Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 101
LANDSBÓKASAFNIÐ 1981
101
vík. Með liggur tíningur úr fórum föður Sveinbjarnar, m. a. kvæði, sem
Sveinbjörn segir Þorstein Erlingsson hafa gefið föður sínum.
Jón Daníelsson afhenti f. h. Islendingafélagsins í Stokkhólmi m. a.
Fundagerðabók 1.12.1960—18.1.1976, og bréfasafn.
Þessir afhentu handrit, án þess að þeirra verði hér nánara getið: Jón
Friðriksson, Jón frá Pálmholti skáld, Magnús Sigurðsson lögfræðing-
ur, Skúli Helgason fræðimaður, allir í Reykjavík.
Fandsbókasafn flytur beztu þakkir öllum gefendum handrita eða
þeim, sem beint hafa handritum til þess með öðrum hætti.
ÞJOÐDEIFD Starfsemi þjóðdeildar mótaðist á árinu
injög af þeirri tölvuvinnslu þjóðbóka-
skrárinnar, sem stefnt hefur verið að í áföngum að undanförnu. Afanga
þeim í forritagerð, er vikið var að í seinustu Arbók, var náð á fyrri hluta
ársins, en þá jafnframt farið að hyggja að framhaldinu, gerð svonefnds
ís-MARCkerfis. Tölvunefnd, er í áttu sæti Olafur Pálmason deildar-
stjóri, Páll Jensson forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans og Þórir
Ragnarsson deildarbókavörður í Háskólabókasafni, samdi áætlun og
greinargerð, er Iögð var fyrir hagsýslustofnun og tölvusérfræðing
hennar, dr. Jóhann P. Malmquist. Feiddi það m. a. til þess, að Fands-
bókasafni var veitt aukafjárveiting, er gerði því fært að lausráða að-
stoðarfólk til starfa í þjóðdeild safnsins um þriggja mánaða skeið, svo
að Olafur Pálmason fengi einbeitt sér að þeim undirbúningi ís-
MARCkerfisins, sem vinna þyrfti í safninu, en síðan verði á árinu 1982
kvaddur til tölvusérfræðingur til að fullkomna verkið. Með kerfi þessu
verður ekki einungis lagður grundvöllur að tölvuskráningu íslenzkra
rita, bæði bóka og tímarita, heldur jafnframt erlendra rita í íslenzkum
bókasöfnum, eftir því sem aðstæður leyfa á hverjum stað.
Meðan Olafur vann að umræddu verkefni, hafði Helgi Magnússon
bókavörður umsjón með öðrum rekstri deildarinnar.
Fausráðið starfsfólk þjóðdeildar var Kolbrún Högnadóttir, Sólveig
Jónsdóttir og Ulfur Friðriksson.
DEILD ERLENDRA Fast starfslið var óbreytt frá síðasta ári.
RITA Auk allrar umsjónar með hinum erlenda
bókakosti annast starfsfólk deildarinnar um aðallestrarsal safnsins,
útlán erlendra rita úr safninu o. fl.