Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 03.10.1965, Qupperneq 4

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 03.10.1965, Qupperneq 4
verðareyri í Hróarstungu til kunningjafólks míns. Þar varð ég að vera einn dag um kyrrt sökum veðurs! Þaðan fór ég upp að hinum fræga Hall- ormsstað, í svo mikilli rign- ingu að ég sá ekki mikið. Næst gisti ég í Skriðdalnum og lagði svo á Breiðdalsheiði og gisti á Þorgrímsstöðum sunn- an heiðar. Næsta dag í Beru- fjörð að Hamri. 1 Berufirðin- um fór að létta til svo ég sá aftur til sólar í fyrsta skipti eftir 7 daga látlausa rigningu. Næsta dagleið var að Svín- Siólum í Lóni og þá næst vest- ur í Hornaf jörð, en þar var ég dag um kyrrt, enn vegna rigningar! Ég kom að Hoffelli og það- an fylgdi mér maður yfir Hornafjarðarfljót að Flatey á Mýrum. Vatnið var i kvið klst- ferð eða meira. Daginn eftir fór ég yfir Kolgrímu — ljótt var vatnið maður! og komst að Reynivöllum til Þorsteins mins. Ég hafði ekki séð hann áður, en hann og Jón 1 Möðru- dal tóku bezt á móti mér af öllum sem ég gisti hjá á leið- inni. Á Reynivöllum var ég kyrr heilan dag. Þorsteinn símaði að Kvískerjum og þeir at- huguðu jökulinn beggja megin frá áður en við lögðum af trtað, því nú varð að fara upp á Breiðameikurjökul. Veðrið var afbragðsgott þennan dag, Bólskin, mjög skemmtileg ferð. Þorsteinn fylgdi mér yfir jök- ulinn þar til maður frá Kví- skerjum kom á móti mér og tók við leiðsögninni — ég hygg að ég hafi veiið 2—3 tlma á jökli, það þurfti að krækja svo langt fyrir sprung- ur. Á Kvískerjum gisti ég I góðu yfirlæti og næst í Skafta- felli, — það var gott að heim- sækja öræfinga. Næst lá leiðin upp á Skeið- arárjökul. Ég fékk karl til fylgdar og við jökulinn batt hann hest sinn við stein og lagði svo af stað upp jökul- röndina með einn hestinn. Jökuliöndin var snarbrött og það munaði mjóu að við kæm- um flatjárnuðum hestunum upp, en það tókst og þegar upp var komið var allt í lagi, og þarna var aðeins farið stutt á jökli og þá var ég kominn á sandinn, en Hann- es á Núpsstað kom á móti mér austur yfir Núpsvötn og kom með óþreyttan hest undir mig. 1 Núpsstað fannst mér ég vera kominn heim, en hélt þó áfram og gisti að Fossi á Siðu. Daginn eftir fór ég að Búlandi. Þaðan lagði ég á Fjaliabaksleið. Það fylgdi mér kunnugur maður alla leið að kofa skammt frá Jökuldölun- um. A Búlandi var mér gefinn mikill og góður matur í nesti — sem hefði enzt mér þótt ég hefði legið úti í viku! Svo hélt ég einn áfram, Framhjá Landmannalaugum, yfir hraunskratta og kom loks að Landmannahelli.... Nei, nei, ég lá ekki í hellinum um nóttina því ég átti von á bóndanum á Galtalæk á móti mér og þegar ég var kominn töluvert niður fyrir Land- mannahelli sá ég hilla undir hann í rökkrinu framundan. Hann kom með óþreytta hesta handa mér og um nóttina gisti ég á Galtalæk. Mun hafa verið 13 stundir milli byggða. Morguninn eftir spurði ég bónda hvort hestarnir minir væru ekki þreyttir. Hannneit- aði því og sagðist aldrei hafa séð jafn óþreytta langferða- hesta. Svo fór ég vestur yfir Þjórsá, sundlagði í hana og gisti hjá kunningja minum, Sigurbergi á Grænhóli. Enn legg ég svo af stað, og nú um mínar gömlu æskuslóðir, ölv- es. Enn fer ég um Kamba með hesta, dóla Hellisheiðd, Svinahraun, Sandskeið, sem forðum meðan ég var ekill í Reykjavík. Svo staðnæmist ég á Kjóavöllum við Rjúpnahæð, og þar giípur mig fagnaðar- bylgja yfir að vera aftur kominn á þessar kunnu slóðir, eftir vel heppnaða og ánægju- lega ferð. Ég hafði séð marga stórkostlega fallega staði, kynnzt landinu. •— Og hvað varstu lengi? •— Ég var 30 daga, en þetta munu vera a.m.k. 1500 km. Hér hefur verið farið svo fljótt yfir sögu að segja má að þetta sé aðeins næturstaða- annáll, en næst komum við að öðru efni. Eiitt hið fyrsta sem athygli vekur þegar komið er inn