Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 87
VIÐBÚNAÐUR OG FRAMKVÆMDIR TIL HAUSTSINS 1981
87
unar, að á grundvelli þess einhugar, sem ríkt hefur um byggingu
Þjóðarbókhlöðu hér á alþingi, sé einsýnt, að þingið muni tryggja
nægilegt fjármagn, til þess að hagkvæmasta framkvæmdahraða verði
haldið.“
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra tók fyrstu skóflu-
stungu laugardaginn 28. janúar 1978, og hófþá fyrirtækið Völur h/fað
grafa fyrir bókhlöðunni. Var þeim áfanga lokið í maí.
í júnímánuði tók nýr verktaki, Lárus Einarsson, til við 2. áfanga, að
steypa sökkla hússins, stokka í grunni og gólfplötu kjallara. En þeim
áfanga lauk í september.
Framkvæmdir urðu engar á árinu 1979, en kjallari hússins var
steyptur 1980. Það verk hófst í ársbyrjun 1980 og lauk síðla sumars.
Þrídrangur s.f. annaðist verkið. I stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Gunn-
ars Thoroddsens, sem kom til valda 8. febrúar 1980, er sérstaklega
tekið fram, að vinna beri að byggingu Þjóðarbókhlöðu á stjórnar-
tímabilinu. Að tillögu Ingvars Gíslasonar menntamálaráðherra, og í
samráðum við byggingarnefnd bókhlöðunnar og samstarfsnefnd um
opinberar framkvæmdir, ákvað ríkisstjórnin að láta steypa í einni lotu
allar fjórar hæðir hússins, og skyldi þeim áfanga lokið árið 1981. Fyrir
því verki hefur staðið Sigurður Bjarnason.
Hornsteirm var lagður í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens
forsætisráðherra, en menntamálaráðherra var þá Ingvar Gíslason og
fjármálaráðherra Ragnar Arnalds.
Byggingarnefnd skipuðu Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður
formaður, Hörður Bjarnason fyrrv. húsameistari ríkisins og Guð-
mundur Magnússon háskólarektor. Framkvæmdadeild Innkaupa-
stofnunar ríkisins hafði umsjón með framkvæmdum, og bygging-
areftirlitsmaður var Diðrik Helgason.
Á plötu, sem fest verður á vegg þann á 2. hæð, sem skýrsla þessi
verður fólgin í, mun standa:
Þetta hús er reist í minningu 11 alda Islandsbyggðar 874—1974, og
hófst vinna við það 1978.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, lagði hornstein að því 23.
september 1981 á 740. ártíðardegi Snorra Sturlusonar.
- ,,en þar váru margir áðrir at, sumir at fella, sumir at telgja, sumir
saum at slá, sumir til at flytja viðu. Váru þar allir hlutir vandaðir mjök
til. Var skipit bæði langt ok breitt“ -.
Úr 88. kap. Ólafs sögu Tryggvasonar í Heimskringlu, frásögn af smíði Ormsins langa.