Dagblaðið - 07.11.1981, Page 6

Dagblaðið - 07.11.1981, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981. Fjölbrautaskólinn við Ármúla Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn 1982 rennur út 20. nóvember. Eldri umsóknir þarf að staðfesta. Skólastjóri. BASAR Basar Blindrafélagsins er í dag að Hamrahlíð 17 kl. 14.00. Vöruúrval að vanda, svo sem: prjónles, jólavörur, fatnaður, kökur og blóm. Okkar vinsæla skyndihappdrætti. Styrktarfólagar. HÚSMÆÐRASKÓLINN HALLORMSSTAÐ AUGLÝSIR Hússtjórnarnámskeið hefst við skólann 6. janúar í vetur. Nemendur sem lokið hafa prófi úr 9. bekk grunnskóla geta fengið námið metið inn í eininga- og áfangakerfi framhalds- skólanna. Allar nánari upplýsingar gefnar í skólanum. SKÓLASTJÓRI. AUGLÝSING YFIRFISKMATSMAÐUR ÁVESTFJÖRÐUM Staða yfirmatsmanns við Framleiðslueftirlit sjávaraf- urða með búsetu á Vestfjörðum er laus til umsóknar. Mats- réttindi og reynsla í sem flestum greinum fiskvinnslu æski- leg. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 1. desember nk. Sjávarútvegsráðunoytið, 5. nóvombor 1981. AUGLÝSING STYRKIR TIL HÁSKÓLANÁMS í SVÍÞJÓÐ Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum, sem aðild eiga að Evrópuráðinu, 8—10 styrki til háskólanáms í Svíþjóð háskóla- árið 1982—’83. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut Islendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til fram- haldsnáms við háskóla. Styrkfjárhæð er 2.600 s.k. á mánuði í níu mánuði. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til: Svenska Institutet, P. O. Box 7434, 103 91 Stockholm, Sverige, fyrir 15.janúar nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást hjá framangreindri stofnun eða hjá sænska sendiráðinu í Reykjavík, Fjólugötu 9. Menntamálaráðuneytið, 3. nóvember 1981. með öllum hugsanlegum vörum. VERSAND VÚRULISTINN OTTO- VERSAND UMBODIÐ TUNGUVEGI 18 - 108 RVÍK. SfMI 66375 (33429). Verð kr. 45,00. NÚ A fSLANDI. 1059 blaðsíður Frá Þorlákshöfn. Til hægri cr fiskimjölsverksmiðja Meitilsins en afrennsli hennar fer beint i höfnina. -DB-mynd: Sigurður Þorri. Oánægja í Þorlákshöf n vegna grútarmengunar Svo virðist sem dregið hafi verulega úr grútarmengun í höfninni í Þorláks- höfn. í haust var grútarmengun þar óhemjumikil og náði hámarki um mánaðamótin september/október. Grútarmengunin stafaði fyrst og fremst af bræðslu loðnu í fiskimjöls- verksmiðju Meitilsins. Afrennsli verk- smiðjunnar var hleypt beint í höfnina. Reyndar rennur hluti skolps þorpsins einnig þangað. Þegar mengunin var hvað mest ríkti megn óánægja meðal íbúanna. Sér- staklega voru bátaeigendur óánægðir því allt sem flaut fékk á sig óþverrann. Þorlákshafnarbúar geta farið að anda léttar því engin áform eru uppi hjá Meitlinum að taka við loðnu á næstunni. Er ástæðan aðallega sú að verksmiðjan er illa í stakk búin til að taka við loðnu og tækjabúnaður lélegur. Enn má víða sjá merki grútar- mengunarinnar, t.d. í fjörum og á bryggjum. -KMU. Langvarandi erfiðleikar á Bfldudal: Frystingin lengi rekin með dúndrandi tapi enn ekki komið til stöðvunar Fiskvinnslunnar hf, en spurning hve lengi er hægt að halda áfram taprekstri „Þetta hefur verið erfitt í langan tíma. Við erum hér eingöngu i frystingu og hún hefur