til Gísla í Eilífðinni er skápur mikill sem nær frá gólfi til lofts. Hann er fullur — troð- inn — af hljðmplötum. Fyrir framan hann er borð og kass- ar, einnig fullir af plötum, en allir sem voru á Vífilsstöðum um alllangt árabil kannast við TJtvarp Eilífðarinnar — út- varpsstöðina hans Gísla í Eilífðinni. Þið viljið kannski vita hvað Eilífðin er? Það er alls ekki sama eilífðin og prestarnir boða sáluhólpnu og fordæmdu fólki, heldur starfs- mannahús á Vífilsstöðum, er þótti nokkuð lengi í smíðum, og hlaut því þetta eftirminni- lega nafn. Þar á Gísli heima og nú skulum við fræðast um úlvarp Eilífðarinnar. • -— Hvernig stóð á því, Gísli, að þú fórst að útvarpa á Víf- ilsstöðum ? — Það atvikaðist nú þann- ig að ég var utangarðs við aðalskemmtun manna hér þá; ég spilaði hvorki né tefldi, en það var aðalskemmtun manna hér; sumir sátu við tafl eða spil ár eftir ár hér — og gera enn. En slíkt gleður ekkert aðra, aðeins þá sem eru þátt- takendur í því. Þá hugsaði ég sem svo að rétt væri að fá sér fón (grammófón) og nokkrar hljómplötur. Ég hugsaði að ég gæti slegið þrjár flugur í einu höggi — í hljómplötu kemur fram a.m.k. þrennt: Ijóðið, lagið og söngvarinn, auk und- irleikarans — og svo getur verið að fleiri hafi gaman af. Svo er ég staddur á Kaffi Paris á Skólavörðustígnum (mun vera sami staðurinn og Vega) að fá mér kaffi. Þá kemur þar inn maður sem ég kannaðist við, prentari í Fé- lagsprentsmiðjunni, sænskur að uppruna. Hann býður mér upp til sin, bjó uppi i húsinu, og þá bei st I tal að mig langi til þess að fá ferðagrammó- fón. Kona var þarna stödd. er segir þá að hún vilji ein* mitt seija fón og nokkrar plötur eem hún eigi. Ég spyr hve margar plöturnar séu og hvað þetta eigi að kosta. Hún segir að hvorttveggja kosti 10 krónur. — Á hvaða ári var þetta? —Það mun hafa verið ár- ið 1941 eða 42. Ég svara kon- unni að ég vilji kaupa af henni fóninn. Svo förum við heim til hennar, en með mér var maður. Konan býður okk- ur kaffi — og ég þygg æv- inlega kaffi; og konan gefur okkur kaffi og með því og af- hendir mér svo fóninn og plöt- urnar, ég borga henni 10 kr. þakka og kveð. Nú. var ég orðinn eigandi grammófóns! Svo fer ég af stað til Vífilsslaða og set fón- inn í gang um leið og ég er kominn uppeftir. Fyrsta platan sem ég hlust- aði á var: Taktu sorg mína svala haf, — það fannst mér skemmtileg tilviljun og eiga vel við. Þetta voru allt af- bragðsplötur, en allar svolít- ið slitnar. Svo fór ég að spila meira, og maður kom til að hlusta, og fleiri og fleiri komu til að fá að heyra lag. — En hvernig datt þér 1 hug að fara að útvarpa? — Stofufélagi minn hét Gunnar Rasmundsen, hann var nokkuð heima í útvarps- tækni og hann segir einii sinni: Nú þyrfti maður að fá sér tæki til að leika í gegnum. Ég át það eftir honum, vissi ekkert um útvarpstækni. Einhverstaðar fékk ég evo eiitt af litlu Philipstækjunum, eem hafði tengingu fyiir fón og hátalara. Svo lékum við I gegnum þetta tæki og urðuitt að handsnúa grammófóninum við lok hverrar plötu. Þannig gekk þetta í nokkurn tíma, en svo segir herbergisfélagi minn: — Nú sendum við í Hælið! Hann tekur síðan vír og tengir við útvarpskerfið í hæl- inu. Svo byi-jum við að leika. Vitanlega tókum við heymar- tæki okkar til að hlusta, til að vita hvort það heyrðist nokk- urt bofs. Þá kom það upp úr kafinu að þetta heyrðisit prýðilega. Fólkið fór svo að brjóta heilann um hvaðan þessi mús- ik kæmi. — Hélt það ekki að hún væri frá Ríkisútvarpinu ? — Nei, það var ekki út- varpstimi — þá var ekki út- varpað nema lítinn hluta af deginum og útvarpi lauk kl. 10 á kvöldin. Það spurðist fljótlega livað- Framhald á bls. 250. Hér sjáiö þið Gísla að starfi við útvarpið, hann er hér að lesa Ijóð Kiljans: Þú varst alinn upp á trosi. 244 — SUNNUDAGUR

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.