Vísbending - 19.10.1983, Side 3
VÍSBENDING
3
Ekki búist við vaxtabreytingum
( könnun þessari var almennt talið að
ekki væri að vænta mjög mikilla
breytinga á vöxtum í Bandaríkjunum
næsta árið frá því sem nú er. Aukin
eftirspurn eftir lánsfé vegna aukinnar
framleiðslu og vegna hallans á oþin-
berum rekstri mun stuðla að háum
vöxtum, og hættan á vaxandi verð-
bólgu og of mikilli aukningu peninga-
magns leiðir ekki til lækkunar. Virðast
nú æ fleiri komast á þá skoðun að
háir vextir nægi ekki til að halda gengi
dollarans jafn háu og áður í Ijósi þess
mikla misvægis sem hefur verið að
myndast í Bandaríkjunum í oþin-
berum rekstri og í utanríkisviðskipt-
Samanburður á forsendum
fjáriagafrumvarps um verð-
lagsmál og „lægra tilviki“ verð-
bólguspár frá 31. ágúst
Sákaupmáttur, sem miðað ervið i fjár-
lagafrumvarpi, þ.e. kaupmáttur des-
embermánaðar í ár, er svipaður og
reiknað er með í „lægra tilviki “ verð-
bólguspár frá 31. ágúst sl. (vísitala
kaupmáttar 73 mv. 1982=100). I
„ lægra tilvikinu “ er þó gert ráð fyrir að
verðbólga yrði um 26-28% frá upphafi
til loka ársins og sem dæmi eru nefnd-
ar 8-9% launahækkanir I mars, júni og
i október. Þar sem kaupmáttarfor-
sendur eru hinar sömu í þeim reikning-
um sem hér eru bornir saman, stafar
munurinn á 10% verðbólgu frá upphafi
til loka árs í fjárlagafrumvarpi og 26-
28% verðbólgu í „lægratilviki" af mis-
munandi forsendum um gengi. I fjár-
lagafrumvarpi er gert ráð fyrir 13-14%
hækkun á verði erlends gjaldeyris að
meðaltali milli áranna 1983 og 1984,
en í „lægra tilvikinu" er gerð ráð fyrir
um 27-28% hækkun á verði erlends
gjaldeyris milli áranna. Raungengi yrði
3-4% lægra 1984 í „lægra tilvikinu"
en i fjárlagafrumvarpi.
um.
1982 1983 1984
Vfsitölur kaupmáttar kauptaxta og raungengis. Raungengi lækkaði mjög framan af árinu 1983 frá því sem var 1982. Raun-
gengi er reiknað sem meðalgengi krónunnar m.v. aðra gjaldmiðla að teknu tilliti til mismunandi verðbólgu á Islandi og (
viðskiptalöndunum. Eftir að farið var að halda meðalgengi krónunnar stöðugu frá lokum maímánaðar í ár tók raungengi
að hækka vegna meiri verðbólgu á (slandi en I nágrannalöndunum.! fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir heldur hærra raun-
gengí að meðaltali en var á árinu 1982. Hátt raungengi þýðir hlutfallslega lágt verð á innflutningi miðað við ínnlenda fram-
leiðslu og um leið hlutfallslega lágt verð í krónum fyrir útflutningsframleiðslu.