lengi verið rekin með dúndrandi tapi,” sagði Jakob Kristinsson framkvæmda- stjóri Fiskvinnslunnar á Bíldudal hf. í umræðum utan dagskrár á Alþingi, í vikunni, um atvinnumálin, nefndi Sverrir Hermannsson alþingismaður nokkur pláss á landinu, þar sem á- standið væri óv.enju slæmt. Þar á meðal var Bíldudalur. Þar sagði hann að í 350 manna byggð, sem ætti allt sitt undir veiðum og vinnslu, væri fiskvinnslan í illleysanlegum hnút. „Við höfum ekki haft tök á salt- fiskverkun og mjög lítilli skreiðar- verkun,” sagði Jakob. ,,Það vantar aðstöðu og hráefnið, sem við fáum er ekki heppilegt. Við höfum því verið bundin við frystingu.” Ekki hefur komið til stöðvunar Fiskvinnslunnar hf. ennþá, en Jakob sagði að spurning væri, hve lengi væri hægt að halda áfram taprekstrinum. Ekki hefur því komið til atvinnuleysis ennþá á Bíldudal. Hjá Fiskvinnslunni vinna um 60 manns og auk þess um 20 manns á togaranum Sölva Bjarnasyni, sem er aðeins rúmlega ársgamalt skip. ,,Við höfum leitað til Byggðasjóðs,” sagði Jakob. „Þar er einhver athugun í gangi, en ég hef ekki frétt af henni. Það veltur á ýmsu hvort hægt verður að halda á- fram, aðallega lánastofnunum. Sveit- arfélagið á 20% í fyrirtækinu, en það er ekki von til þess að sveitarfélagið geti hlaupið undir bagga. Það er því heldurdökkt framundan. Þá er ekki að vita hver rekstrar- grundvöllurinn verður eftir fisk- verðshækkunina. Enn er ekki búið að ákveða verð til okkar.” -JH. Jakob Kristinsson: „Við höfum ekki haft tök á saltfiskverkun og mjög litilli skreiðarverkun.” DB-mynd: ÓV. Bjartsýnisrödd á Suðurnesjum: Hef lifað verri tíma — er ekki að panta gengisfellingu, segir eigandi hraðf rystihúss í Garðinum „Maður hefur nú lifað verri tíma. Eg tel að þetta gangi hjá mér. Ég geri ekki ráð fyrir að ég reki þetta með tapi,” sagði Baldvin Njálsson sem rekur eigið hraðfrystihús í Garðinum. Hjá honum starfa á milli 15 og 20 manns en alls eru 25 —30 manns í kringum fyrirtæki hans, bæði til sjós og lands. „Mér finnst menn vera orðnir anzi svartsýnir. í gamla daga ríkti meiri bjartsýni hjá þeim sem stóðu í þessu. Mér finnst vanta bjartsýnina nú til dags. Það er ugglaust mjög lítill áhugi hjá sumum. Margir eru orðnir þreyttir á þessu og það er skiljanlegt. En ég held áfram þessu striti ennþá. Ég er ekki að hugsa um að hætta. Mér finnst að þetta gangi hjá mér og þá er ég ánægður. Og ég er ekki að pantagengisfellingu. Með smærri einingu eins og ég hef gengur mikið betur að berjast. Maður getur þá tekið sjálfur að sér mörg störf í harðindum,” sagði, Baldvin Njálsson. -KMU. Myndbandabyltingin: Félagsleg mengun eða þjóðþrif ? — almennur fundur á Kjarvalsstöðum í dag Er myndbandabyltingin svokallaða félagsleg mengun eða þjóðþrif? Þessari spurningu hyggjast áhugamenn um fjölmiðlarannsóknir velta fyrir sér á almennum fræðslufundi að Kjarvals- stöðum í dag kl. 14. Fimm nenn hafa framsögu þar, þeir Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, dr. Sigurður Líndal, prófessor, Þorbjörn Broddason, lektor, Njáll Harðarson, annar eigandi myndbandafyrirtækisins Videosón, og Haukur Ingibergsson frá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga. Fundurinn er öllum opinn. -ÓV.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.