Veðráttan - 02.12.1984, Blaðsíða 31
1984
VEÐRÁTTAN
Arsyfirlit
Veðurstöðvar.
Athugunarmenn: Gunnar Ólafsson hætti veðurathugunum i Neskaupstað i ágústlok
og Már Sveinsson tók við. Guðrún Ólafsdóttir hætti athugunum á Kirkjubæjarklaustri í
september og við tók Ólöf Benediktsdóttir. í lok nóvember hætti Guðrún Lárusdóttir
athugunum í Æðey og Guðrún Alexiusdóttir annaðist þær til áramóta.
Nýjar stöövar og breytingar á eldri stöövwm:
í júlí var sett upp ný veðurfarsstöð í Birkihlíð í Skriðdal. Athugunarmaður er Björn
Bjarnason. í september byrjaði úrkomustöð við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni. At-
hugunarmaður er Kristbjörg Kristjánsdóttir. Veðurathugunum var hætt á Þórodds-
stöðum i Hrútafirði í nóvember en ný stöð tók við á Tannstaðabakka í desember. At-
hugunarmaður er Ólöf Ólafsdóttir og athugunartímar þeir sömu og áður á Þóroddsstöð-
um, kl. 9, 12, 15, 18 og 21.
Athuganir féllu niður i Flatey frá mai til desember.
Veðurfarsstöðinni á Kollaleiru í Reyðarfirði var breytt í skeytastöð i ágúst. Athugan-
ir eru gerðar og skeyti send kl. 9, 15. 18 og 21. 1 upplestri í útvarp er stöðin nefnd
Reyðarfjörður. 1 desember var hætt að gera athuganir kl. 6 í Grimsey.
Úrkomusafnmœlar á Mosfellsheiði.
Dagana 19.—21. nóvember voru settir upp þrír úrkomuusafnmælar á Mosfellsheiði
við línuveg Sogslínu 3. Safnmælir T-26 stendur nærri mastri 77/228 í um 197 m hæð
yfir sjó, safnmælir T-27 er við mastur 68/219 í um 257 m hæð yfir sjó og safnmælir
T-28 er við mastur 52/203 í um 310 m hæð yfir sjó. Hæð mælisops allra mælanna er um
4.2 m yfir jörðu. Samvinna er um mælingar þessar við Vatnsveitu Reykjavíkur.
Eftirlitsferðir.
Starfsmenn Veðurstofunnar heimsóttu eftirtaldar veðurathugunarstöðvar:
Akranes
Akureyri
Bergstaði
Dalatanga
Birkihlíð
Dratthalastaði
Eyrarbakka
Eyvindará
Garð II
Grímsárvirkjun
Grindavik.
Gufuskála
Hailormsstað
Heiðmörk
Hóla í Hornafirði
Hvanneyri
Hveravelli
Höfn í Hornafirði
Höskuldarnes
Irafoss
Keflavíkurflugvöll
Kirk j ubæj arklaustur
Korpu
Kvísker
Leirubakki
Möðrudal
Möðruvelli
Raufarhöfn
Reykjavík
— Rjúpnahæð
Sandhauga
Sámsstaði
Sauðanes
Seyðisfjörð
Skaftafell
Strandhöfn
Straumsvík
Stykkishólm
Tannstaðabakka
Tjörn
Torfufell
Vestmannaeyjar
Vopnafjörð
Þorvaldsstaði
Þóroddstaði
Ýmsar athuganir.
Athuganir á skipum: Á eftirtöldum skipum voru gerðar athuganir og skeyti send:
Álafossi, Apríl, Arnarfelli, Árna Friðrikssyni, Bakkafossi, Bjarna Benediktssyni, Bjama
Sæmundssyni, Dettifossi, Disarfelii, Engey, Eldvik, Eyrarfossi, Fjallfossi, Goðafossi,
Goðanum, Grundarfossi, Harðbaki, Hauki, Helgey, Hofsá, Hofsjökli, Hvalvík, Hvassa-
felli, Isbergi, Júní, Jökulfelli II, Kaldbaki, Keflavík, Lagarfossi, Langá, Laxá, Laxfossi,
Ljósafossi, Mar, Mánafossi Mælifelli, Óðni, Rangá, Sögu, Selá, Selnesi, Sigurði, Skafta-
felli, Skaftá, Skeiðsfossi, Skógafossi, Sléttbaki, Snorra Sturlusyni, Stuðlafossi, Suður-
landi, Svani, Tý, Urriðafossi, Vöku, Vali, Vesturlandi, Viðey, Vigra, Ægi, ögra.
Háloftaathuganir voru gerðar tvisvar á sólarhring á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjöldi
athugana var 728, athuganir á vindi voru 725.
Jaröskjálftamælar voru á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Síðumúla, Botni í Reykja-
fjarðarhreppi, Hrauni á Skaga, Hveravöllum, Grímsey, Akureyri, Leirhöfn, Eyvindará,
Miðfell í Nesjahreppi, Kvískerjum og Kirkjubæjarklaustri.
Þenslumælar voru á eftirtöldum stööum á Suðurlandi: Stórólfshvoli, Hellu, Saurbæ
í Holtum, Búrfellsvirkjun, Gljúfurleit við Þjórsá, Jaðri í Hrunamannahreppi, og í
Skálholti. Mælar þessir eru steyptir niður í djúpar borholur, og eru tengdir við skrifara
á yfirborðinu, og er tilgangurinn með þeim, að meta hægfara breytingar á spennu-
ástandi jarðskorpunnar á þessu svæði. I sömu borholum eru hitamælar með mæli-
nákvæmni 1/1000 C°.
(127)