Veðráttan - 02.12.1964, Blaðsíða 30
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1964
VeSurstöðvar.
Athugunarmenn: Valgerður Kristjánsdóttir, húsfreyja í Stykkishólmi, hætti athug-
unum í september, og hafði þá verið athugunarmaður fyrir Veðurstofuna i 25 ár, fyrstu
árin ásamt manni sinum, Magnúsi Jónssyni, en eftir 1951 annaðist hún starfið ein. Reynd-
ist hún bæði traust og samvizkusöm í starfi. Kristín Níelsdóttir, húsfreyja, tók við athug-
unum í Stykkishólmi.
Sigurjón Ólafsson, sem annazt hafði athuganir í Heiðmörk af stakri samvizkusemi,
lézt í maí. Við athugunum þar tók Magnús Magnússon.
Karl Jónsson, bóndi á Mýri, hætti athugunum í árslok 1963, en við tók Tryggvi
Höskuldsson, bóndi. 1 janúar hætti Rudolf Stolzenwald athugunum á Hellu eftir 7 ára
starf, en við tók Garðar Björnsson, bakari. Á Reykhólum tók Ingi Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóri, við athugunum af Sigurgeiri E. Ágústssyni í maímánuði. Davíð Guðnason,
bóndi á Jaðri, hætti athugunum i júnílok, en við tók Guðbergur Guðnason, bóndi.
Nýjar stöövar: I júníbyrjun hófu 3 nýjar stöðvar starfsemi á vegum Veðurstofunnar.
Á Akurhóli á Rangárvöllum athugar Elísabet Sigurðardóttir, húsfreyja, en Stefán Guð-
mundsson, bóndi, er athugunarmaður á Dratthalastöðum i Hjaltastaðaþinghá. Á báðum
þessum stöðvum er athugað kl. 8, 14 og 20, og mánaðarskýrslur sendar Veðurstofunni. Á
Eyvindará i Egilsstaðahreppi er Vilhjálmur Jónsson, bóndi, athugunarmaður. Eru gerðar
þar athuganir og send skeyti kl. 2, 5, 8, 20 og 23 og að auki kl. 11, 14 og 17 alla helgidaga,
þegar flugumferðarstjórar á Egilsstaðaflugvelli eru ekki við vinnu. Athugunum á Egils-
staðaflugvelli fækkar að sama skapi. I mánaðar- og ársyfirlitum eru Eyvindará og Egils-
staðaflugvöllur reiknuð út sem ein og sama stöð, en fjarlægðin á milli þessara staða er
innan við 2 km. Á Skaftafelli í Öræfum hófust úrkomumælingar i marz, og annast Jakob
Guðlaugsson þær, en á Kolviðarhóli hófust úrkomumælingar í apríl og annast Hermann
Sigurðsson þær. Um miðjan ágúst var stöðin í Fagradal flutt inn i kauptúnið í Vopna-
firði. Athuganir eru gerðar þar kl. 8, 11, 14, 17 og 20, og veðurskeyti send kl. 8, 11 og 17.
Oddný S. Wiium heldur áfram athugunum.
Ýmsar breytingar: I júlí 1963 var sett upp sérstætt hitamælaskýli á Suðureyri, en
áður hafði verið þar veggskýli. Jafnframt var úrkomumælir fluttur til innan þorpsins.
Skömmu siðar var settur upp úrkomumælir á Skaftafelli í Öræfum. Seinni hluta maí 1964
voru sett upp úrkomumælir og hitamælaskýli á Akurhóli, Dratthalastöðum og Eyvindará.
Á Jaðri var sett upp hitamælaskýli í júní, og eru þar síðan gerðar veðurathuganir kl. 8, 14
og 20 og mánaðarskýrslur sendar Veðurstofunni, en áður höfðu aðeins verið gerðar þar
úrkomumælingar. 1 ágúst var sett upp hitamælaskýli og úrkomumælir með vindhlíf á
Teigarhorni, en þar hafði verið veggskýli og úrkomumælir án vindhlífar áður. 1 septem-
ber voru öll veðurathugunartæki í Stykkishólmi flutt, að vindhraðamælinum undantekn-
um, en fjarlægðin á milli nýja og gamla staðarins er innan við 50 metra. 1 ágúst og sept-
ember var komið fyrir vindhraðaritun í Stykkishóimi, Raufarhöfn, Dalatanga, Hólum í
Hornafirði og Fagurhólsmýri. I septemberlok var almennum veðurathugunum hætt i
Andakílsórvirkjun, en úrkomumælingar eru gerðar þar áfram. f október var skipt um
úrkomumæli í Kalmanstungu og hann fluttur til um nokkra metra, og í sama mánuði voru
settir hitaritar í hitamælaskýlin á Jaðri og Hæli.
Á eftirtöldum stöövum var athugunum hœtt á árinu: Fagradal í júlí, Möðrudal í
september og Varmalandi í nóvember.
Atliuganir í óbyggöum: Á Hveravöllum voru gerðar athuganir frá 5. júlí til 16. sept-
ember. Veðurskeyti voru send 6 sinnum á sólarhring, kl. 8, 11, 14, 17, 20 og 23. Athugunar-
maður var Sigurður Sverrisson. 1 Jökulheimum var samvinna um athuganir milli Veður-
stofunnar og Jöklarannsóknafélagsins eins og árið 1963. Athugað var frá 1. júní til 31.
ágúst og veðurskeyti send á sömu timum og á Hveravöllum. Athugunarmaður var Pétur
Sumarliðason.
EftirlitsferÖir: Eftirtaldar athugunarstöðvar voru voru heimsóttar á árinu: Akur-
eyri, Arnarstapi, Blönduós, Dalatangi, Dratthalastaðir, Egilsstaðir, Eyvindará, Flatey,
Garður II, Hallormsstaður, Heiðmörk, Hella, Hellissandur, Hof, Hólar í Hjaltadal, Hólar
í Hornafirði, Húsavík, Hvanneyri, Hveravellir, Hæll, Jaðar, Jökulheimar, Kambanes,
Keflavík, Kirkjubæjarklaustur, Mánárbakki, Mýrar, Raufarhöfn, Reykjavík, Sámsstaðir,
Sauðárkrókur, Sandur, Skógargerði, Skriðuklaustur, Staðarhóll, Stykkishólmur, Teigar-
horn, Vopnafjörður og Þorvaldsstaðir.
(126)