta-
skólans á ísafirði sem gengst fyrir komu Mezzoforte
til ísafjarðar og reynt verður að stilla aðgöngumiða-
verði í hóf.
Vísnakvöld,
hið þriöja í röðinni, verður haldið í Þjóðleikhús-
kjallaranum nk. mánudagskvöld, 9. nóvember. Von
er góðra gesta að vanda, sem leggja munu sitt af
mörkum til þess að gera dagskrána áheyrilega og við
hæfi flestra. Mánefnat.d. dönsku visnasöngkonuna
Hanne Juul sem dvelst hér á landi um þessar mundir
i boði félagsins. Elísabet Erlingsdóttir mun syngja
nokkur islenzk þjóölög viö undirlcik Jónasar Ingi-
mundarsonar, jafnframt er von á sönghópi frá
Breiöholtsleikhúsinu. Venja er að Ijóðskáld lesi
upp úr verkum sínum á hverju visnakvöldi; að þessu
sinni verður það Hjörtur Pálsson. Auk framan-
greinda aðila má telja víst að fleiri muni Iáta frá sér
heyra, reyndar er öllum velkomið að láta Ijós sitt
skína.
Þann II. nóvember verður félagið Visnavinir 5
ára. Af þeim sökum verður haldið eitt dæiglegt
afmælishóf í Þjóðleikhúskjallaranum þann 15.
þessa mánaðar, á sunnudagskvöldi. Hófið hefst kl.
18.00 með borðhaldi. Að því búnu verða rifjuð upp
nokkur hinna fjölmörgu atriða sem fram hafa
komið á þessum 5 árum. Að öllu þessu loknu munu
Visnavinir stíga dans svo lengi sem landslög leyfa.
Aðgöngumiðar verða seldir á næsta visnakvöldi.
Á laugardaginn 7. nóvember verða tónleikar í
Norræna húsinu mefl Hanne Juul en hún var einn af
stofnendum félagsins. Henni til aðstoðar verður
hópur vísnavina sem nefnir sig ,,Hálft í hvoru”.
Tónleikarnir hefjast kl. 15.00.
Elly Ameling og Dalton Baldwin halda tónleika i
Háskólabíói.
Tónleikar
í Háskólabíói
Hið heimsfræga listafólk Elly Ameling og Dalton
Baldwin halda tónleika á vegum Tónlistarfélagsins
laugardaginn 7. nóvember. Tónleikarnir eru haldnir
í Háskólabíói og hefjast kl. 2.30. Á efnisskrá tón-
leikanna eru verk eftir Robert Schumann, Gabriel
Fauré, Francis Poulenc, JSnrique Granados, Carlos
Guastavino og Joaquin Turina.
Tappatog i
Hafnarbíói
í dag, 7. nóvember, kl. 17,00, mun hljómsveitin
Tappi tíkarrass efna til Tappatogs i Hafnarbiói. Á
Tappatogi þessu, sem er hið fyrsta sinnar tegundar,
koma fram hljómsveitirnar Jonee-Jonee, og fleiri.
Haustmót JSÍ
verður haldið sunnudaginn 8. nóvember í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans. Þetta er þyngdarflokka-
keppni og fer fjöldi þyngdarflokka eftir þátttöku.
Mótið hefst kl. 14. JSÍ.
Jólakort Styrktar-
félags vangefinna
Komin eru á markaðinn ný jólákort Styrktarfélags
vangefínna með myndum af málverkum eftir
Jóhannes Geir, listmálara.
Kortin eru til sölu á skrifstofu félagsins, Háteigs-
vegi 6, í verzluninni Kúnst, Laugavegi 40 og á
heimilum félagsins.
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að kortin eru
greinilega merkt félaginu.
Gerplufélagar halda
vetrarfagnað í dag
Samfelld dagskrá frá kl. 10.00 i dag kl. 15.20
Skemmtun fyrir allan aldur. Kaffíveitingar í nýjy
félagsaðstöðunni.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fótaðagerð fyrir ellilífeyrisþega í Hallgrímssókn er
hvern þriðjudag kl. 13—16 í félagsheimili kirkj-
unnar. Tímapantanir í síma 16542, Sigurlaug.
í Happýhúsinu —
Laugardag 7. nóvember verður opnuð sýning á
máluðum rekavið, blómamyndum og fíeiru; opið
virka daga frá kl. 9—22, sunnudaga 14—22, Siðasti
sýningardagur er 15. nóvember.
