Veðráttan - 02.12.1984, Blaðsíða 35
1984
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Jaröskjálftar
Þann 8. kl. 0653 fannst jarðskjálfti i Reykjahlíöarhverfi. Hann var 2% stig á Richter-
kvarða með upptök á Kröflusvæði. Þann 17. kl. 1442 voru tveir skjálftar með upptök
í ölfusi. Var sá stærri rúmlega 2 stig og fundust báðir á Bjarnastöðum í ölfusi.
Desember:
Hafís. 1 eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar þ. 13. sást hafís djúpt út af Vestfjörðum.
ísinn þakti 10/10 sjávar. 4/10 hlutar íssins var gamall is 2—3 metra þykkur en 6/10 ný-
myndaður þunnur ís 10—30 cm á þykkt. Isjaðarinn var næst landi um 63 sjóm. norð-
vestur af Barða og 68 sjóm. norðvestur af Blakk.
SkaOar og hrakningar. Þ. 15. fuku plötur af húsum á ísafirði og í Ólafsvík. Aðfaranótt
þ. 17. strandaði Sæbjörg VE i vonskuveðri I Hornvík skammt austur af Stokksnesi.
Mannbjörg varð.
Þ. 28. fauk bíll út af vegi i Gilsfirði og beið bílstjórinn bana. Rúta fauk út af vegi
í Kirkjubólshlíð nálægt ísafirði. Bílstjórinn meiddist. Sama dag urðu víða minniháttar
skaðar, mest þó á Akureyri þar sem Súian EA skemmdist illa í höfninni.
1 mánuðinum var allmikið um árekstra og óhöpp af völdum hálku og erfiðra aksturs-
skilyrða, mest þó þ. 4. og þ. 12.
ViÖauki:
Úrkomumælingar á Mjólkárvirkjun júní til október: Úrkoma alls: Júní 29.5 mm,
júli 25.1 mm, ágúst 76.2 mm, september 68.0 mm, október 6.0 mm. Alautt var í byggð
alla mánuðina, en snjóhula á fjöllum 38% i júni og 25% hina mánuðina.
Leiðréttingar.
Apríl 1983: Bls. 30. Reykjanes, lágmark, meðaltal -1.5 (-3.0) lægst -8.4 þ. 9. (-50.8 þ. 8).
Ársyfirlit 1983: Bls. 99. Vestmannaeyjar, fjöldi frostdaga á vorkorti 16 (33) Bls. 10Jt.
Reykjanes, lágmark, meðaltal 1.9 (1.8), lægst —12.5 þ. 29/11 (-50.8 þ. 8/4).
Ársyfirlit 1982: Bls. 101. Miðfell, fjöldi sólskinsstunda 1120 (1132).
Tölurnar í svigum eru þær sem skakkt hafa verið prentaðar.
(131)