Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 98
98
LANDSBÓKASAFNIÐ 1981
Axel Thorsteinson rithöfundur gaf skírnarvottorð og bólusetningar-
vottorð Steingríms skálds föður síns. Hann afhenti og myndabók og
nokkrar lausar myndir úr búi hans, sumar mjög gamlar og merkar.
Snorri Hjartarson: Hauströkkrið yfir mér. Eiginhandarrit. Þorleifur
Hauksson afhenti með samþykki skáldsins að gjöf frá Máli og
menningu.
Frú Nini Anderson, búsett í Brick í New Jersey, dóttir Jóns Stefáns-
sonar listmálara, gaf safn bréfa föður síns, ennfremur nokkrar ljós-
myndir.
Böðvar Guðmundsson cand. mag. afhenti fyrir hönd erfingja hand-
rit foður síns, Guðmundar Böðvarssonar skálds, bæði í bundnu máli og
óbundnu, alls níu böggla.
Frú Bjarnveig Bjarnadóttir gaf Fandsbókasafni fyrir meðalgöngu
dr. Kristjáns Eldjárns og um hendur frú Ástu Jónsdóttur mikið úr-
klippusafn um myndlist, er gefandi dró saman úr íslenzkum blöðum
um 25 ára skeið, 1955—1980.
Dr. Valdimar Eylands, Winnipeg, gaf um hendur sr. Helga
Tryggvasonar endurminningar sínar í vélriti. Þær komu út síðar á
árinu á prenti.
Kver með hestavísum. - Ejóðakver o. fl. Fornbókasalan Bókin af-
henti að gjöf.
Wilhelm Braune: Abriss d. ahd. Grammatik [Fornháþýzk málfræði]
1900, með skrifuðum athugasemdum á spássíum. Ur bókasafni Arvids
Johannsons. Afhent úr Háskólabókasafni.
Safn undirskrifta í eiginhandarriti, alls 5 kver. Ur eigu Sveinbjarnar
P. Guðmundssonar kennara, afhent af syni hans, Tryggva, forstöðu-
manni bókbandsstofu Fandsbókasafns.
Kveldstjarnan, 2. árg. blaðs bekkjarfélags 3. bekkjar Færða skólans
1898-99. Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur afhenti úr búi föður
síns, Þórðar Sveinssonar yfirlæknis, ennfremur safn bréfa til hans.
Óskar Sigvaldason afhenti enn frekari gögn varðandi Unglingaskóla
Ásgríms Magnússonar, sbr. síðustu Árbók.
Anna Jónsdóttir skjalavarðar Guðnasonar gaf ættartölu Einars
Magnússonar bónda í Fremri Vífilsdal og beggja kvenna hans. Ólafur
Snóksdalín samdi 1831, en Sigurður Jóhannesson á Giljalandi skrifaði
upp og bætti um 1940.
Sigrún Sveinsdóttir, Hafnarfirði, færði safninu nokkur gögn úr fór-
um móður sinnar, Ólafar Sigurðardóttur á Gaul í Staðarsveit. Hér eru
m. a. bréf hcnnar til Sigrúnar, kver með rímum af Bálant eftir Guð-