Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 30.09.1945, Qupperneq 1

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 30.09.1945, Qupperneq 1
2. árgangur, 14. tölublað „Reikult Einatt hvarflar hugurinn aftur í tímann, stundum allt heim í bernsku, oftlega bó styttri leið. Alloftast eru það sömu hlutirnir sem þá leita inn á sjónajsviðið, ekki alltaf neinir stórkostlegir né örlögþrungnir atburðir, heldur miklu fremur einhver lítilmót- leg fyrirbæri sem manni er næst að halda að engir aðrir muni, hlutir sem hafa komið nær manni en nokkrum öðrum, eitthvert smá- vægi sem hefur sært, éinhver hlýja úr óvæntri átt, smáger en þó nóg til að vekja yl á ný mörg- um árum seinna, aftur og aftur. Stundum kemur það einnig fyr- ir að tilviljun verður til að reka einhverja nýja mynd fram í hug- ann, eitthvað sem maður var eig- inlega löngu búinn að gleyma, og þessi mynd dregur svo með sér aðrar fleiri, liðinn tími fær skyndi- lega nýjan ikn, blæ veruleikans. Þannig var ég fyrir nokkru staddur í sporvagni á leið inn í bæ, er ég sá allt í einu húsaröð- iría umhverfis á nýjan hátt. Þessi húsaröð var engan veginn • sérstök, múrsteinshús eins og gengur, mis- jafnlega snotur, ekkert sem dragi athyglina öðru fremur. Og síður en svo, að það skerpi sjónina að maður á þarna leið hjá nærri dag- * er rótlaust Eftir Guðmund Arnlaugsson. lega. í raúninni er maður löngu hættur að sjá þessi hús, maður hefur aðeins óljósa hugmynd um þau, klunnaleg og óhrein hús, full af fólki sem fer syfjað á fætur og þreytt í rúmið, en þó á engan hátt óvingjarnleg, vekja að minnsta kosti enga andúð. En skyndilega sér maður þessi hús með öðrum augum, allt í einu er eitthvað undarlegt, næstum fjandsamlegt komið í fas þeirra. Formið sem næstum var máð út treður sér inn á mann, þeim mun skýrar sem samanburðurinn við reykvísk hús kemur le'ngra fram í meðvitundina. Allt í einu stend- ur samhéngið ljóslifandi fyrir manni: Það var svona sem þú sást hús og götur í Kaupmanna- höfn fyrsta veturinn þinn hér. Hinu ókunna hættir miklu frem- ur til að vekja fjandsamlegar kenndir en því sem maður gagn- þekkir, sjónin skerpist og maður er stöðugt á verði. Form bygginga og gatna brennir sig inn í með- 30. septembér 1945. þangið“ vitundina, og á bak við vakir samanburðurinn við Reykjavík. Við komum hingað nýskráðir stúdentar fullir undrunar og eftir- væntingar, litt skiljandi hina furðulegu tungu sem reyndist okk- ur svo ólík því sem hún hafði verið í kennslustofunum héima. Fyrir þann sem kalla má að hafi lifað allt sitt líf á sama stað er það mikil reynsla að koma allt í einu í aðra borg í framandi- landi. Heima í Reykjavík var maður, sjá- andi en sá þó ekki, vaninn hafði sljóvgað öll skilvit. Hús og götur yoru ekki fögur eða ljót fyrir kraft þeirrar byggingarlistar sem í þau var lögð eða þeirra vankanta sem á þeim kunnu að vera, heldur miklu fremur fyrir allt önnur dúlmögn. Þar sem skemmtilegt fólk bjó voru falleg hús, við ýmsa staði voru tengdar minningar sem gerðu þá fallega eða ljóta. Hér í Höfn var engu slíku til að dreifa. Maður sér allt í fyrsta sinhi eins og Adam forðum, drekkur í sig öll hin nýju og óvenjulegu. form. Og svo lifir Reykjavík í manni að baki þessu öllu, svo sterkt að maður jafnvel sér ósjálfrátt fyrir sér þessi form flutt heim, sér þau við Austurs-træti eða Lækjartorg. Maður sér ekki fallegt hús,

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.