Vísbending


Vísbending - 19.10.1983, Blaðsíða 1

Vísbending - 19.10.1983, Blaðsíða 1
VISBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL 14.1 19. OKTÓBER 1983 Forsendur fjárlagafrumvarps 1984: Stefnt að ört minnkandi verðbólgu, litlum launahækk- unum og svipuðu raungengi og á árinu 1982 Stefna stjórnvalda í verðlags-, launa- og gengismálum. í síðustu viku var fjárlagafrumvarp ársins 1984 lagtfram á Alþingi. Ýmsir þættir frumvarpsins hafa þegar verið skýrðir nokkuð í fréttum. Með frum- varpinu er mörkuð stefna stjórnvalda í ríkisfjármálum á næsta ári og for- sendur frumvarpsins um laun, verð- lag og gengi eru einnig lagðar til grundvallar í lánsfjáráætlun og þjóð- hagsáætlun. I stuttu máli er reiknað með að laun opinberra starfsmanna hækki um 6% frá desemberverðlagi 1983 til meðaltals næsta árs og gengi krón- unnar verði haldið „sem stöðugustu á árinu 1974 “. Sé miðað við um 10% breytingar framfærsluvísitölu frá upphafi til loka árs 1984 má eftir þessum upplýsingum áætla viðbótar- tölur um verðbólgu, kaupmátt og raungengi. Þessum áætlunum er lýst á myndunum í opnunni og þær bornar saman við þá verðbólguspá sem birtist í Vísbendingu 31. ágúst s.l. Miðað er við sömu forsendur og lagðar voru til grundvallar i „mið- spá", en spáin erendurreiknuð í Ijósi leiðréttra talna fyrir mánuðina ágúst til október 1983. Annars staðar í opn- unni er fjallað um samanburð við „lægra tilvik", en í því var miðað við sama kaupmátt og í forsendum fjár- lagafrumvarps, þ.e. þann kaupmátt sem verður i desember í ár. Árið 1983 Sé míðað við engar gengisbreytingar það sem eftir er af árinu 1983 hækkar vísitala raungengis úr 85 (m.v. 1982=100) í júní sl. í um 100 í des- ember. Raungengi yrði þá mjög svipað í desember 1983 og að meðaltali á árinu 1982. Meðaltal árs- ins 1983 yrði hins vegar liðlega 91. Breyting framfærsluvísitölu yrði um 77% frá upphafi til loka ársins og um 84% að meðaltali milli áranna 1982 og 1983. Vísitala kaupmáttar m.v. 1982=100 yrði um 74 á síðasta árs- fjórðungi í ár (án tillits til „mildandi aðgerða"), en kaupmátturyrði um 82 að meðaltali í ár og um 73 í síðasta mánuði ársins. Verðbólgan 1984 Forsendur fjárlagafrumvarps um kauplag og verðlag er engan veginn hægt að kalla spár um kauplag og verðlag. En í athugasemdum með frumvarpinu (bls. 176) kemur skýrt fram að með frumvarpinu er mörkuð stefna í launamálum gagnvart starfs- mönnum ríkisinsog þærstærðírsem hafðar eru til viðmiðunar í verðlags- og gengismálum verða einnig að telj- ast markmið stjórnvalda á þessu sviði. Við gerð frumvarpsins er gert ráð fyrir að verðlag á árinu 1984 verði að meðaltali 4% hærra en í árslok 1983. Gæti framfærsluvísitala í árslok orðið um 394 (er 376 nú í október) og ætti því að verða að meðaltali um 414 á næsta ári. Að meðaltali yrði verð- bólgan milli áranna 1983 og 1984 þá um 27% og verðbólga frá upphafi til loka árs 1984 rétt innan við 10%. Hækkun byggingarvísitölu gæti orð- ið heldur minni, um 8-9% frá upphafi til loka ársins samkvæmt forsendum fjárlagafrumvarps og um 23% að meðaltali milli áranna 1983 og 1984. Kaupmáttur Eflaunáárinu 1984eiga aðmeðaltali ekki að verða meira en 6% hærri en í desember 1983 gætu laun t.d. hækkað um liðlega 7% í byrjun marsmánaðar, en yrðu síðan að standa í stað það sem eftir er árs 1984. Kaupmáttur kauptaxta yrði þá að meðaltali 73 miðað við 100 árið 1982. Er það sama stig kaupmáttar og í desember 1983 en um 11-12% lægra en að meðaltali í ár og um 27% lægra en á árinu 1982. Hér er miðað við árið 1982 vegna þess að tölur frá því ári eru nvjastar tölur sem til eru fyrir heilt ár. A það skal jafnframt bent að á þvf ári var halli á viðskiptum við útlönd um 10% af þjóðartekjum og hár kaupmáttur væntanlega meðal þeirra þátta sem því ollu. Auk þess er áætlað að þjóðartekjur dragist saman um 4,5% í ár. Raungengi í athugasemdum með fjárlaga- frumvarpi segir að miðað sé við að „unnt verði að halda gengi krón- unnar sem stöðugustu á árinu 1984". Til að ná þeim markmiðum í verðlagsmálum sem að framan greinir virðist gert ráð fyrir um 3-4% hækkun á verði erlends gjaldeyris á árinu. Raungengi yrði þá um 1% hærra en að meöaltali 1982. Hér virðist miðað við að ekki verði veru- leg lækkun á gengi dollarans gagn- vart evrópumyntum. Fari svo að gengi dollarans falli um 10-20% til loka næsta árs frá því sem nú er, gæti þurft að koma til frekari lækkunar krónunnar gagnvart evrópumyntum vegna versnandi viðskiptakjara. Óvissa um tímatafir? Eins og fram kemur á myndunum er í forsendum fjárlagafrumvarps reikn- að með mun minni hækkunum launa, verðlags og gengis heldur en fram koma í þeirri verðbólguspá sem sett var fram í Vísbendingu 31. ágúst sl. Sú spá er hér endurtekin m.v. óbreyttar forsendur um laun og gengi en með leiðréttum tölum fyrir mánuðina ágúst til október í ár. Leggja stjórnvöld áherslu á að með þeirri stefnumörkun í ríkisfjármálum, peningamálum og launa-og gengis- málum sem í fjárlagafrumvarpinu Efni: Forsendur fjárlagafrumvarps 1 Bandaríkjadollari 2 Töflur: Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4 Endurreiknuö verðbólguspá 1984 og forsendur fjárlaga- frumvarps 4

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.