Dagblaðið - 11.11.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1981.
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Hltler. Þingmenn vildu halda
málverkum hans.
Málverk
Hitlers
Fulltrúadeild bandaríska þingsins
hefur nú samþykkt að þau 6300 lista-
verk sem bandaríski herinn tók í stríðs-
skaðabætur i Þýzkalandi eftir seinni
heimsstyrjöldina skuli send aftur til
Þýzkalands, ef Þjóðverjar greiði
flutningskostnaðinn. Undanskilin voru
fjögur málverk eftir Adolf Hitler
sjálfan og önnur þau listaverk sem gerð
voru til dýrðar nasismanum. Fulltrúa-
deildin varð að gefa samþykki sitt fyrir
heimsendingu listaverkanna. Hitler var
sem kunnugt er nemandi í listaskóla um
hríð og þótti víst liðtækur málari áður
en hann srjeri sér að stjómmálunum —
semaldrei skyldi verið hafa.
A-253
W-100
W-150
M-1230
AX-210
CA-901
LA-555
Eiginloikar: A-253 M-1230 W-100 W-150 CA-901 AX-210 LA-555
12/24 klst. Jó Já Já Já Já Já 12
Oagatal Já Já Já Já Já Já Já
Skoiðklukka Já Já Já Já Já Já Nei
Niður-teljari Já Já Já Já Nei Já Nei
Klst.-morki Já Já Já Já Já Já Já
Vokjari Sónn Sónn/Lag Sónn Sónn Sónn Sónn/Lag Sónn
Ljós Já Já Já Já Já Já Já
Rafhlöðuending 5-7 ár 2 ár 5 ár 5 ár 15 mán. 18 mán. 18 mán.
Vatnshelt Já Já 100 m dýpi 100 m dýpi Já Já Já
Höggholt Já Já Já Já Já Já Já
Kassi Ryðfr. stál Ryðfr. stál Ryðfr. stál Ryðfr. stál Ryðfr. stál Ryðfr. stál Gullhúðað
Annað - 12 lög innbyggð - - Innbyggð tölva 3 lög Vísaklukka -
-UMBOÐIÐ, BAN KASTRÆTI8 SÍMI27510
Erlendar
fréttir
OLAFUR EINAR
FRIÐRIKSSON
Stjórnendur Kolumbiu Joe Engle og Richard Truly.
GEIMSKUTLAN
Á LOFT Á MORGUN
Önnur ferð geimskutlunnar
Kólumbíu, sem frestað var í síðustu
viku, verður farin á morgun kl. 13.30
að íslenzkum tima. Ferðinni var frestað
fyrir átta dögum, 31 sekúndu fyrir
brottför, vegna bilunar sem kom í ljós í
smurningskerfi vélarinnar. Ferð
geimfaranna tveggja, Joe Engle og
Richard Truly, mun taka fimm daga.
Kolumbía er fyrsta geimfarið sem
hægt er að nota oftar en einu sinni til
geimferða. Að þessu sinni munu
einkum verða innanborðs tæki til
vísindarannsókna 'og tilraunir verða
gerðar með fjarstýrðan griparm, sem
gerir geimförunum kleift að ferma og
afferma geimskutluna í geimnum.
Griparmurinn á einnig að geta tekið þá
hluti sem svífa umhverfis jörðu, ýmist
til að flytja þá til jarðar til viðgerðar
eða til að gera við þá á staðnum.
Geimskutlunni er ætlað viðamikið
hlutverk í varnarmálaáætlunum
Bandaríkjanna en það hlutverk er
hernaðarleyndarmál.
Sovétmenn saka
Svía um njósnir
Hin opinbera sovézka fréttastofa
TASS ásakaði Svía í gær um njósnir
og virðist það vera svar Sovétmanna
við sömu ásökunum Svía í þeirra
garð eftir strand sovézka kafbátsins
fyrir skömmu.
í skeyti frá fréttamanni Tass i
Stokkhólmi er vitnað í sænskt tima-
rit, PAX, þar sem segir að leyni-,
þjónusta sænska hersins starfi í nánu
sambandi við Atlantshafsbandalagið
við hleranir á leynilegum fjarskiptum
innan Sovétríkjanna. f skeytinu segir
að tímaritið sé gefið út af hópi sem
nefndur sé Sænska friðar- og sam-
starfsnefndin, og leggi áherslu á að
opinber rannsókn fari fram á starf-
semi leyniþjónustunnar.
Sovétstjórnin hefur ekki svarað
þeim ásökunum sænskra yfirvalda að
kafbáturinn sem strandaði hafi verið
að njósnum og verið útbúinn
kjarnorkuvopnum, og hinir opinberu
sovézku fjölmiðlar hafa ekki nefnt
kafbátsmálið á nafn utan stutta til-
kynningu um að hann hefði
strandað. í tilvitnun TASS segir að
hlustunarstöð hafi verið byggð á
eynni Lovoe náiægt Stokkhólmi í
byrjun sjöunda áratugarins.að undir-
lagi Bandaríkjanna. Þeirri stöðu sé
mögulegt að hlera fjarskipti langt
innan Sovétríkjanna, ákvarða
staðsetningu herbækistöðva og fjar-
skiptastöðva og hafa eftirlit með
flugi. Fréttastofan sagði að i tíma-
ritinu væri talið að þessi sænska stöð
væri tengd við njósnakerfi Nato.
Þetta er í fyrsta sinn sem sovézkir
fjölmiðlar saka Svíar um njósnir
gagnvart Sovétríkjunum.
Tímaritsgrein þessi kom í
septmberhefti PAX en hafði áður
komið út nokkrum mánuðum áður í
dönsku tímariti. Til athugunar er að
hefja málsókn gegn höfundi hennar
fyrir brot á lögum um hernaðarleynd-
armál. Nefndin sem stendur að út-
gáfu tímaritsins hefur verið virk í
baráttunni fyrir friði og afvopnun í
næstum tvo áratugi.
Opinberir sovézkir fjölmiðlar
grípa oft til þess ráðs að vitna í aðra
fjölmiðla á Vesturlöndum til að
koma skoðunum sínum á framfæri,
sérstaklega ef um er að ræða ásakanir
eins og þessar, sem gætu valdið enn
frekari spennu en þegar er milli
ríkjanna.
Fulltrúi Sviþjóðar á Öryggismála-
ráðstefnunni í Madrid gaf út yfir-
lýsingu þar í gær, þar sem hann
endurtók ásakanir sænskra stjórn-
valda á hendur Sovétmönnum um að
kafbáturinn hafi verið að njósnum og
með kjarnorkuvopn innanborðs, en
sovézki fulltrúinn hélt fast við þá
skýringu að hann hefði villzt inn í
skerjagarðinn vegna bilunar í
siglingatækjum.
NÝTTFRA CASIO