Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.11.1979, Blaðsíða 2
ASH og réttindaskrá barnanna
Árið 1971 gekkst konunglega
breska læknafélagið fyrir stofnun
samtaka í Bretlandi í þeim tilgangi
að minnka reykingar og draga úr
skaðlegum afleiöingum þeirra
Samtökin nefnast á ensku Action
on Smoking and Health sem er
skammstafað ASH (það getur þýtt
„aska"). Stjórn þeirra og aðal-
stöðvar eru í London. Meðal for-
ustumanna ASH eru víðfrægir
læknar og verndari samtakanna er
hertoginn af Gloucester.
ASH stendur fyrir margs konar
verkefnum til reykingavarna og er
miðstöð upplýsinga- og fræðslu-
starfsemi á því sviði. M a. gefa
samtökin út fréttabréf (ASH In-
formation Bulletin) sem kemur út
tvisvar i mánuði meö nýjustu upp-
lýsingum um ýmsar hliöar reyk-
ingavandamálsins og baráttuna
gegn reykingum.
Nokkrar svæðisbundnar eða
staðbundnar ASH-deildir hafa veriö
stofnsettar, m.a. í Skotlandi og á
Norður-lrlandi. I blaði noröur-írsku
deildarinnar, ASH News, sáum viö í
sumar svonefnda Réttindaskrá
barna, sem Skotlandsdeildin átti
upphaflega hugmynd að, og Tak-
mark leyfir sér hér með að birta í
lauslegri þýðingu. Meðfylgjandi
teikning er hins vegar úr auglýs-
ingu frá norsku tóbaksvarnastofn-
uninni þar sem varað er við reyk-
ingum í návist barna, sbr. 2. lið í
réttindaskránni.
RÉTTINDI BARNA
1. Sérhvert barn í móðurkviði á rétt til að vera laust við tóbaks-
mengun svo að ekki sé spillt möguleikum þess að fæðast heil-
brigt.
2. Sérhvert barn á rétt til að alast upp í hreinu andrúmslofti heima
fyrir og i samfélagi sínu.
3. Sérhvert barn á rétt til heilbrigðisfræðslu.
4. Sérhvert barn á rétt til verndar gegn auglýsingum sem sýna
reykingar sem þátt í ettirsóknarverðu lífi eða tengja þær við
íþróttir eða aðra heilbrigða lífshætti.
5. Sérhvert barn undir 16 ára aldri á rétt til þess að lög veiti því
örugga vernd gegn tóbakssölu.
Teikningarnar at Ferdinand hafa birst I
Morgunblaðinu árum saman Ölikt
ýmsum öðrum teiknimyndapersónum
mun hann aldrei hafa verið sýndur reykj-
andi. nema í þessari einu myndaröO
sem hér fylgir. En konan sem sat meO
honum til borOs kenndi honum í eitt
skipti fyrir öll aO reykingar eru ekkert
einkamál þeirra sem reykja. Nú eru
HOin fimm ársíðan myndirnar birtust og
Ferdinand virðist hafa látið sér þetta að
kenningu verOa Takmark mælir ekki
beinlínis með aOferð konunnar en hún
hefur þó haft tilætluð áhrif.
Birt með sérstðku leyfl frá
P. I. B . Kaupmannahðtn
Reykingar og bílslys
Fyrir 10 árum kom það í Ijós við
könnun, sem bandarískt vátrygginga-
félag lét gera í stórborginni Los Ange-
les, aö bílslys voru nær helmingi tíöari
hjá reykingamönnum en þeim sem
reyktu ekki. Eftir þetta bauö félagið
sérstakan afslátt af iðgjöldum bíleig-
enda sem reyktu ekki. Fleiri kannanir
hafa leitt til svipaðrar niöurstöðu um
samband reykinga og bílslysa, sbr. t.d.
frétt í Takmarki nr. 2.
Nú hefur heilbrigðisstofnun í Frakk-
landi, sem lætur sig sérstaklega varða
umferðarslys, skorað á frönsku ríkis-
stjórnina að efna til herferðar gegn
reykingum við akstur. Opinberar tölur
sýna að 650 Frakkar létu lífið og 17.000
slösuðust árið 1978 af ástæðum sem
raktar voru til reykinga í bílum. Athygli
bílstjórans dreifist þegar hann nær sér í
sígarettu, kveikir í henni eða missir
hana. Einnig hafa vísindalegar rann-
sóknir sýnt að Ijósnæmið í augum
reykingamanna minnkar vegna súr-
efnisskorts sem stafar af reykingum.
Sé bíl ekið í myrkri þarf reykingamaö-
urinn því öflugri Ijós en sá sem reykir
ekki. Rannsóknir sýna að sjónskerpa
getur minnkað um fimmtung eftir að
menn hafa reykt aðeins fjórar sígarett-
Ur. Cancer News, ASH News, AFD