Alþýðublaðið - 24.05.1969, Side 9
Alþýðublaðið 24. maí 1969 9 v
Þór Konráðsson og Signý Pálsdóttir í hlutverk um Skrauta og Bubbu. • í
„K£RFIГ
Herranótt í SJénvarpi
fierranælurleikrifð Bubbi kóngur sýnt á annan í hvítasunnu
Brezkt sjónvarpsleikril sýnt á hvítasunnu-
kvöld
Á dagskrí íjónvarpsins á hvíta-
sunnukvöH k!. 21,35 er brez’kt sjón-
varpsleikrir, I’ve pot a System (Kerf-
ið) eftir Allan Prier, sem sam'kvæmt
áhorfendakónnunum >i Bretlandi er
mjög vinsæll meðal. sjónvarpsáhorf-
enda.
Keith Baxrer ei helzti leikandinn
í Kerfinu. Hann er ungur leikari,
en mjög á upplcið og hefui; meðai
annars átt rrjkið samstarf við Or-
son Wdle";; henn leikur m. a. í
■kvikmyndinni Hcnry IV. eftir Well-
es.
Þýðandi K'-rf'sins er Júlíus Magn-
ússon og mvndir er af Keith Baxt-
er og Kika Varkham.
Bubbi kóngur (Uhu roi) er án
efa frægasta skólaleikrit sögunnar,
og kemur það ein'kum af því, að
það er ætíð talið fj'rsta leikritiil
sem skrifað er i absurdstíl.
Herranótt menntaskólans tc»k
þetta leikrit fyrir i velur, og það
hlaut mjög góðar undirtektir, bæði
áhorfenda og leikdómara.
(Höfundur Bubba kóngs var
franski rithöfundurinn Alfred Jarry,
sem samdi leikinn, þegar hann var
tuttugu og þriggja ára gamall og
var einn kennari hans, mesta ófreskja
eftir lýsingunum að dæma, fyrir-
mynid ;að Bubba.
Þegar leikritið var frumsýnt, mun
hneyksluna-.'aida hafa farið yfir hina
virðulégu Pjrís, og síðan þá mun
skammt hafa verið öfganna á milli
í þeim undirtektum, sem Bubbi
kóngur hefur fengið. Skrípaleikur
er sennilega það orð, sem nær bezt
vfir leikritið, og það gerist í Pól-
landi, sem' raunar var ekki til á
neinu landabréfi, þegar það var
skrifað. Það er því ekki staðbundið
og ekkert í ætt við Pólland nútím-
ans.
Alfred Jarry lézt árið 1907, 34
ára að aldri. Hann dó úr hungri,
áfengis- og eterdrykkju. Hinzta ósk
hans var að fá tannstöngul.
Sveinn Einarsson setti Bubba
kóng á svið, Steingrímur Gautur
Kristjánsson þýddi, Atli Heimir
Sveinsson samdi tónlist og stjórnaði,
Þórarinn Eldjárn samdi söngtexta
og Helgi Torfason gerði leikmyndir
og búninga.
„Guð vill það"
'Myitd um kross-
ferðlr og Rtkharð
Ljónshjarta
Laugardagskvikmynd sjón-
varpsins að þessu sinni er Ríkharður
Ijónshjarta og krossfararnir, gerð
cfur sögu Walter Scotts, sem eiiui-
ig samdi þá vinsælu sögu, 'Ivar hlú-
járn.
Silja AðaJsteinsdóttir þýðir mynd-
iria, og hún sagði okkur, að myrid-
in va-ri fyndin og skemmtileg í
nokkurs konar Ivarhlújárrsstíl, og
þar með tilválin fyrir uriglinga, en
auðvitað líka fyrir fólk, sem á ann-
að borð hefði garnan af ævintýrum.
George Sandcrs leikur Ríkharð
ljónshjarta og cr gcrt að honum
góðlátlegt grin í myndinni. Aftur
leikur Rex Harrisori Salahedin sold-
án af Arabíu og 'kvað taka sig. sér-
lega vel út. Eauren,ce Harvey leikur
aðalhetjuná, ungan Skota, sem er
að skjóta sig í fra’nku Ríkha.rðs kon-
ungs, en hann er ráðahagnum mót-
fallinn t'O að bvrja með. Frænkuna
leikur Virgima Mayo.
Jarðýtur - Iraktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur t. aktorsgröf-
ur og bírkvana, til allra framlkvæmda, innan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
SIGTÚNÍ 7 — SjMI 20960
BÝR TIL STIMPLANA FYRIR. YÐUR
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF STIMPILVÖRUM