Veðráttan - 02.12.1958, Síða 16
Ársyfirlit
VEÐRÁTTA N
1958
Jarðskjálftar.
Jarðskjálftamælingar í Reykjavík, Akureyri og Vik voru að mestu með sama sniði og
árið áður. Jarðskjálftamælir sá, sem kom til landsins i desember 1957, var starfræktur til
reynslu í Reykjavík um nokkurra mánaða skeið á fyrri helmingi ársins. Einnig var hann
hafður á Selfossi um nokkurt skeið, en að Kirkjubæjarklaustri var hann fluttur i byrjun
júlímánaðar. Var þar steyptur stöpull undir hann niður við Skaftá, og var hann settur á
þennan stöpul 29. ágúst.
Þessi nýi mælir er rafsegulmælir af Willmore gerð og ritar hann með ljósgeisla á ljós-
næman pappir, eiginsveiflutími mælisins er 1 sek., en sveiflutími galvanómeters % sek.
Mælirinn er mjög næmur fyrir stuttum jarðskjálftabylgjum, sem hann stækkar allt að
30000 sinnum. Reynslan, sem af honum fékkst í Reykjavík, benti til þess, að hann mundi
sýna allt að sex sinnum fleiri jarðskjálfta en þeir mælar, sem þar eru starfræktir að
staðaldri.
Nokkrir erfiðleikar reyndust á að fá tímamerki frá klukku inn á blöð þessa nýja jarð-
skjálftamælis. Tímamerkjaútbúnaður sá, sem var fyrir hendi i mælinum, reyndist alls ófull-
nægjandi, en vandamálið var leyst með því að ieiða veikan rafstraum beint inn á galvanó-
meter mælisins.
Staðsetning jarðskjálftamælisins á Kirkjubæjarklaustri er: 63° 47' 09" norðurbreidd,
18° 03' 30" vesturlengd, hæð 26 metra yfir sjó. Undirstaða stöpulsins, sem mælirinn stend-
ur á, er blágrýtisklöpp.
1 jarðskjálftaskýrslum (Seismological Bulletin) fyrir árið 1958, er alls getið 333 jarð-
skjálfta, sem mældust hér á landi. 205 þessara jarðskjálfta eru taldir nálægir, þ. e. upptök
þeirra eru innan 500 km fjarlægðar frá Reykjavík, en 128 eru fjarlægir. Af þessari tölu
mældust í Reykjavík 182 nálægir og 89 fjarlægir jarðskjálftar, á Akureyri 63 nálægir og
19 fjarlægir, í Vík 60 nálægir og 6 fjarlægir og á Kirkjubæjarklaustri 130 nálægir og
59 fjarlægir.
Jarðskjálftaskýrslurnar geta ekki um allra minnstu jarðhræringar (stærð < 2.3), en á
Kirkjubæjarklaustri mældust fleiri hundruð slíkra smáhræringa, sem flestar virtust eiga
upptök í Mýrdalsjökli. í Reykjavík mældust einnig allmargar slíkar smáhræringar. Ekki
er heldur getið fjarlægra jarðskjálfta, ef tímamerkjaútbúnaður mælsins var ekki virkur,
en það kom nokkrum sinnum fyrir, einkum i Vík.
Mesti jarðskjálfti hérlendis á árinu mun hafa verið Húsavíkurjarðskjálftinn 27. sept-
ember, en svipaðir jarðskjálftar komu einnig 6. desember norðan Eyjafjarðar milli Gríms-
eyjar og lands, og litlu minni jarðskjálfti 13. desember í Mýrdalsjökli.
Mestu jarðskjálftar erlendis komu 10. júlí á suðurströnd Alaska og 6. nóvember á Kúril-
eyjum. Hvorugur þeirra olli miklu tjóni. Þeir jarðskjálftar, sem mestu tjóni ollu, komu
15. janúar í Perú, 28 manns fórust, 19. janúar í Ekvador, en þar fórust á annað hundrað
manns, og 16. ágúst í íran, þar fórust 137 manns.
1 eftirfarandi töflu er getið allra jarðskjálfta, sem mældust hér á landi, þegar undan
eru skildar minnstu hræringarnar (stærð S! 2.5) í nágrenni Reykjavíkur og Kirkjubæjar-
klausturs.
Tafla um jarðskjálfta, sem mældust á jarðskjálftamæla Veðurstofunnar
árið 1958. Recorded earthquakes.
Upphafstíml
Dagur Origin tlme Upptök
Datc (Icelandic Epicentre
mean time)
FJarlœgð frá
Reykjavík
Distance from
Reykjavik
Stærð
Magni-
tude
Athugasemdir
Remarks
27. janúar .... 13 25 05 (64.0 N 21.5 W)
27. janúar .... 14 07 00 64.0 N 21.5 W
5. febrúar . . . 12 52 00 (64.0 N 21.5 W)
5. íebrúar . . . 12 53 21 (64.0 N 21.5 W)
6. íebrúar . . . 14 56 53 (64 N 19 W)
7. febrúar . . . 20 44 25 (63.9 N 22.0 W)
8. febrúar . . . 06 53 22 (64.0 N 21.5 W)
(R*) Reykjanesfjallgaröur.
(R,A,V) Reykjanesfjallg.
(R) Reykjanesfjallgarður.
(R) Reykjanesfjallgarður.
(R) (Mýrdalsjökull).
30 — 3.2 (R) Reykjanesfjallgarður.
20 — 3.8 (R,A) Reykjanesfjallg.
a. Jarðskjálftar með upptök á íslandi.
35 km 2.8
35 — 3.9
25 — 2.9
30 — 3.6
150 — 2.9
*) (R) merkir, að jarðskjálftinn hefur mælzt í Reykjavík, sömuleiðis táknar (A) Akureyri,
(V) Vik og (K) Kirkjubæjarklaustur.
(112)