Vísbending - 10.08.1983, Qupperneq 1
VISBENDING &
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL W
4-1 10. ÁGÚST 1983
Hrávörumarkaður:
Miklar og illfyrirsjáanlegar sveiflur.
Viðskípti fram í tímann á
hrávörumarkaði.
Viðskipti með hrávörur fram í
tírnann eru einhver þau áhættu-
sömustu sem um getur. Samn-
ingur er gerður um afhendingu á
vörum á ákveðnum degi í fram-
tíðinni gegn tiltekinni greiðslu á
þeim tíma,' en greiðsla við gerð
samnings er oft ekki nema 5-
10% af heildarupphæð. Flestir
sem kaupa vörur fram í tímann
kaupa í von um hagnað af endur-
sölu, fremur en til notkunar.
Skoðanakönnun Wall Street
Journal.
Wall Street Journal birtir tvisvar
á ári, í janúar og júlí, skoðanir um
20 sérfræðinga blaðsins í verði
á hrávörum á því hvaða hrávörur
þeir telji best að kaupa eða selja
á næstunni. Nú í júlí vildu þeir
flestir kaupa soyabaunir fram í
tímann og næst á listanum voru
„stock-indexfutures“ (sjá nánar
á baksíðu). Þar á eftir komu
bandarísk ríkisskuldabréf, er-
lendir gjaldmiðlar, gull og bóm-
ull. Það eru hitinn og þurrkarnir í
Bandaríkjunum sem valda því að
menn búast við hækkandi verði
á soyabaunum, en hagvöxtur og
bjartari horfur í efnahagsmálum
og lífleg kauphallarviðskipti sem
valda eftirspurn eftir vísitölu-
tengdu hlutabréfunum.
Hækkandi verð á hrávörum.
Almennt er talið að hrávöruverð
sé fremur lágt um þessar mund-
ir, og því lögðu sérfræðingar
WSJ að mestu leyti til kaup frem-
ur en sölu á hrávörum bæði í
janúar s.l. og í júlí. En blaðið
bendir lesendum sínum á, í
gamansömum tón, að betra sé
nú að athuga hvernig fyrri spár
sérfræðinganna hafi reynst áður
en farið sé að fjárfesta. Þannig
hafi þeim í janúarspánum 1983
sést yfir þann vöruflokk sem
hvað mest hefur hækkað síðan,
en það eru landbúnaðarvörur.
Verð fram í tímann á sykri hækk-
aði t.d. um 42%, verð fram í tím-
ann á kakói um 30%, 20% á
maís og 20% á soyabaunum.
Flestir sérfræðinganna veðjuðu
hins vegar á kopar, sem að vísu
hækkaði verulega frá 10. janúar
til febrúarloka, en lækkaði síðan
aftur. Sá sem hefði keypt fyrir
$800 10. janúar og selt í febrúar-
lok hefði getað hagnast um
$1912, en stæði á sléttu, ef hann
seldi núna. Gull, sem næstflestir
spámanna WSJ veðjuðu á, hefur
lækkað í verði. Flins vegar hafa
„stock-index futures" hækkað
um 15% og japanska yenið um
7%.
Hækkar verð á soyabaunum?
Gangi spár um hærra verð á
soyabaunum eftir eru það góð
tíðindi fyrir íslendinga, en sumir
sérfræðingar telja að verðið gæti
hækkað um 15-20% á næstu 6
mánuðum. Úr soyabaunum er
framleitt soyabaunamjöl, sem er
notað til dýraeldis sem prótín-
gjafi og keppirviðfiskmjöláþeim
markaði. Flagur landsmanna af
verðhækkun fiskmjöls er aug-
Ijós. Auk þess gæti hærra verð á
fóðri valdið hærra kjötverði og
síðar hærra verði á fiski þar sem
fiskur og kjöt eru samkeppnis-
vörur. Meðfylgjandi tafla sýnir
viðmiðunarverð frá 29. júlí á
soyabaunamjöli fram í tímann,
mv. 100 tonn, $ pr. tonn:
afhending verð áætl. vextir
september 201.50 8.8
október 204.50 5.5
desember 209.50 17.3
Aðrar verðhækkanir.
Af öðrum verðum fram í tímann
má nefna að búist er við að
„stock-index futures" gætu
hækkað um allt að 20% til ára-
móta og sykur um allt að 45% til
áramóta vegna þurrka og lélegr-
ar uppskeru. Ef vextir lækka í
Bandaríkjunum, eins og sumir
búast við, gæti verð á ríkis-
skuldabréfum þar hækkað um
10-15%. Þá má nefna að sömu
sérfræðingar spá lækkun dollar-
ans á næstu 6 mánuðum og
hækkun yens, svissneskafrank-
ans og DEM um í kringum 20%
á næstu 6 mánuðum.
Efni:
Hrávörumarkaður 1
Gengi krónunnar frá 1979 2
Meðalgengi, raungengi 3
Breytingar á lánskjaravísitölu 4
„Stock-index futures“ 4
Töflur:
Gengi nokkurra gjaldmiðla 2-3
Gengi krónunnar 4
Ritstj. og áb.m.: Sigurður B. Stefánsson
Útgefandi: Kaupþing hf Húsi Verslunarinnar
Kringlumýri 108Reykjavík
Sími: 8 69 88
Öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita með
neinum hætti, svo sem með Ijósmyndun, hljóðrit-
un, eða á annan hátt, að hluta eða í heild, án leyfis
útgefanda.
Umbrotog útlitshönnun: Kristján Svansson
Setning og prentun: ísafoldarprentsmiðja