Vísbending - 26.02.1986, Side 4
V1SE3END1NG
4
Um lækkandi meöalgengi krónunnar, gengi SDR og gjaldeyrisstýringu
Meðalverð á erlendum gjaldeyri
hækkaði talsvert í síðustu viku eða um
1,5% frá mánudeginum 17. febrúar
til mánudagsins 24. febrúar. Hefur
meðalverð á erlendum gjaldeyri þá
hækkað um 2,8% frá áramótum og er
nú um 22% hærra en að jafnaði í
febrúar í fyrra. Frá áramótum hefur
verð á yeni hækkað langmest eða um
8,9% en Evrópumyntirnar hafa að
jafnaði hækkað um 5,3% frá áramót-
um sé miðað við Ecu. Verð á SDR
hefur hækkað um 2,6% eða svipað og
meðalverð á erlendum gjaldeyri mælt
eftir viðskiptavog.
Um áramótin tók við ný skipting
gjaldmiðlanna í SDR eins og getið var
um í Vísbendingu á þeim tíma (sjá 3.
janúarog 15.janúar 1986). Samsetta
myntin SDR er sett saman úr hlutum
af dollara, sterlingspundi, frönskum
franka, þýsku marki og yeni. Hlutur
hverrar myntar, þ.e. fjöldi senta,
pensa, pfenninga, o.s.frv. í einuSDR,
er settur fastur á fimm ára fresti, fyrst
þann 1. janúar 1981 og í annað sinn
þann 1. janúar sl. í einu SDR eru nú
0,452 dollarar (þ.e. 45,2 sent),
0,0893 sterlingspund, 1,02 franskir
frankar, 0,527 þýsk mörk og 33,4
yen. En vegna þess að gengi þessara
mynta breytist á markaðinum frá degi
til dags sveiflast vægi hverrar myntar í
SDR nokkuð frá einum tíma til ann-
ars. Þannig var vægi hverrar þessara
fimm mynta um áramót og mánudag-
inn 24. febrúar sl. sem hér segirí %:
1. janúar 1986 24. febrúar 1986
dollari 42 39,7
sterlingspund 12 11,4
franskur franki 12 12,7
þýsktmark 19 20,1
yen 1J5 16,1
Skipting gjaldmiðlanna innan SDR
hefur því þegar breyst nokkuð frá ára-
mótum en orsökin er að sjálfsögðu
lækkun á gengi dollarans gagnvart
hinum myntunum öðrum en sterlings-
pundi. SDR er í sjálfu sér ekki til sem
gjaldmiðill í alþjóðlegum viðskiptum
á sama hátt og Ecu nú orðið heldur er
SDR aðeins reiknieining. Þessi
reiknieining er að líkindum meira
notuð hlutfallslega á íslandi en í
nokkru öðru landi í heiminum (ef til
vill að undanskildum þeim löndum
sem miða gengi gjaldmiðils síns við
SDR). Þannig eru lán Fiskveiðasjóðs
miðuð við reiknieiningar Fiskveiða-
sjóðs sem reiknaðar eru á sama hátt
og SDR. Til skamms tíma voru
afurðalán í erlendri mynt öll miðuð
við SDR en í lok síðasta árs fengu
útflytjendur þó heimild til að ráða
sjálfir í hvaða gjaldmiðli þeir taka af-
urðalán sín. Loks má nefna að til sölu
eru spariskírteini ríkissjóðs sem eru
verðtryggð m.v. gengi SDR. Þessi
flokkur ríkisskuldabréfa mun þó ekki
seljast vel í samanburði við önnur
ríkisskuldabréf.
Það frelsi til að velja myntir afurða-
lána sem útflytjendur fengu á síðasta
ári er meira virði en margan grunar
við fyrstu sýn. Tökum sem dæmi fyrir-
tæki sem selur helming afurða sinna
til Bandaríkjanna (í dollurum) en
hinn helminginn til Þýskalands. Með
afurðalán í SDR situr fyrirtækið uppi
með lán í þremur myntum sem það
hefur engar tekjur í, þ.e. í sterlings-
pundum (afar háir vextir), yenum
(hefur hækkað í verði um 36% frá
miðju ári 1985 og um 42% frá febrúar
1985 og er raunar ekki með svo mjög
lága raunvexti heldur) og frönskum
frönkum (gengi breytist svipað og
gengi marksins en vextir eru oft helm-
ingi hærri). Jafnvel þótt þetta dæmi
kunni að virðast óvenjulega óhagstætt
eru í reynd mörg dæmi þess að út-
flutningsfyrirtæki sitji uppi með
vonda gjaldeyristöðu vegna þess hve
mikill hluti erlendra lána er í SDR.
