Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 31.05.1964, Qupperneq 4

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 31.05.1964, Qupperneq 4
Fjórlembingar. — Þessar systur eru vcturgamlir fjórlcmbingar á tilraunabiiinu á Hesti. af&r mikils virði, og niður- stöður af ýmsum tilrauinum gefa oft ekki annan árangur en }iað sem snjall bóndi veit. Hinsvegar er sá ávinningur við tilraunina að vit^S er ná- kvæmiega hvern'g á&rigurinn náðist. I upphafi leiðbeinmgastarf- seminnar, hér og annarstaðar var byrjað á þvi að ráðunaut- ar og leiðbeinendur veittu at- hygli hvernig búskapur var framkvæmdur hjá þeim sem vel ge'kk, og sögðu öðrum frá þvi En þá vantaði að vita nákvæmlega hvernig Pétur eða Páll náðu þessum árangri. Hér á landi hofur verið unn- ið að jarðræktartilraunum allt frá aldamótum, en mjög lítið að búfjárræktar- og fóðrunar- tilraunum allt þar til á tveim siðustu áratugum. Og enn er allt of lítið gert að búfjár- ræktartilraunum. Þær eru kostnaðarsamari en jarðrækt- art'lraunimar. Merkustu fóðurtilraunir hér á landi gerði Þórir Guðmunds- son fyrir 35 árum, um gildi síldarmjöls til fóðrunar. Ár- angur þeirra tilrauna varð lyftistöng í sauðf járbúskap hér á landi. — Segðu okkur frá starfi þínu við Búnaðardeildina og fjárrækbartilraunum á hennar vegum. — Starf mitt við tilraunir og rannsóknir má telja að hafi verið þríþætt: 1. Forsfaða Búnaðardeildar- iixniar. 2. Hef átt sæti í til- raunaráði búfjárræktar síðan 1940 og lengi verið formaður þess, en tilraunaráðið ræðir hvaða tilraunir sé mest knýj- andi nauðsyn að gera, skipu- leggur þær í samráði við hlut- aðeigandj tilraunamenn og hefur umsjón með fi'amkvæmd þeirra tiirauna á sviði búfjár- ræktar sem ekki eru beint framkvæmdar undir stjóm "08 — SUNNUDAGUR Búnaðardeildarinnar. í þriðja lagi eru svo sénfræðistörf mín við Búnaðardeildina. Aðalstarfsemin hefur verið á tilraunabúinu á Hesti í Borgarfirði. Starf mitt hefur einikum verið fólgið í því að satneina kosfina í fjárkyninu, og hefur sérstök áherzla verið lögð á að bæta kjötgæðin og auka afurðamagnið. —Hvemig hefur það tek- izt? — Það hefur náðst mjög mikill árangur í að bæta vaxt- arlagið og kjötgæðin. Frjó- semin og vænleikurinn hefur eirinig aukizt, en á síðustu ár- um hefur vænleiki dilka þó ekki aukizt, en þar kemur til sögunnar stórkostleg fjölgun á fé í sumarhögum. Næsta skrefið er að rann- saka hvort hagkvæmt sé að beita sauðfé á ræktað land að verulegu leyti. Féð á Hesti hefur lengi ver- ið vænt og afurðagott. Jörðin er ekki nema meðal sauðfjár- jörð, og var það með ráði gert, þvd enginn vandi er að ná góðum árangri á úrvals fjárjörðum. Fóðrunartilraunir á Hesti hafa gefið mikinn ár- angur. Um fjárskiptin var gerð ýt- arleg rannsókn á því hvaða áhrif það hefði á vöxt og þroska ánna að láta þær eiga lömb veturgamlar. — Hvað leiddi hún í Ijós? —- Niðurstöðui’ þeirra rann- sókna sýndu að það dregur ekki til skaða úr þroska ánna þótt þær eigi lömb vetur- gamlar — svo framarlega sem þær eru nógu vel fóðraðar fyrstu tvö ár ævinnar. Þessi aðferð er þó ekki notuð með ábata nema hjá þeim sem vilja, og geta, fóðrað vel. Einn þátturinn í að auka frjósemi fjárins hefur verið tilraunir með hormónagjöf. Hormónagjöf sýnir sig að vera mjög góð aðferð til að auka frjósemi í stofni sem ekiki er frjósamur, en ástæðu- laus þar sem stofninn er mjög frjósamur. Þetta er aðferð fyrir hinn natna bónda, en ekki heppileg fyrir þann sem við'hefur litla natni við bú- sbapinn. — Hefur þessi aðferð breiðzt út? — Nokkrir tugir bænda hafa notað hana og flestir látið vel af. Þegar ég tók til starfa hér sem leiðbeinandi í stauðfjárrækt var mjög brýn nauðsyn að rækta fé með til- liti til bætts hoIdafars. Um aldaraðir hafði féð verið rækt- að meir til mjólkur en kjöts og lítt hirt um vaxtarlag og kjötgæði, fyrr en um og eftir síðustu aldamót. — Hvenær hófst leiðbein- ingastarf á þessu sviði, — Leiðbeiningastarfsemi á vegum Búnaðarfélags Islands hefur verið nokkur frá því á fyrsta og öðrum tug aldar- innar, en það var ekki fyrr en freðkjötsmarkaðurinn opn- aðdst í Bretlandi 1927 að nauðsyn krafði að sérstök á- herzla væri lögð á kjötgæðin. — Voru Bretar kröfuharð- ir? — Kröfur brezkra kaupenda voru um mjög þykka skrokka með stutt og létt bein, hæfi- lega feita, en sérstaklega þó að læri og hryggir væru hold- mikil. En einmitt sá galli var á íslenzku fé að það var hold- rýrt á baki og lærum og mjög beinastórt. Aftur á móti var féð dug- legt, mjólkurlagið og frjó- samt. Það var því brýn nauð- syn, bæði vegna erlendra og innlendra markaða að auka kjötgæðin og frjósemina —■ en jafnframt að viðhalda og auka mjólkurlagni. Rannsóknir mínar á há- skólaárum beindust einmitt að því í hverju gæði kindakjöls væru fólgin, og hvernig fé þyrfti að rækta til þess að framleiða afbragðskjöt. Þessa þekkingu notaði ég mér í leið- beiningastarfinu og einnig við ræktunarstarfið á Hesti. Hef- ur mikil áherzla verið lögð á að kenna bændum rétt fjár- val. og með ágætum árangri. En til þess jafnframt að auka frjósemi og mjólkurlagni beitti ég mér fyrir því að bændur héldu ættartölubækur og afurðaskýrslur, svo þeir gætu valið kynbótakindur ekki aðeins eftir útliti heldur einn- ig af afurðamestu ættunum. í því sambandi var unnið að því að fá bændur til að stofna fjárrækbarfélög. Hið fyrsta þeirra var stofnað 1940, en flest á síðasta áratugi. Nú hafa verið stofnuð 120 fjár- ræktarfélög og afurðaskýrshir liggja árlega fyrir um 40 þús. ær. — Bændur virðast þá mjög áhugasamir um þetta. — Bændur eru mismunandi ábugasamir í fjárræktarfélög- unum. Þar sem Jieir eru sam- Framhald á bls. 214. Pjakkur var hrútur nefndur, hann kvað hafa veriö mestur kyn- bótahrútur landsins. Hrútarnir sem þið sjáið hér eru allir synir hans.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.