Veðráttan - 02.12.1936, Síða 1
VEÐRÁTTAN 1936
ÁRSYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Snjólag og hagi veiurinn 1935—’36
(miðað við 8 mán., okt.—maí).
Tíðarfarið á árinu 1936 var mismunandi eftir landshlutum, fremur óhag-
stætt á Norður- og Norðausturlandi, en hagstæðara sunnanlands og suðvestan.
Loftvægið á öllu landinu var 0.8 mm yfir meðallag.
Meðalhiti ársins var 1.1° yfir meðallag, frá 0.5° í Kvígyndisdal til 1.8°
í Húsavík.
Sjávarhitirm var 0.9° yfir meðallag, frá 0.1° við Stykkishólm til 1.4°
við Grímsey.
Úrkoman á öllu landinu var 9°/o yfir meðallag, víðast í meðallagi eða
lítið eitt neðan við meðallag á Suðvestur-, Suður- og Austurlandi, en allt að
47°/o meiri en meðallag norðanlands. Mest ársúrkoma mældist í Vík í Mýr-
dal, 1973 mm, en minnst 372 mm á Gríms-
stöðum.
Veturinn 1935—36 (des,—marz) var mjög
óhagstæður á Norður- og Norðausturlandi.
Snjór var þarmeðafbrigðum mikill og hagleys-
ur. A Suður- og Suðvesturlandi var snjólétt og
fremur hagstætt tíðarfar. Hitinn var til jafnaðar í
meðallagi og úrkoma 18°/o neðan við með-
allag, víða um hálf meðalúrkoma sunnanlands
og vestan og vestantil á Norðurlandi, en
rúmlega tvöföld meðalúrkoma á einni stöð
norðanlands. Snjólagstalan var 5 yfir 5 ára
meðaltal á öllu landinu, en hagatalan 11 fyrir
neðan 5 ára meðaltal.
Kýr stóðu inni 324/7 v. (20 stöðvar), 2
dögum lengur en 5 ára meðaltal. Lengst
innistaða var 356/7 v., en skemmst 296/7 v.
Kúm var gefið 372/7 v. (17 stöðvar), nærri
2 vikum lengur en 5 ára meðaltal.
Lömbum var gefið 23V7 v. (21 stöð). Þau
voru hýst 236/7 v. (21 stöð). Er það hvort-
tveggja hálfum mánuði lengur en 5 ára með-
altal.
Ám var gefið 223/7 v. (19 stöðvar). Ær
voru hýstar 232/7 v. (20 stöðvar). Hvort-
tveggja er um hálfum mánuði lengur en 5
ára meðaltal.
Hrossum var gefið 215/7 v. (18 stöðvar).
Vorið (apríl —maí) var hlýtt og yfirleitt
hagstætt. Vetrarsnjór var þó mikill norðan-
lands í apríl, en leysti ört í maí. Gróðri fór
#-
'Si
> ro
Stöðvar
Hvanneyri 31 79
Stykkishólmur 38 94
Lambavatn 34 81
Kvigyndisdalur 47 —
Þórustaðir 60 63
Suðureyri 75 49
Hesteyri 46 —
Kjörvogur 44 —
Kollsá 62 31
Blönduós 60 74
Skriðuland 78 39
Grímsey 42 —
Húsavík 72 43
Grímsstaðir 82 59
Höfn í Bakkaf 56 68
Fagridalur 56 74
Nefbjarnarstaðir 63 65
Papey 13 97
Teigarhorn 29 100
Hólar 12 —
Fagurhólsmýri 8 —
Kirkjubæjarklaustur . . . 19 —
Vestmannaeyjar 11 98
Sámsstaðir 10 77
Hæli 20 —
Úlfljótsvatn 28 90
Eyrarbakki 23 —
Grindavík 27 —
Reykjanes 14 87
(49)