Alþýðublaðið - 19.12.1921, Page 1
%
1921
Mánudaginn 19. desember.
292. tölnbi.
Sammngar Dana 09 Rilssa.
Uádanfarna táð hafa staðið yfir
samningaumleitanir milli Dana og
Hússa, og hafa þær farið fram í
Svíþjóð.
Samningar þessir fóru í strand,
af því að danska stjórnin vildi
ekki veita rússastjóm (bolsivikum)
sömu réttindi og Norðmenn og
'fleiri þjóðir eru búnir að veita
þeim. Vildu fulltrúar þeir er sömdu
fyrir hönd Daub, fyrir hvern mun
að samningar skyldu takast, því
það mundi verða til hins mesta
hagnaðar fyrir danska utanríkis-
verzlun og danskan iðnað. En
-aamningar voru látnir fara I strand
eftir skipun danska sendiherrans,
.sem heitir Harald Scavenius.
Miklar umraeður hafa verið um
'þetta mál sfðustu vikurnar i dönsk-
utn blöðum, og er talið íullvíst,
:að orsakimar til þess að utan
rísisisráðherrann danski Iét samn-
ringana stranda, þrátt fyrir þó
það væri til hins mesta óhagnaðar
fyrir iðnað og viðskiftalíf kndsins,
sé að finna þar sem er keisara-
móðirin rússneska, sem býr í
Danmörku (hú« er dóttir Ktistjáns
níunda). Þykir mörgum það æði
hart að hagsmunir landsins fjár-
hagslega séu látnir sitja á hakanum
fyrir það að utanríkisráðherrann
vill viðra sig upp við eitthvað af
kóngadótinu. Mál þetta var til
utmæðu í fólksþinginu (svarar til
neðri deildar hér) síðastliðinn
íöstudag, og bar Stauning foringi
jafnaðarmanna þar írata vantrnust
á þennan ráðherra. Var sú tillaga
íeld, en samþykt var önnúr tillaga,
þess efnis, að ekkert tækifæri
y/ði látið ónotað til þe»s að koma
a hagfeldum samningum, þar
Danmörku væri mikill íjárhags
legur hagnaður að því að viðskifti
hefðust við Rússa. Verður þetta
vafalaust til þess að ekki líða
margar vikur áður en þetta raál
verður tekið fyrir á ný, enda sér
ihver maður, að engtn ástæða er
Til jölanna:
Hangikjöt á.1,60 pr. */* kg.
Isl. smjör á...2,75--------—
Kæfa á ....... 1,60-—
Hveiti, bezta tegund á . . 0,40-—
Smjörliki ísl. á......1,15------—
Kaupfélagið, verzlunin á Laugav.
til þess að Danir geti ekki veitt
Rússum sömu viðurkenningu og
Norðmenn. En svo sem kunnugt
cr hefir norska krónan stigið
mtkið sfðan í haust að viðskiftin
hófust við Rússa, samkvæmt hin-
um nýju samningum.
Fyrir íslendinga er það vitam
lega mjög mikilsvert að komast
sem fyrst í verzlunarsambaad við
Rússa, en sennilegt er, að meðan
skörungurinn Jón Magcússon situr
að völdum, þá fari siíkt mest eftir
því hvað Danir gera. Má! það
er sagt hefir verið frá hér, hefir
því töluverða þýðiugu fyrir okkur,
þó að við ættucn að geta fariö
allra ferða okkar í verzlunarmálum
án þess að fara eftir þvf hvað
Danir gera. En svona er það nú
samt.
D. A. O.
í Danmörku er félag sem heiíir
„Félag atvinnulausra" (De arbejds
íöses Organisatiop) og er það oft
ast nefnt aðeins með stöfum
þeim er standa yfir grein þessari.
Félagið er nýtt, en hefir látið
mjög mikið til sín taka. Félsgs
stjórnin lætur framkvæma það
sem hún áiítur rétt, án tillits til
hvort lagaheimild er til fyrir því
eða ekkí, t. d. opnuðu þeir kirkj
ur og hleyptu þar inn á nóttunni
mönnum, sem ekkert húsnæði
höfðu og urðu því að iiggja úti.
En af slfkum mönnum er töluvert
í Danmörku, eias og skiljanlegt
er, þegar athugað er, að nú í
meira en ár hafa aldrei verið
færri ea $0 þúsundir manna
atvianulausir f Danmörku, og oft
fleiri, t. d. nú um miðja nóv.
63 þúsundir. Annað, sem félagið
hefir látið tii sín taka um er það,
að hleypa gasi til þeirra verka-
manna, sem gasið hafði verið
tekið af, af því að þeir sökum
atvinnuleysis höfðu ekki getað
borgað. Hefir félagið athugað
kringumstæður hvers eins áður
ess þeir opnuðu aftur fyrir gasinu,
og aðeins gert það hjá þeim sem
ekki gátu borgað. Sumstaðar i
DiEmörku hafa bæjarstjórnirnar
þegar látið undan félaginu, og
góðfúslega samþykt að taka hvergi
alveg fyrir gasið, heldur iáta
atvinnulausar fjölskyldur hafa nóg
gas til þess að geta eidað við
einu sinni á dag, auk gas til
kaífihifunar.
Félagið segir að það sem það
taki fyrir næst, verði að útvega
atvinnulausum mönnum eidivið og
fatnað, auðvitað með þvf að taka
það þar sem það er til.
Formaður félagsins er Róbert
Klittfort, Iftill maður snaggaralegur.