Veðráttan - 02.12.1929, Síða 8
I
ArsyfLrlit
Veðráttan
1929
dagar á milli alhvítt síðast óg alantt fyrst. En þar sem vetrarsnjór
er jafnaðarlega svo mikill, að lmnn tekur eigi upp fyr en eftir vor-
hretin, verður af þeim orsökum miklu lengra á milli alhvítt síðast
og alautt fyrst. Alstaðar þar sem hér er talað um „alautt“ er meint
alautt að staðaldri. Síðasti snjór úr lofti að vorinu er venjulega svo
lítill, að varla eða elcki festir, þessvegna telja flestar stöðvar, að
það snjói síðar en alautt er orðið að staðaldri, munurinn er að
meðaltali 11 dagar. Á Norðaustur- og Austurlandi, frá Húsavík til
Hóla er þó munurinn helmingi meiri, eða 22 dagar, en hinsvegar
er munurinn nálega enginn á Suðurlandi og kringum Faxaflóa,
Síðasta frost er að meðaltali a.llra stöðva, 4 dögum síðar en síðasti
snjór úr lofti, en stöðvunum ber ekki vel saman. Fyrir þá, sem
jarðrækt stunda, er það áriðandi, að vita, livenær t'rosthætta er úti
að sumrinu. Athuganir þessara ára benda í þá átt, að menn byrji
jafnaðarlega að setja niður kartöflur iieldur fyr en á meðaltíma
síðasta frosts. Eftir athugun 12 stöðva er munurinn 4 dagar.
Frostlausi tíminn að sumrinu heflr reynzt skemmstur inni í
landinu, á Grímsstöðum 54 dagar. en 69 á Grænavatni, en annar-
staðar á Norður- og Norðausturlandi um 100 dagar, Lengstur hetir
frostlausi tíminn orðið í Yestmannaeyjum 174 dagar, og þar næst í
Vík í Mýrdal 164. í Reykjavik og á nokkrum stöðvum sunnanlands
heflr frostlausi tíminn verið um 140 dagar. Á Suðvesturlandi heflr
að jafnaði snjóað fyrst 30 dögum el'tir fyrsta l'rost, en annarstaðar
á landinu hefir það verið sitt á hvað, sumstaðar snjóað fyr, en
sumstaðai' komið frost áður en snjóaði. Alhvítt ld. 8 að morgni
vei’ður að meðaltali 23 dögum siðar en fyrsti snjór lcemur úr lofti
er sýnir, að fyrsta snjókoma er bæði lítilfjörleg og kemur löngu
fyr, en verulega snjóai'.
Viðaukar.
Október. Vindar. Þ. 21. var vestan hvassviðri á Suðurlandi, 3
stöðvar telja, storm
Desember, Raufarhöfn, Alautt 9, Alhvítt 15. Hvítt °/0 58. Snjódýpt
Meðaltal 7.3 cm. Mest 50 cm þ. 15.
Þ. 28/s skall á landsynningur á Vatnslevsuströnd, er allir bátar
voru á sjó. Einum báti hvolfdi og máður drukknaði, en tveir kom-
ust á kjöl og björguðust.
Þ. 21/l0 flæddi 57 kindur frá Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahr.
í sjóinn af skeri við Kaldárós. Veður hafði verið gott, en nálægt
fjöru gerði foráttuveður af landsuðri og varð mikið flóð,
Þ. 26/u drukknaði maður á leið frá Sandi til Stykkishólms, og
báturinn eyðilagðist; 2 aðrir menn er í bátnum voru, björguðust á land.
Janúar:
Febrúar:
Marz:
Maí:
Júní:
Júlí:
Ágúst:
Leiðréttingar.
Grindavík, Stormur 26 á að vera —. Jarðvegshiti Rafm.
(4.3°) í 0.5 m dýpt, á að vera í 1.0 m dýpt.
Seyðisfjöi'ður, Tíðleiki vinda SW „ á að vera 5 °/n.
Fagurhólsmýri, Tíðleiki vinda NW „ á að vera 5 °/0.
Grindavík, Hagi °/0 100 á að vera —.
Raufarhöfn, Vík i'rá meðaliagi 1.3 á að vera 1,5.
Raufarhöfn, Vík frá meðall. — á að vera 1.6. Höfn,
Stormur „ á að vei'a 2.
Höfn, Stormur „ á að vera 1.
Suðureyri, Sjávarhiti — á að vera 10.4. Seyðisfjörður,
Hvítt °/0 — á að vera „. Vestmannaeyjár, Lágmark
hitans. Lægst — 0.7 á að vera 0.7.