Vísbending - 07.11.1984, Side 3
VÍSBENDING
3
YFIRLIT
Viömiöunargengi EMS-myntanna
Gjaldeyriskerfi Efnahagsbanda-
lagsiandanna, EMS, hefur verið í
jafnvægi síðustu misseri, en stöðug-
leikann má að verulegu leyti rekja til
hækkunar á gengi dollarans. Síðasta
breyting á viðmiðunargengi EMS-
myntanna var gerð í mars 1983.
Verulegur ntunur er þó á þróun
et'nahagsmála í ríkjum Efnahags-
bandalagsins og líklegt er að til
endurskoðunar á viðmiðunargengi
EMS-myntanna komi á fyrri hluta
næsta árs. Þá er búist við 4-6%
hækkun á gengi þýska marksins
gagnvart öðrum myntum í kerfinu
nema gyllini, sem einnig gæti hækkað
um 2-4% gagnvart hinum myntun-
um.
Gróska og festa í þjóðarbúskap
Vestur-Pjóðverja hefur ekki til þessa
haft þau áhrif að raska jafnvægi
EMS-myntanna vegna þess hve gengi
marksins hefur verið veikt gagnvart
Bandaríkjadollara. Hert aðhald í
fjármálum Frakka, ítala, Belgaogíra
hefur einnig stuðlað að betra jafn-
vægi í EMS-kerfinu og stórlega
dregið úr þeim mismun sem verið
hefur á verðhækkunum ntilli þessara
þjóða og jöfnuði gagnvart útlönd-
um.
Efnahagsbandalagið hefur þannig
náð verulegum árangri í að samhæfa
einahagsstefnu í aðildarríkjunum og
stuðlað með því að stöðugleika
gjaldeyrismálum. Þótt Bretar eigi
aðild að Efnahagsbandalaginu er
sterlingspundið ekki meðal mynt-
anna í evrópska gjaldeyriskerfinu,
EMS. í Bretlandi eru deildar rnein-
ingar um það hvort tengja beri gengi
pundsins við EMS-kerfið. Gengi
pundsins yrði þá þvingað til að taka
minni breytingum en til þessa. A
árunum 1980/81 kostaði eitt ster-
lingspund um tíma 2,40 dollara, en
verð á einu pundi í dollurum er nú,
sem kunnugter, komiðí l,20dollara.
Þrátt fyrir þetta (sjá krossgengis-
töflu) hefur gengi pundsins verið
allstöðugt gagnvart mörgum Evt-
ópumyntum. Verð á olíu hefur þó
allmikil áhrif á gengi pundsins og
telja margir Bretar að of mikil
þvingun yrði á gengi pundsins, sem
síðustu árin hefur algerlega ráðist á
frjálsum markaði, að tengja það
myntkerfi Efnahagsbandalagsland-
anna.
Holland
Fyrir utan þýska markið er hol-
lenskagyllinið án efa sterkasti gjald-
miðillinn í EMS-kerfinu og er það að
þakka harðri aðhaldsstefnu holl-
enskra stjórnvalda. Hagvöxtur í
Hollandi var um 1% árið 1983,
verður líklega um 2% í ár og gæti
orðið 2,5% á árinu 1985. Þessi
framleiðsluaukning er þó of lítil til að
liafa áhrif á atvinnuleysi í Hollandi
sem er mikið áhyggjuefni.
Verðbólga í Hollandi er litlu meiri
en í Þýskalandi (um 2-3%) og
verulegur afgangur er í viðskiptum
við útlönd, um 5 milljarðar dollara í
ár og 4 milljarðar dollara á næsta ári.
Komi til lækkunar á gengi dollarans
gagnvart helstu gjaldmiðlum á
næstunni er líklegt að til hækkunar
komi á gengi gyllinisins. Gengi
gyllinisins gæti þá hækkað nokkuð
gagnvart dollara og flestum EMS-
myntum, en lækkað gagnvart þýsku
marki, svissneskum franka og yeni.
Frakkland
Hörð aðhaldsstefna franskra
stjórnvalda í efnahagsmálum eftir
kúvendinguna í fyrra hefur valdið
ntikilli lækkun verðbólgu og nokk-
urri lækkun vaxta. Verðbólgan var
komin niður fyrir 8% um mitt þetta
ár og LIBOR vextir (sex mánaða) á
frönskum franka voru innan við 12%
í síðasta mánuði en voru yfir 15% í
fyrrasumar. Vaxtalækkunin hefur þó
ekki haft umtalsverð áhrif til lækk-
unar á gengi franska frankans.
Reiknað er með um 1 % hagvexti í
Frakklandi í ár en ef til vill um 2,5% á
næsta ári. Þrátt fyrir að tekist hafi að
lækka verðbólgu í Frakklandi á síð-
asta ári er engu að síður gert ráð fyrir
að hún verði meiri þar en í Þýskalandi
og Bandaríkjunum. Halli í viðskipt-
um við útlönd varð fjórir milljarðar
dollara árið 1983 og gert er ráð fyrir
eins og hálfs til tveggja milljarða doll-
ara halla á ári næstu fimm árin. Af
þessum ástæðum er líklegt að gengi
frankans lækki gagnvart þýsku marki
og gyllini næstu árin. Einnig má búast
við að gengi frankans lækki gagnvart
dollara þegar lengra er litið, þótt
einhver hækkun gæti orðið ef gengi
dollarans veikist á næstunni.
írland
Irskum stjórnvöldum hefur tekist
að draga verulega úr hallanum á
opinberum rekstri og minnkað
hallann í viðskiptum við útlönd um
helming. Þannig hefur verðbólga
verið minnkuðniðurfyrir 10%. Spáð
er tæplega 9%verðbólgu á írlandi í ár
og urn 8% árið 1985. Með þessumóti
hefur tekist að halda gengi írska
pundsins í jafnvægi innan EMS-
kerfisins. Ef til breytingar kemur á
viðmiðunargengi myntanna í EMS er
þó búist við að gengi þýska marksins
verði hækkað um 6% gagnvart írsku
pundi. Samkeppnisstaða íra hefur
nokkuð veikst í sumar vegna þess að
gengi sterlingspundsins hefur lækkað
talsvert miðað við írska pundið sem
tengt er EMS-myntunum.
Belgía
í Belgíu voru gerðar ráðstafanir í
efnahagsmálum snemma á þessu ári
til þess að minnka hallann á opin-
berum rekstri og minnka verðbólgu,
en gengi belgíska frankans var afar
veikt gagnvart EMS-myntunum.
Tekist hefur að draga verulega úr
fjárlagahalla og minnka verðbólgu,
og reiknað er með að jöfnuður náist í
viðskiptum við útlönd á næsta ári.
Hagvöxtur er þó lítill og atvinnuleysi
afar mikið. Þrátt fyrir aðhaldsað-
gerðirnar er gert ráð fyrir að gengi
belgíska frankans verði áfram veikt,
og komi til breytingar á viðmiðun-
argengi EMS-myntanna er búist við
um 6% hækkun á gengi þýska
marksins gagnvart belgískum franka.