Vísbending


Vísbending - 28.11.1984, Side 2

Vísbending - 28.11.1984, Side 2
VÍSBENDING 2 Hágengi dollarans_________________________________________________________ Viðskipti vegna alþjóðlegra skulda þung á metunum á gjaldeyrismarkaði Hafa mikil áhrif á gengi dollarans Alþjóðlegar skuldir allra ríkja nema nú um 3.000 milljörðum dollara. Kannanir benda til þess að allt að 4%, þ.e. allt að 120 mill- jörðum dollara, sé endurkræft á hverjum einasta degi. í samanburði við þessar fjárhæðir eru þær 500 milljónir dollara sem þarf að fjár- magna á dag vegna fjárlagahalla Bandaríkjamanna harla lítilfjör- legar. Dagleg viðskipti á alþjóð- legum gjaldeyrismarkaði eru að verulegu leyti millibankaviðskipti og ekki er hægt að líta hjá því að þau eru að miklu leyti vegna erlendra skulda hinna ýmsu ríkja. Þetta vill oft gleymast þegar verið er að skýra hátt gengi dollarans og háa vexti í Bandaríkjunum. Þessar hreyfingar á gjaldeyrismarkaði eru svo um- fangsmiklar að nauðsynlegt er að hafa þær í huga til að fá rétta mynd af framboði og eftirspurn á alþjóð- legum gjaldeyrismarkaði. Kenningin um kaupmáttarjöfnuð Flestir telja gengi dollarans vera of hátt skráð ef marka má greinar og skrif í blöðum og tímaritum. „Of hátt“ í þessum skilningi þýðir að það sé ódýrara að kaupa vörur utan Bandaríkjanna í þeim gjaldmiðlum sem þar gilda heldur en að kaupa sömu vörur fyrir dollara í Banda- ríkjunum. Sé þetta rétt er eðlilegt að dollarar séu seldir til að kaupa aðra gjaldmiðla og við það ætti gengi dollarans að lækka uns það telst ekki lengur of hátt. Ennfremur má benda á að aðeins það að dollara- gengið er talið of hátt ætti í raun að hafa í för með sér offramboð á dollurum og gengislækkun. Kenn- ingin um kaupmáttarjöfnuð milli helstu gjaldmiðla skilgreinir það gengi milli gjaldmiðla sem líklegt er að ráðist á markaðinum. Jafnframt er fólgin í kenningunni eina skyn- samlega viðmiðunin sem menn geta byggt væntingar sínar um gengi helstu gjaldmiðla á. Algengasta skýringin á því að gengi dollarans sé of hátt er sú að vextir í Bandaríkjunum séu háir vegna óeðlilega mikils halla á fjár- lögum Bandaríkjamanna. Jafnframt er fjárstreymi til Bandaríkjanna vegna hárra vaxta ætlað að skýra hvers vegna kenningin um kaup- máttarjafnvægi hefur engan veginn staðist þegar dollarinn á í hlut. Raunar hljómar það hálfólíklega að fjármagn streymi til Bandaríkjanna vegna hárra vaxta ef gengi dollar- ans er þegar of hátt. Frjálst fjár- magn á alþjóðlegum fjármagns- markaði streymir þangað sem vextirnir eru hæstir og þetta fjár- streymi leiðir til vaxtajöfnuðar og kaupmáttarjöfnuðar í gegnum gengisbreytingar en ekki til aukins mismunar í vöxtum og gengi gjald- miðla. Ef gengi dollarans er of hátt þá eru vextir í Bandaríkjunum að teknu tilliti til áhættu alls ekki þeir hæstu í heimi. Engu að síður dregur ekki úr eftirspurn eftir dollurum. Kenningar Ivors Pierce Ivor Pierce, prófessor í hagfræði við háskólann í Southampton á Englandi, hefur bent á að straumar á alþjóðiegum gjaldeyrismarkaði séu í aðra átt en Iögmál markaðar- ins benda til. Telur Pierce að fjár- streymi vegna alþjóðlegra skulda sé eina fyrirbærið sem sé nógu stórt í sniðum til að bjóða lögmálum markaðarins byrginn. Á árunum 1970 til 1983/84 þrítugfölduðust viðskipti á gjaldeyrismarkaði. Milliríkjaviðskipti uxu hins vegar aðeins 5,5 sinnum á sama tíma. Raunar hefur verið áætlað að að- eins 3% af öllum viðskiptum á gjaldeyrismarkaði séu vegna vöru- og þjónustuviðskipta. Um það bil 95% gjaldeyrisviðskipta eru milli banka og aðeins um tíundi hluti er vegna þarfa aðila utan bankanna. Talið er að heildarvelta á gjald- eyrismarkaði á dag sé um það bil 200 milljarðar dollara sem raunar er ekki langt frá öllu dollurum í heimi sem lausir eru til ráðstöfunar á hverjum tíma. Spurningin er hvers vegna bankar ráðast daglega í viðskipti sem nema 200 milljörðum dollara án þess að þau virðist á nokkurn þátt tengd utanríkis- viðskiptum með vörur og þjónustu. Jafnvel þótt nokkur hluti viðskipt- anna sé vegna þess að aðilar á gjaldeyrismarkaði séu að tryggja sig gegn gengistapi er ekki unnt að skýra öll viðskiptin með „trygging- ar“viðskiptum þar sem þau verða ekki til af sjálfu sér; þau eru til þess að tryggja önnur viðskipti. Ivor Pierce bendir þess vegna á að það hljóti að vera önnur góð og gild flokkum og því gætu verðhækkanir orðið með öðrum hætti nú en áður við svipaðar aðstæður. Vextir, gengi, kaupmáttur Skjótar hækkanir vöruverðs sem búast má við á næstunni hljóta að valda vissum vandkvæðum þeim sem ákveða þurfa vexti á óverð- tryggðum reikningum næstu mán- uði. Svo gæti farið að ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikningum með 6,5% vexti yrði um 50% á næstunni. 1 spánum sem birtast á bls. 4 er gert ráð fyrir að gengi krónunnar haldist stöðugt á fyrri hluta næsta árs en sígi lítillega á síðari hluta ársins (um 7-8%). Með því móti yrði verð á erlendum gjaldeyri um 19% hærra að meðaltali á árinu 1985 en í ár og er það svipuð hækkun erlends gjaldeyris og á milli áranna 1983 og 1984. Ekki er gert ráð fyrir um- talsverðum breytingum á gengi milli erlendra gjaldmiðla. Komi til lækkunar á gengi dollarans gagn- vart öðrum myntum á næsta ári gæti lækkun á gengi krónunnar gagnvart öðrum myntum orðið meiri en hér er ætlað. Samkvæmt þeim reikningum sem hér hefur verið lýst kynni kaup- máttur launataxta að verða ívið lægri á næsta ári en í ár. Stefna stjórnvalda er að leitast við að halda svipuðum kaupmætti á næsta ári og á árinu 1984 og virðist ekki þurfa stóran skammt af „mildandi aðgerðum“ til að standa við það. Hér er þó aðeins verið að fjalla um kaupmátt launataxta en eins og kunnugt er gefur hann orðið óljósa mynd af raunverulegum kaupmætti atvinnutekna í landinu.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.