Vísbending


Vísbending - 19.10.1983, Síða 2

Vísbending - 19.10.1983, Síða 2
VISBENDING 2 Bandaríkjadollari: Gengið hefur lækkað nokkuð frá því sem hæst var í ágúst Forsendur fjárlagafrumvarps, framh. felst sé brotið blað í efnahagsstjórn hér á landi. í verðbólguspánni í Vísbendingu 31. ágúst er tekið tillit til áhrifa af pen- ingamagni í umferð á verðlag, gengi og atvinnu á næstunni. Ljóst er að vöxtur margra peningastærða, svo sem peningamagns M3 og útlána bankakerfisins, sem nú er á bilinu 70-100%, er arfleifð núverandi ríkis- stjórnar frá fyrri tímum. Tímatafirnar í áhrifum peningamagns á verðlag og framleiðslu eru það miklar og óvissar að draga verður í efa að krónan lækki ekki meira í verði á næsta ári en fram kemur í forsendum fjárlaga- frumvarps. Það sem ber á'milli mark- miða stjórnvalda í verðlags- og kaup- gjaldsmálum á næsta ári og spár- innar frá 31. ágúst er fyrst og fremst sú skoðun að á næsta ári muni enn í vændum lækkandi verðgildi krón- unnar vegna fjármála- og peninga- stjórnar á árunum 1981 og 1982. Sé þetta rétt (og vonandi er að svo sé ekki), gæti það gengi sem stjórnvöld stefna að, reynst of hátt og aukið hættu á viðskiptahalla og samdrætti í útflutningsframleiðslu. Gengi dollarans hefur farið hægt lækkandi undanfarnar vikur og vex þeim nú ásmegin sem lengi hafa spáð þessari lækkun. Kann svo að fara að byrjunar októbermánaðar verði minnst sem þeirrar stundar þegar dollarargengið loks lét undan síga fyrir efnahagslegum öflum, svo sem háskalegum halla á ríkis- búskapnum í Bandaríkjunum og sívaxandi halla í viðskiptum við útlönd. Vextir hafa örlítið lækkað undanfarið i Bandarikjunum, en ekki er búist við mikilli eða áframhaldandi lækkun vaxta. Könnun á vegum Euromoney í októberhefti tímaritsins Euromoney eru birtar niðurstöður könnunar blaðsins meðal tuttugu fjármálastjóra og þekktra hagfræðinga í bönkum á horfum á gengi dollarans og vöxtum í Bandaríkjunum. Segja má að niður- stöðurnar hafi verið á eina lund; allir áttu von á lækkun á gengi dollarans fram til júlíloka 1984, þótt menn greindi á um hversu mikil lækkunin yrði. Gengi pundsins var um 1,50 dollarar í septemberbyrjun, og spáð var lækkun dollarans í 1,54-1,89 dollara í pundi; flestir þeirra sem þátt tóku í könnuninni spáðu í kringum 1,60. Gengi þýska marksins m.v. dollara var um 2,69 í septemberbyrj- un og spáð var lækkun dollarans í DM 2,57-2,10 í júlílok 1984, flestir spáðu nálægt DM 2, 30-2,40. Gengi svissneska frankans var um 2,18 í septemberbyrjun og spáð var lækkun dollarans í 2,05-1,70 og voru flestir þátttakendur í kringum 1,90-2,00. Gengi yensins var um 245 í byrjun septembermánaðar og spáð var lækkun dollarans gagnvart yeni í 240 til 205 og voru flestir í kringum miðju þess bils. Gert er ráð fyrir að gengi franska frankans og lírunnar verði veikburða gagnvart þýsku marki, svissneska frankanum og yeni, er dollarinn tekur að lækka. Asamt marki, yeni og svissneska frankanum er búist við að hollenska flórínan hækki gagnvart dollara úr um 3,00 í septemberbyrjun í um 2,55 í lok júlí næsta ár. Þá er reiknað með að escudos og pesetar verði áfram veik, jafnvel búist við um 25% lækkun escudos. Breytingar framfærsluvísitölu. Sýnd eru framreiknuð gildi framfærsluvísitölunnar miðað við forsendur fjárlagafrumvarps, „miðspá" frá 31.8. og „lægra tilvik" 31.8. I „miðdæmi" er reiknað með að kaupmáttur verði að meðaltali um 77 (1982=100) eða svipaður og í ágúst I ár. I „lægra tilviki" er reiknað með sama kaupmætti og í fjárlagafrumvarpi, 73, eða desember kaupmætti. Munurinn á fjárlagadæmi og „lægra tilviki" er einkum vegna mismunandi forsendna um gengi og tengist áhrifum af peningaþenslu á fyrri hluta þessa árs á verðlag og gengi á næsta ári eins og nánar er lýst í texta.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.