Flóamarkaður
og kökubasar
Lúðrasveit Laugarnesskóla heldur flóamarkað og
kökubasar i Laugarnesskóla, í dag 7. nóv. kl. 14.00.
Jólakort Gigtarfélags íslands
Gigtarfélag íslands hefur gefið út jólakort eftir lista-
verkum Kristínar Eyfells, sem hún gaf félaginu.
Skrifstofa félagsins, Ármúla 5, verður framvcgis
opin kl. 1 —5 virka daga.
Ftíagið skorar á a^la félagsmenn að kaupa kortin
og taka þau til sölu.
Allur ágóöi rennur til innréttingar Gigtlækninga-
stöðvarinnar.
Kvikmyndir
Fassbinder og Mekasbræður
í Fjalakettinum
Þriðja dagskrá Fjalakattarins á þessum vetri hefst í
dag með sýningu á þremur kvikmyndum. Þær eru
Kínversk rúlletta og Afkvæmi Satans eftir Rainer
Werner Fassbinder og Companers and Compan-
eros eftir Adolfas Mekas og fleiri.
Dagskrá þrjú inniheldur fimm kvikmyndir. Tvær
eftir Fassbinder og þrjár eftir bræöurna Adólfas og
Jonas Mekas. Myndir Fassbinders hafa þegar verið
nefndar. Myndir Mekas bræðra eru auk Compan-
eras Hallelujah The Hills og The Brig. Þessar
myndir verða sýndar sem hér segir:
Laugardagur:
Kl. 17.00 Kinversk rúlletta
Kl. 19.30 Afkvæmi Satans
Kl. 22.00 Companeras and Companeros
Sunnudagur:
Kl. 17.00 The Brig
Kl. 19.30 Hallelujah The Hills
Kl. 22.00 Kínversk rúlletta Þriðjudagur:
Þriðjudagur:
Ifl. l9.30Companeras and Companeros
Kl. 22.00 Afkvæmi Satans.
Miðvikudagur:
Kl. !9.30The Brig
Kl. 22.00 Hallelujah theHills
Fimmtudagur:
Kl. 19.30 Kinversk rúlletta
Kl. 22.00 Afkvæmi Satans
Laugardagur:
Kl. 17.00 Hallelujah the Hills
Kl. l9.30Companerasand Companeros
Kl. 22.00 The Brig
Sunnudagur:
Kl. 17.00 Afkvæmi Satans
Kl. 19.30 Kínversk rúlletta
Kl. 22.00 Hallelujah the Hills.
Sem fyrr eru allar sýningar Fjalakattarins í
Tjarnarbiói. Miðasala hefst klukkustund fyrir
sýningar. Félagsskirteini kostar 50 krónur, afsláttar-
skírteini 250 krónur og dagskrárgjald á þriðjudag-
skrá er 35 krónur.
Jungfrú Ragnheiður
- Skálholt
Leikfélag Akureyrar sýnir nú Jungfrú Ragnheiði —
Skálholt. Bríet Héðinsdóttir hefur samiö nýja leik-
gerð upp úr verkum Guðmundar Kambans um bisk-
upsaotturina sem ef tU vfll hefur orðið fólki hug-
stæðust af öllum konum íslandssögunnar.
Guðbjörg Thoroddsen, Marínó Þorsteinsson og
SunnaBorg fara1. með aöalhlutverk. Bríet Héðins-
dóttir er leikstjóri en tónlist samdi Jón Þórarinsson.
Hún er flutt af kennurum við Tónlistarskóla Akur-
eyrar. Sigurjón Jóhannesson hannaði leikmynd og
búninga en David Walter lýsingu.
Næsta sýning er sunnudagskvöld kl. 20.30.
Miðasala er opin frá kl. 5—7 á laugardag, hina
dagana Irá kl. 5 og fram til þess að sýning hefst.
Sími Leikfélagsins er 24073.
Leikfélag
Garðabæjar
Leiklistarnámskeið
Leiklist
Framsögn — Leikspuni — Leikræn tjáning. Nám-
skeiðið verður haldið i Safnaðarheimilinu i Garöa-
bæ, í húsakynnum leikfélagsins. Hefst það mánu-
daginn9. nóv. nk.
Leiðbeinendur verða Saga Jónsdóttir, Þórir
Steingrímsson o.fl. Innritun og upplýsingar verða í
símum 43848 og 44425.
Stjórnin.
Leikfélag
Keflavíkur
í dag kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Keflavikur
barnaleikritð Rauðhettu eftir hinn sigilda höfund
Évegníj Schwarzt, i þýöingu Steafáns Baldurssonar.
