Vísbending - 10.08.1983, Blaðsíða 2
VISBENDING
-----5-----
Gengi krónunnar síðan 1979.
Miklar sveiflur á gengi helstu gjaldmiðla.
Frá árinu 1979 hafa orðið ein-
hverjar mestu sveiflur á gengi
helstu gjaldmiðla síðan fast-
gengistímabilið leið undir lok í
byrjun síðasta áratugar. Sem
dæmi má taka gengi á þýsku
marki miðað við dollara. Markið
hækkaði um 8.5% á síðari hluta
ársins 1979, lækkaði mjög hratt
framan af ári 1980, hækkaði
síðan fram til júlí og lækkaði því-
næst um 30% frá júlí 1980 til
ágúst 1981. Margar af Evrópu-
myntunum fylgdu markinu að
mestu, en sterlingspund, yen og
Kanadadollari höguðu sér allt
öðru vísi og hvert með sínum
hætti. Á slíkum tímum er því ekki
auðvelt að stjórna gengismálum
smáþjóðar eins og íslendinga,
þar sem efnahagslífið er að auki
háðara náttúrufarslegum og
veðurfarslegum sveiflum en í
stærri ríkjum. Eins og línuritin
gefa til kynna hafa líka orðið
miklar breytingar á gengi helstu
gjaldmiðla í krónum síðustu
fjögur árin. Annars vegar hefur
meðalgengi krónunnar lækkað
mikið gagnvart flestum gjald-
miðlum vegna miklu meiri hraða
verðbólgunnar heima fyrir en
víðast annars staðar. Hins vegar
hafa gjaldmiðlar hækkað mismik-
ið í verði vegna þeirra umbylt-
inga á gjaldeyrismarkaði sem
vikið var að í upphafi.
Verð á erlendum myntum, 1982= 100
Verð á erlendum gjaldeyri í
krónum.
Verð á dollara var að meðaltali kr.
3,54 á árinu 1979 en var kr.
27,85 í lok júlímánaðar sl. og
hafði því margfaldast 7.87 sinn-
um frá meðaltalinu 1979. Á sama
tíma, þ.e. frá meðaltalinu 1979 til
júlíloka 1983, hefur verð á yeni
margfaldast 6.88 sinnum, verð á
pundi margfaldast 5.63 sinnum,
og verð á þýsku marki margfald-
ast 5.52 sinnum. í töflunni eru
sýnd verð á þessum fjórum
myntum að meðaltali (sölu-
gengi) á árinu 1979 og í des-
emberárin 1980, 1981 og 1982,
ásamt stöðunni í júlílok í ár, og
prósentuhækkanir frá meðaltali
1979.
Þessar myntir og dagsetningar
eru að vísu valdar af nokkru
handahófi en ættu að nægjatil að
sýna hve mikil skekkingin milli
gengis þessara gjaldmiðla hefur
orðið síðan 1979, en sú „skekk-
Lógariþmaskali á lóörétta ás
ing“ er aðallega til komin vegna
innbyrðis hreyfinga milli gengis
þessara mynta eins og að ofan
greinir. Þegar höfð eru í huga lán
í þessum gjaldmiðlum og að auki
tekið tillit til þess hve vaxta-
munurinn milli gjaldmiðlanna er
mikill er Ijóst hve mikilvægt er að
veðja á réttan gjaldmiðil eða
blöndu, þegar erlend lán eru
tekin.
Skrikkjottur ferill meðalgengis og
raungengis krónunnar.
Hitt atriðið þessu tengt, sem ætl-
unin var að fjalla um hér, er hinn
skrikkjótti ferill meðalgengis
krónunnar, en þar er ekki eins
hægt að skella skuldinni á inn-
byrðis hreyfingar milli erlendra
mynta. Á þessu tímabili eru tvö
skeið þar sem ákveðið var að
halda gengi krónunnar alveg
föstu (frá maílokum 1983 og frá
byrjun árs 1981). Þáeru á þess-
um árum einnig nokkrar gengis-
1979 1980 des. % 1981 des. % 1982 des. % 1983 29.7. %
dollari 3.54 5.96 68.4 8.21 132 16.47 365 27.85 687
yen 0.016 0.028 75.0 0.038 138 0.068 325 0.11 588
UKpund 7.52 13.96 85.6 15.66 108 26.66 255 42.37 463
DEM 1.91 3.03 58.6 3.64 91 6.81 257 10.54 452
Gengi nokkurra gjaldmiðla.
1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1981 1982
I II III IV I II
US$/UK pund . 1.81 1.75 1.92 2.12 2.33 2.03 1.75 2.31 2.08 1.84 1.88 1.85 1.78
DKR/$ 6.05 6.00 5.51 5.26 5.64 7.12 8.33 6.47 7.15 7.64 7.24 7.77 8.11
IKR/$ 1.82 1.99 2.71 3.53 4.80 7.22 12.35 6.40 6.92 7.62 7.96 9.67 10.67
NKR/$ 5.46 5.32 5.24 5.06 4.94 5.74 6.45 5.35 5.68 6.09 5.84 5.95 6.08
SKR/$ 4.36 4.48 4.52 4.29 4.23 5.06 6.28 4.55 4.88 5.30 5.52 5.74 5.90
Fr. frankar/$ . .. 4.78 4.91 4.51 4.25 4.23 5.43 6.57 4.86 5.42 5.81 5.65 5.99 6.28
Svi. frankar/$ .. 2.50 2.40 1.79 1.66 1.68 1.96 2.03 1.90 2.03 2.10 1.83 1.87 1.99
Holl. flor./$ .... 2.64 2.45 2.16 2.01 1.99 2.50 2.67 2.28 2.53 2.70 2.47 2.58 2.64
DEM/$ 2.52 2.32 2.01 1.83 1.82 2.26 2.43 2.09 2.28 2.43 2.24 2.35 2.38
Yen/$ 297 269 210 219 227 221 249 206 220 232 225 233 244