Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 31.10.1965, Qupperneq 12

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 31.10.1965, Qupperneq 12
Miðnætur- flótti Framhald af bls. 298. „Það var mjög heitt þenna dag, en ég vissi ekki „Hvorugt okkar vissi. Þetta kom einungis fyrir.“ „En ef ég hefði ....“ „Nei, ekkert ef. Við lifum lífinu eins og það gerist frá degi til dags. Við getum ekki annað gert.“ Hún færði sig frá honum og þurrkaði augun. „Heldurðu að það sé betra að sjá líkin? “ Svona hefði barn getað spurt, en þetta var ekki spurn. ing barns og hann svaraði eins og fullorðinn. „Það er betra að sjá þau einu sinni. Þá vit- um við að öllu er lokið. Ekk- ert getur hafizt fyrr en við vitum að því sem var er lok- ið.“ Hurðin slengdist upp. Ungi maðurinn stóð á skyrtunni i dyrunum. „Flugvélin til San Francisco er á förum. Hún bíður!“ „En flóðbylgjan ....“ sagði Macomb. „Væntanleg eftir átta mín- útur,“ sagði hann. „Hérna eru yfirhafnirnar — farangur ykk- ar er kominn í flugvélina". Þau litu hvort á annað. „Förum við?“ spurði hann. „Gerum við það?“ spurði hún Þau horfðust í augu. Allt í einu greip hann um hönd hennar og þau hlupu niður stig^ i eftir endalausum g?1 ■ ■_i þrumaði. „Átta m sjö og hálf mínúta. Tak tir. Flóðbylgjan birt- ist ei.ir sex mínútur — fimm og hálf mínúta fiórar mín- útur — “ Flugvélin beið þeirra, hreyflarnir í gangi. ' „Inn með ykkur,“ másaði ungi maðurinn og ýtti á eftir þeim upp stigann að opnum dyrunum frammi á flugyélinni. „Inn með ykkur! Inn! Ég þarf afS komast til baka og upp á efstu hæð í flugstöðinni." Hann skellti aftur hurðinni meðan hreyflarnir hömuðust. Nú var enginn tími til að fara langt eftir flugbrautinni til að ná hraða! Risavaxin þotan rann nokk- ur hundruð metra, kílómetra, hálfan annan km. og hóf sig svo af heljarafli á nokkrum sekúndum og sveif út í geim- inn, hátt yfir sjó og ský. Aftur heyrðist rödd í út- varpinu. „Klukkan er þrjátíu og fimm mínútur gengin í tvö að morgni. Flóðbylgjan er nú að skella yfir, á nákvæmlega á- ætluðum tíma.“ Hann fann toeað í hönd sína. „Þú heldur enn í hendina á mér,“ sagði hún, o® reyndi að losa hönd sína með lagi. „Dauðahaldi" sagði hann, og sleppti ekki. Eílir hvern og í hvaða rímu er þennan mansöng að finna? Veri signuð okkar átt, auðgist hauðrið fríða; Beri tignarhvarminn hátt heiða auðnin víða. Fögur dregur móðurmold muna handan sjáfar. mögur tregar föðurfold fjalla strandir bláar. þ Strauma kaldra brúast bil, blasir skammur vegur: drauma aldna túnsins til taugin ramma dregur. Skaflar háir, sollinn sær sýnist innri taugum. Gaflar Iágir, bursta bær birtist minnisaugum. Kólga norðurs faðmar fjöll fölvar strýkur grundir. Ólag storðar fossaföll fannabríkum undir. Lampabrosin glitra glöð gegnum dökka karma. Glampa frosin húsa hlöð, hringa rökkurs arma. Vakan ómar háreist hér hurðu fyrir innan. Stakan hljómar. Úti er utan dyra vinnan. Harða stóðið jetur jörð. Jötu skallar hnoða. Garðafóðrið hníflar hjörð; hestar stallinn moða. Saman bekkjast kona, karl, kvæðamanninn heyra, Gaman ekkert prúðan pall prýðir annað meira. Handa allra milli má margvíst skoða tóvið, bandakarlsins fléttu frá frammí voðar þófið. Stálið óðar þróttarþungt þrumulagi kveður. Málið góða, alltaf ungt allan bæinn gleður. Öngum stundin leiðist löng, léttar mundin vinnur. Löngum undir sagna söng sveitahrundin spinnur. Sprangagrundu alltaf ei ófrið sagna hermir. Vanga stundum mjúkan mey mansöngs baga vermir. Ji Situr stokkinn fljóðið frítt (I feimin undan lítur, I1 flytur hnokkann, brosir blítt <' bláþráð slítur sundur. Skiptast myndir. Draumur dvín. Daprar sveitir hvíla. Sviftast vindar. Líkhljóð lín lágum sveitum skýla. Grundir fölnuð byrgja blóm. Bleika gröfin þegir. Undir Fjölnis dauðadóm dísin höfuð beygir. Ljóði hljóðu illa er okkar blóði farið. Óði þjóðin hefur hér helgar slóðir varið. Dýrra braga þrjóti þögn, þjóðlög íslands syngist Nýrra daga söngvum, sögn, sveitavísan yngist. Þjóðleg fræði orðum óðs Eddu hending glæði. Fróðleg kvæði listin ljóðs lýðnum endurfæðist. Meðan álfur heimsins hátt hefja efnis menning héðan sjálfir æðri átt andans stefnum kenning. Anda kraftinn hverri hryggð Hallgríms kveði sálmar. Landa aftur beri byggð Breiðfjörð eða Hjálmar. Friður haldist. Blómgist bú. Blessist trúar arinn. Siður aldinn tengist trú, tryggist hjúa skarinn. — Kunni sögur íslands ey. Aldrei ljóðin gleymist. Unni brögum marar mey meðan þjóðin geymist. — Falla tímans völdug verk, varla falleg baga. Snjalla ríman stuðlasterk stendur alla daga. Hver er hann? Ef hann orti rímur þá nefnið cinþverja.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.