Alls taka 18 manns þátt i sýningunni sem verður i
Félagsbiói. Með helztu hlutverk fara Bjamey
Sigvaldadóttir, Árni Ólafsson, Jóhann Gislason,
Ingibjörg Hafliöadóttir, Ingibjörg Guðnadóttir,
Lína Kjartansdóttir, Július Baldursson og Hjördis
Árnadóttir. Leikmynd hannaði Hallmundur
Kristinsson, leikhljóð voru unnin i Studíó Stemmu.
Leikstjóri er Þórir Steingrímsson er þetta þriðja
verkefni hans hjá Leikfélagi Keflavikur. Hin voru
Tobacco Road og Sjóleiöin til Bagdad. Hljómlistina
í Rauðhettu annast hljómsveitin BOX í Keflavík en
hana skipa Baldur Guðmundsson, Sigurður Sævars-
son, Óskar Nikulásson og Ragnar Hallmannsson.
Á myndinni sjást Lína Kjartansdóttir, Hjördis
Árnadóttir og Júlíus Baldursson í hlutverkum
sinum.
Gallerí djúpið
Hafnarstræti 15
í dag 7. nóv. kl. 3 mun Siguröur Eyþórsson opna
sýningu á málverkum teikningum og grafík-
myndum, rúmlega 20 að tölu, í Gallerý Djúpið
Hafnarstræti 15. Myndirnar eru allar gerðar með
blandaðri tækni. Siguröur mun mála mynd í olíu og
egg tempera á meðan á sýningunni stendur sem síðan
verður til sölu að sýningunni lokinni, 3. desember.
Flestar myndimar eru til sölu og eru allir velkomnir.
Aðgangur er ókeypis.
DB-mynd Krístján öm.
Listasafn alþýðu
Heimildasýning um „Guernica”. Sýningin stendur
yfír frá 7. — 29. nóvember. Opið alla virka daga frá
kl. 14—22.
Landsþing FÍB
um helgina
Laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. nóvember nk.
fer fram á Hótel Borgarnesi 14. landsþing Félags
íslenzkra bifreiðaeigenda. Á þingi þessu veröa rædd
almenrv-félagsmál FÍB en stórmál þingsins eru vega-
mal, öryggismál og stófnun ferðaskrifstofu FÍB.
Vegamálastjóri, Snæbjörn Jónasson, kemur á
þingið og Aytur erindi sem nefnist Ný viðhorf i vega-
málum. Einnig verða flutt erindi um öryggismál. Til
umræðu á þinginu kemur einnig stofnun ferðaskrif-
stofu FÍB, en hlutverk hennar verði aðallega að cfla
samband við systurfélög i nágrannalöndunum, en
skandinavisku félöginstarfrækjaöll ferðaskrifstofur.
og hyggst FÍB með þessu móti skapa sér aðstöðu til
þess að veita félagsmönnum greiðari ferðaþjónustu
en áður hefur verið. Einkum mun sú þjónusta verða
i sambandi við ferðalög í bifreiðum um Evrópu. í
sambandi við vegamálin verður ennfremur rætt um
skattlagningu á bifreiðir og rekstrarvörur til þeirra.
GENGIÐ
Gengisskráning nr. 216 — Ferðamanna-
6. nóvember 1981 kl. 09.15 gjaideyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7,626 7,648 8,412
1 Stertingspund 14,291 14,332 15.765
1 Kanadadollar 6.381 6.450 7.040
1 Dönsk króna 1.0674 1.0705 1.1775
1 Norskkróna 1.2985 1.3022 1.4324
1 Sssnskkróna 1.3873 1.3913 1.5304
1 Finnskt mark 1.7503 1.7553 1.9308
1 Franskur franki 1.3625 1.3664 1.5030
1 Belg. franki 0.2042 0.2048 0.2252
1 Svbsn.franki 4.2580 4.2702 4.6972
1 Hollenzk florina 3.1206 3.1296 3.4425
1 V.-þýzkt mark 3.4375 3.4474 3.7921
1 Itötsk llra 0.00643 0.00645 0.00709
1 Austurr. Sch. 0.4903 0.4917 0.5408
1 Portug. Escudo 0.1183 0.1187 0.1305
1 Spánskur peseti 0.0800 0.0803 0.0883
1 Japansktyen 0.03334 0.03344 0.03878
1 IrsktDund 12.150 12.185 13.403
8DR (sérstök dráttarréttlndl) 01/09 8.8585 8.8841
Simsvarl vsgna gsnglsskréningar 22190.