Vísbending


Vísbending - 26.10.1983, Síða 1

Vísbending - 26.10.1983, Síða 1
VISBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL 15.1 26. OKTÓBER 1983. Olfumarkaöur: Orkunotkun eykst í heiminum en ekki er búist við verðhækkun á olíu Olla ekkl eins mikilvæg vestrænum rikjum og áður Heildarorkunotkun í heiminum minnkaði ár frá ári frá 1979 til 1982. Olíunotkun dróst einnig saman á þessum árum, úr 64,1 milljónum tunna á dag (mtd) 1979 í 58,5 mtd 1982. Olíuverð hækkaði úr 19 dollur- um tunnan 1979 í 31,51 dollara 1980, og í 35,01 dollara árið 1981, en lækkaði síðan í 32,60 dollara tunnan 1982. í ár er útlit fyrir að meðalverð á olíu verði 29,35 dollarar tunnan. Horfur eru á aukinni framleiðslu á Vesturlöndum í ár og á næsta ári og búist er við aukinni eftirspurn eftir olíu. En sambandið á milli framleiðslu og olíunotkunar er ekki eins visst og áður vegna almenns orkusparnaðar og vegna þess að olía hefur að nokkru leyti vikið fyrir öðrum orku- gjöfum, einkum kjarnorku og kolum. Vestræn ríki eru nú mun óháðari olíuinnflutningi frá OPEC ríkjum en áður. Líklegt er olíunotkun aukist með vaxandi framleiðslu, einkum í framleiðslugreinum iðnaðar og í samgöngum. Þó er talið að olíunotk- un aukist ekki eins mikið og orku- notkun í heild. Kol eru um þessar mundir ódýr orkugjafi og talið er að kolanotkun aukist af þeim sökum. Ekki er búist við verulegri hlutfalls- legri aukningu á gasnotkun, né held- ur aukinni notkun sólarorku og vind- orku. Óbreytt oiíuverð á næstunni? Á næstu vikum er það þó einkum vetrarveðráttan sem hefur áhrif á olíueftirspurn og olíuverð. Ofan- greindar breytingar á olíuþörf og olíumarkaði hafaíförmeð séraðtor- veldara er að segja fyrir um olíuverð nú en fyrr. Almennt mun ekki búist við breytingum á viðmiðunarverði olíu, 29 dollurumátunnu.aðminnsta kosti ekki fyrr en undir lok ársins. Olíuinnflutningur vestrænna ríkja og bað fjárstreymi sem honum tengist Samband olíuverðs og verðbólgu. Auknlng verðbólgu i % frá núverandi stöðu. Olíuverð US Japan Þýskaland Frakkland Bretland OECD 29 - - - - - - 32 0,7 0,5 0,5 0,7 0,5 0,6 34 1,2 0,8 0,8 1,2 0,8 1,0 38 1,9 1,3 1,3 1,9 1,3 1,7 40 2,3 1,7 1,7 2,3 1,7 2,1 50 4,7 3,3 3,3 $/tunnu 4,7 3,3 4,2 $/tunnu / . ,0ECD verðbólga ■ ■ • *. * m # « •*. m m ' / . • m * m # Jl # #T # m # # m m V # # # # 40 30 20 10 73 75 77 79 81 83 Heimlld: Financial Times, Simon and Coales getur haft veruleg áhrif á gengi doll- arans auk þess sem dollarinn hefur áhrif á olíueftirspurn. Hagvöxtur í Bandaríkjunum hefur aukið olíuinn- flutning þangað í sumar mikið, og hefur vöruskiptahallinn ekki minnkað við það. En OPEC ríkin eiga líka við mikinn viðskiptahalla að glíma- og hafa nú gripið til þess að selja eignir skráðar í dollurum til að létta undir, en áður höfðu OPEC ríkin einkum selt aðrar eignir en þær sem skráðar eru í dollurum. Sjálft hágengi dollarans hefur hækk- að olíuverð og dregið úr olíueftir- spurn utan Bandaríkjanna. Þá hefur olíuverð einnig veruleg áhrif á verð- lagsþróun í ríkjum sem háð eru olíu- innflutningi. Meðfylgjandi tafla yfir áætlað samband olíuverðs og verð- breytinga birtist nýlega í Financial Times, en tölurnar eru frá Simon and Coates, þekktu ráðgjafarfyrirtæki í London. f þjóðhagsáætlun ársins 1984 (sjá nánar í opnu) er gert ráð fyrir að inn- flutningsverð í dollurum hækki um 2,5-3,0% milli áranna 1983 og 1984. ( spám OECD er reiknað með 2,5% meðalhækkun á innflutningsverði OECD ríkja í dollurum á árinu 1984, en þar af er gert ráð fyrir 2,5% lækk- un olíuverðs, þ.e. úr 29,35 dollurum tunnan í ár (um 28,60 næsta ár. Verð á olíuinnflutningi íslendinga er háð Rotterdammarkaði og því er hyggi- legra að reikna með heldur hærra verði. Efni: OUumarkaður 1 Þjóðhagsáætlun 1984 2 Fastgengi og dollarafótur 3 DM/yen 3 Vaxtalækkun 4 Töflur: Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4 Vextir 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.