Vísbending - 14.06.1984, Side 1
VISBENDING &
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL \l/
23.2 14. JÚNI1984
Hrávörumarkaður
Ekki er búist viö miklum hækkunum á næstunni
Breyting á markaðinum
Verðbólgan á vesturlöndum á síð-
asta áratug stafaði m.a. af miklum
hækkunum á hrávöruverði. Eins og
kunnugt er fjórfaldaðist t.d. olíuverð
árið 1973 og í kjölfarið hækkaði meðal-
verð á ýmsum mikilvægum hrávörum
um liðlega 80% á árunum til 1980.
Síðan 1980 hefur verð á olíu og mörg-
um öðrum hrávörum einnig verið til-
tölulega stöðugt. Álitið er að skýringin
sé ekki aðeins minni eftirspurn á vest-
urlöndum á árunum 1981 og 1982
þegar framleiðsla var í lægð heldur
einnig aukið framboð.
Hrávöruverð hefur að vísu hækkað
nokkuð frá árslokum 1982 með vax-
andi eftirspurn og aukinni framleiðslu.
Verð á ýmsum hrávörum til iðnaðar og
á matvælum í Bandaríkjunum er nú
um 26% hærra en í árslok 1982 en þó
ekki eins hátt og þegar verð á hrá-
vörum var hæst árið 1980. Ef olía og
matvæli eru frátalin hækkuðu aðrar
hrávörur um 5% í Bandaríkjunum árið
1983, en það ár telst fyrsta ár fram-
leiðsluaukningar eftir lægðina 1981-
82. Sömu vörur hækkuðu um 12% árið
1976, fyrsta ár eftir lægðina 1973-75.
Aukið framboð
Mikið framboð er talin vera helsta
skýringin á því að hrávöruverð hefur
ekki hækkað mun meira með aukinni
eftirspurn. Ennfremur er búist við að
framboð muni vaxa heldur hraðar en
sem nemur framleiðsluaukningu á
vesturlöndum á næstu árum og þess
vegna muni ekki mikilla hækkana að
vænta. Stórskuldug ríki, bæði í róm-
önsku Ameríku og i Afríku, eru meðal
helstu hrávöruframleiðenda í heimin-
um. Þessi ríki þurfa að auka fram-
leiðslu sína og tekjur eins og mögulegt
er til að ráða við greiðslur af borgana og
vaxta af erlendum skuldum. Til dæmis
hafa Argentína og Brasilía stóraukið
framleiðslu sína á landbúnaðarvörum
og einnig tekist að auka hlutdeild sína
í markaðinum. Vegna mikillar fram-
leiðslu er talin minni hætta á verð-
sveiflum þegar framleiðsla skreppur
saman í einu landi. Þurrkarnir í Banda-
ríkjunum í fyrrasumar ollu t.d. ekki
verulegum verðbreytingum vegna
þess að vörur frá Kanada, Ástralíu,
Argentínu og Brasilíu komu á markað-
inn í staðinn.
Þá hefur það einnig áhrif að hag-
vöxtur utan Bandaríkjanna er enn
fremur hægur. Stjórnvöld í mörgum
ríkjum í Evrópu og í Japan hafa verið
treg til að grípa inn í og auka umsvif í
ríkjum sínum, þrátt fyrir mikið atvinnu-
leysi, af ótta við að vekja upp verð-
bólgu á nýjan leik.
Háir vextir
Vextir hafa hækkað nokkuð í Banda-
ríkjunum og víðar á síðustu vikum og
mánuðum en meira munar þó um þá
hækkun á raunvöxtum sem orðið hefur
síðustu árin. Tekjur og framleiðsla
hafa almennt mun meiri áhrif á hrá-
vöruverð en vextir. Vextir hafa þó ein-
hver áhrif og fremur til lækkunar vegna
þess að birgðahald verður dýrara.
Einnig má nefna að vaxtahækkunin
eykur skuldabyrði, en mörg þróunar-
ríkjanna eru í senn miklir hrávörufram-
leiðendur og umvafin erlendum skuld-
um. Eins og vikið var að hér að ofan er
líklegt að aukin skuldabyrði verði til
þess að skuldugu ríkin reyni að auka
útflutningstekjur sínar og þar með
framboð á hrávörum.
ísland
Að mörgu leyti eru íslendingar í svip-
uðum sporum og þróunarríkin - verð
á útf lutningsmarkaði fer ekki hækkandi
og greiðslubyrðin vegna erlendra
skulda er þung. Hrávöruverð hefur að
vísu bæði jákvæð og neikvæð áhrif á
viðskiptakjörin. Stöðugt verð á olíu og
ýmsum öðrum hrávörum sem við flytj-
um inn til framleiðslu og neyslu hamlar
á móti hækkunum innflutningsverðs.
Verð á útflutningsafurðum okkar vegur
þó miklu þyngra. Það er af sem áður
var að verð á fiski og fiskafurðum fylgdi
hagsveiflunni í Bandaríkjunum og færi
hækkandi með vaxandi framleiðslu.
Vísitala hrávöruverðs án
olíu og matvæla
160-
140--------------------------
120-1———1—1—1—1---—l—l—I—I—
1973 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84
Samkeppnin frá Kanadamönnum og
Norðmönnum er meginskýringin
ásamt þeim áhrifum á hrávörumarkaði
sem greint var frá að framan. Ef þær
hugmyndir um hrávöruverð sem hér
hefur verið lýst eru nærri lagi virðist því
ekki að vænta mikils viðskiptakjara-
bata á næstu árum. Áframhaldandi
sókn inn á neytendamarkað í Banda-
ríkjunum og í Evrópu virðist því án efa
rétta leiðin til að tryggja markaðsverð-
mæti sjávarafurða okkar.
Efni:
Hrá vörumarkaður 1
Bartdaríkjadollari 2
Gjaldeyrisstýring 3
Töflur:
Raungengi 4
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4