Ættu menn því hispurslaust að not-
færa sér þá möguleika sem bjóðast
með því að taka afurðalán í myntum
sem falla vel að erlendum viðskiptum
fyrirtækisins að öðru leyti.
ri
J2
í
3
Gengisskráning og Euro-vextir
Gengi m.v. dollara (nema í efstu linu m.v. pund) ______________________________________Breytingar i%til24.2. 86 Iri: Euro-vextlr
Feb. 85 meðalg. 30.6. 1985 31.12. 1985 M Vikan 17.2. -21.2.86 Þ M F F 24.2. Feb. 1986 1985 30.6. 1985 31.12. 1985 90 daga lán 20.02.86
1 $/GPB 1.10 1,30 1,44 1.42 1.42 1,45 1,46 1,44 1,46 33,45 12,76 1,54
2 DKR/$ 11,78 10,95 8,97 8,64 8,65 8,53 8,50 8,58 8,45 -28,25 -22,78 -5,77
3 IKR/$ 41,91 41,91 42,12 41,71 41,72 41,52 41,52 41,85 41,72 -0,45 -0,45 -0,95
4 NOK/S 9,45 8,79 7,58 7,32 7,32 7,22 7,18 7,25 7,16 -24,24 -18,60 -5,55
5 SEK/$ 9,31 8,80 7,57 7,42 7,43 7,34 7,31 7,37 7,30 -21,66 -17,07 -3,66
6 FRF/Í 10,06 9,30 7,54 7,20 7,21 7,10 7,07 7,14 7,04 -30,04 -24,34 -6,60
7 CHF/$ 2,80 2,55 2,07 1,94 1,94 1,91 1,90 1,94 1,92 -31,38 -24,86 -7,51
8 NLG/$ 3,73 3,44 2,77 2,65 2,65 2,61 2,60 2,63 2,59 -30,54 -24,75 -6,49
9 DEM/$ 3,29 3,05 2,46 2,35 2,35 2,31 2,30 2,32 2,29 -30,39 -24,93 -6,72
10JPY/S 260,28 249,08 200,77 180,90 182,05 178,65 179,40 183,70 182,65 -29,83 -26,67 -9,03
o
LIJ
81
-o o,
2 S
i %
S5
■£ö
'%'a.
(!) >
p E
I c
O 0)
xo
Gengi íslensku krónunnar
1 Bandaríkjadollari 41,910 41,910 42,120 41,710 41,720 41,520 41,520 41,850 41,720 -0,45 -0,45 -0,95 8,00
2 Sterlingspund 45,894 54,315 60,621 59,082 59,284 60,071 60,447 60,285 60,968 32,85 12,25 0,57 12,56
3 Kanadadollari 31,040 30,745 30,137 29,862 29,869 29,760 29,872 30,061 30,070 -3,13 -2,20 -0,22
4 Dönsk króna 3,5579 3,8288 4,6957 4,8274 4,8216 4,8668 4,8869 4,8800 4,9360 38,73 28,92 5,12 8,75
5 Norsk króna 4,4355 4,7655 5,5571 5,7008 5,6975 5,7535 5,7799 5,7704 5,8280 31,40 22,30 4,8/
6 Sænsk króna 4,4994 4,7628 5,5604 5,6202 5,6162 5,6578 5,6779 5,6780 5,7170 27,06 20,03 2,82
7 Finnskt mark 6,1256 6,6083 7,7712 7,9266 7,9218 7,9954 8,0286 8,0096 8,0712 31,76 22,14 3,86
4,1657 4,5048 5,5890 5,7918 5,7828 5,8475 5,8756 5,8650 5,9274 42,29 31,58 6,05 14,50
9 Belgískurfranki 0,6340 0,6820 0,8375 0,8688 0,8680 0,8776 0,8815 0,8798 0,8892 40,24 30,38 6,17 11,00
14,9880 16,4128 20,3037 21,5311 21,5218 21,6815 21,7981 21,6000 21,7428 45,07 32,47 7,09 3,88
11 Hollenskí gyllini 11,2417 12,1778 15,2099 15,7331 15,7226 15,9020 15,9815 15,9398 16,1106 43,31 32,29 5,92 5,88
12,7286 13,7275 17,1411 17,7769 17,7623 17,9585 18,0443 18,0039 18,2024 43,00 32,60 6,19 4,56
13 ítölsk líra 0,02060 0,02153 0,02510 0,02613 0,02611 0,02638 0,02651 0,02646 0,02674 29,81 24,20 6,53 18,25
14 Austurr. sch. 1,8124 1,9542 2,4361 2,5294 2,5285 2,5559 2,5694 2,5636 2,5923 43,03 32,65 6,41
15 Portug. escudo 0,2315 0,2402 0,2674 0,2744 0,2745 0,2809 0,2777 0,2762 0,2791 20,55 16,19 4,38
16 Spánskur peseti 0,2305 0,2401 0,2740 0,2825 0,2822 0,2853 0,2865 0,2859 0,2890 25,36 20,37 5,47
17Japanskt yen 0,16102 0,16826 0,20979 0,23057 0,22917 0,23241 0,23144 0,22782 0,22842 41,86 35, /5 8,88 6,00
18 írsk pund 39,609 43,027 52,355 53,802 53,740 54,346 54,564 54,447 55,066 39,02 27,98 5,18
19 ECLÍ 28,334 30,932 37,670 38,714 38,699 39,137 39,332 39,246 39,674 40,02 28,26 5,32 10,06
20SDR 40,303 41,857 46,203 47,021 46,980 47,176 47,230 47,247 47,383 17,57 13,20 2,56 8,38
Meðalgengi IKR 139,37 147,60 165,55 167,57 167,57 168,70 169,11 169,12 170,14 22,08 15,27 2,77
Ritstj. og ábm.: Dr. Siguröur B. Stefánsson. Útg : Kaupþing hf, Húsi verslunarinnar, Kringlumýn 108, Reykjavik Simi 68 69 88 Umbrot og úthtshonnun Kristján Svansson Prentun Isafoldarprentsmiöja hf
öll réttindi áskilm Rit þetta má ekki afrita meö neinum hætti svo sem meö Ijósntun. eöa á annan hátt, aö hluta eöa i heild án leyfis útgefanda
26. febrúar 1986