Vísbending


Vísbending - 13.11.1985, Qupperneq 1

Vísbending - 13.11.1985, Qupperneq 1
VfSBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL 45.3 13. NÓVEMBER 1985 Ríkisfjármál Löngu tímabært að ráðast í miklar umbætur á tekjuöflunarkerfi ríkisins Nauðsynlegt að færa skattheimt- una í nútímalegra form í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1986 er gert ráð fyrir að tekjur ríkis- ins á næsta ári verði um 33.540 millj- ónir króna eða um 28,6% af þjóðar- tekjum þess árs. Af heildartekjum ríkissjóðs er gert ráð fyrir að tekju- skattur einstaklinga nettó nemi 1.975 milljónum króna eða um 5,9% og söluskattur alls nemi 13.765 millj- ónum króna eða 41%. Af öðrum tekjustofnum má nefna aðflutnings- gjöld og önnur gjöld af innflutningi (að vörugjaldi meðtöldu), 22,5%, rekstrarhagnað ÁTVR, 5,5%, og launaskatt, 4,2%. Pá eru ótalin 20,9% tekna ríkissjóðs og eru vaxta- Hlutfallsleg skipting ríkistekna eftir tekjustofnum skv. fjárlagafrumvarpi fyrir 1986 % Álagðir skattar í hlutfalli við tekjur % • einstaklinga á greiðsluári H4 2 2 oj-----T---T----T---T----T---r———T----io 1978 79 80 81 82 83 84’ 85'*86‘” ________________*Brádabirda “Áætlun ***spá tekjur, 6,6%, og eignaskattar, 2,5%, stærst ótalinna liða. Af ofansögðu má draga að minnsta kosti tvær ályktanir. Tekjur einstak- linga eru orðnar mjög lítill skattstofn hérlendis miðað við aðrar þjóðir. Hins vegar er meira en tveggja þriðju hluta teknanna aflað með fáeinum stórum, óbeinum sköttum, söluskatti, aðflutningsgjöldum og vörugjaldi. Nokkrir stjórnmálaflokkar og -sam- tök ásamt einstaklingum hafa barist fyrir afnámi tekjuskatts, a.m.k. „af almennum launatekjum" um langa hríð. Nú er svo komið að innan við 6% heildartekna ríkisins fást með álagningu tekjuskatts samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1986 og aðeins um 10% heildartekna sé launaskatti bætti við. Þetta hlutfall er vel innan við það sem gengur og gerist með flestum öðrum þjóðum. Menn eru að jafnaði ófúsir til að greiða miklar fjárhæðir í opinber gjöld. Pess vegna verður að gæta þess að nýta skattstofna skynsamlega, ella verður skattheimtan óeðlilega erfið og skattsvik og skattalegt misrétti meira en nauðsynlegt er. Ofnýting eða vannýting skattstofna eykureinn- ig hættuna á því að menn taki að breyta gerðum sínum vegna sköttun- ar. Dæmi af handahófi eru óeðlilega mikil neysla niðurgreiddra vöruteg- unda á kostnað samkeppnisvara, minni áhugi á aukinni ábyrgð og vinnu vegna hárra jaðarskatta, eða óeðlileg hneigð til slæmra skila vegna þess að söluskattur er orðinn fimm- tungur af útsöluverði vöru og þjón- ustu. Allar líkur benda til þess að skynsamlegt sé að afla hærra hlutfalls opinberra tekna með tekjuskatti til að glata ekki skilvirkni skattheimtu- kerfisins. Skattur á tekjur einstaklinga Samstaðan um lækkun tekjuskatts hefur orðið til þess að tekjur einstak- linga fara nú minnkandi sem tekju- stofn en hana má rekja til tveggja þátta. Tekjuskattur er stighækkandi svo að álagning tekjuskatts og útsvars hefur oft farið yfir helming af jaðar- tekjum. Verðbólgan hefur orðið til þess að skattþrep hefur þurft að end- urskoða árlega í samræmi við hækkun vísitalna. og því oftast valdið óvissu varðandi skattbyrðina. Vegnamjög hárra skatta hafa skattskil ekki orðið sem skyldi þar sem aðstaða manna til framtals tekna til skatts er afar mis- munandi. Besta lausnin, í senn hlut- laus, réttlát og einföld, (sjá um skil- yrði skattlagningar á bls. 2) er að skattleggja allar tekjur einstaklinga jafnt, hvort sem þær eru lágar eða háar, rétt eins og álagningu útsvars hefur verið háttað um árabil. Síðara skýringin á því hve góð sam- staða hefur náðst um lækkun tekju- skatts er sú að innheimta hans ári eftir að teknanna er aflað getur valdið miklu misrétti og erfiðum fjárhag fólks. Óþarft er að nefna sérstök dæmi en margar stéttir búa við miklar sveiflur í tekjum frá ári til árs og því getur hlutfall tekjuskatts af tekjum á greiðsluári sveiflast verulega. Úr þessu má mæta með því að taka upp samtímagreiðslu tekjuskatts eins og raunar hefur Iengi verið til umræðu. Pótt slíkt kerfi sé á engan hátt galla- laust hefur það þó ótvíræða kosti. Framhald á bls. 2 Efni: Tekjuöflun rikisins: Miklar umbætur nauðsynlegar 1 Skilyröi við skattlagningu 2 Tekjuskattur i öörum löndum 3 Útgjaldaskattur i stað tekjuskatts 3 Jafn tekjuskattur *4 Töflur: Eurovextir 4 Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.