Vísbending


Vísbending - 25.02.1987, Qupperneq 2

Vísbending - 25.02.1987, Qupperneq 2
VÍSBENDING 2 Hrávörumarkaður Olíuviöskipti á alþjóðamarkaði Intemational Petroleum Exchange í London Paö eru ekki einungis aðrir hrá- vörumarkaðir í Bandaríkjunum sem hafa orðið fyrir barðinu á mikilli aukningu hjá NYME. IPE markaður- í London sem þjónar m.a. Brent olíu- svæðinu og stundum er kenndur við það svæði er líka einn þeirra sem hefur átt lítilli velgengni að fagna undanfarið. Orsök þessa má vafalítið rekja til þess að IPE hefur ekki tekist, þrátt fyrir nokkrar tilraunir, að koma af stað viðskiptum með hráolíusamn- inga líkt og gert er á NYME. Eftir mjög slæmt ár 1985 og erfiða byrjun 1986 hefur þó markaðnum tekist að rétta við úr þeirri slæmu stöðu sem hann var í. Hér má nefna tvennt til sem helstu forsendur þess að mark- aðurinn hef'ir náð sér á strik á ný. í fyrsta lagv verða olíuframleið- endur í Norðuujó að hafa slíkan markað heima fyrir til þess að tryggja eigin framleiðslu. Petta sýndi sig í febrúar síðastliðinn þegar olíuverð féll hvað örast. Þá viidu framieið- endur frekar þola gjaldþrot en að búa við þá óvissu fyrir fyrirtækin sem fylgdi síbreytilegu olíuverði. Fyrir stórfyrirtæki sem vinna olíu úr Norðursjó þá er að mati flestra sér- fræðinga nauðsynlegt að hafa Brent markaðinn. Petta er m.a. vegna þess að sú tegund samninga sem einna helst þykir koma til greina að nota um allan heim til tryggingar gegn verð- breytingum er að mati sömu sérfræð- inga ekki nógu góð. Hér er átt við svo kallaðan West Texas Intermediate (WTI) samning en það er einmitt NYME sem býður upp á hann. í öðru lagi þá má segja að mjög mikilvæg breyting hafi átt sér stað hvað varðar samsetningu þeirra sem stunda viðskipti á Brent markaðinum. Fyrir um tveimur árum voru uppi raddir um að mun strangari lög þyrfti að setja um þennan markað vegna tíðra gjaldþrota ýmissa smærri fyrir- tækja sem olíufyrirtækin gerðu samn- inga við. í stað þess að bíða eftir að slíkt gerðist má segja að stærstu olíu- fyrirtækin sem vinna olíu úr Norður- sjó hafi haft frumkvæðið að þeim breytingum sem hér er verið að tala um. Breytingin varsú að í stað þess að gera viðskipti við marga smáa aðila þá var horfið frá því og einungis eru nú stunduð viðskipti milli stærri aðila á markaðnum. Þannig má t.d. nefna að einn stærsti aðilinn í dag er fyrirtækið Morgan Stanley sem er þekkt fyrir margs konar aðra starfsemi á alþjóða- fjármagnsörkuðum en olíuviðskipti. Þessi breyting má segja að hafi skipt sköpum fyrir olíufyrirtækin vegna þess hve miklu minni Iíkur eru á að fyrirtækin sem þau skipta við verði gjaldþrota, eins og áður sagði, en slíkt var orðið nokkuð algengt þegar olíu- verð fór að falla eins og það hefur verið að gera undanfarið rúmt ár. Auk þessa þá geta þessi fyrirtæki gert mun stærri samninga við olíufyrirtæk- in vegna þess hve fjársterk þau eru. A Framhald af bls. 1_______________ ingu myntanna. í heild má segja að helsta orsök þess að dollarinn hefur haldið áfram að falla þrátt fyrir ýmsar aðgerðir eins og t.d. þetta Baker- Miyazawa samkomulagið má rekja til þess að viðskipti Bandaríkjanna við útlönd hafa lítið sem ekkert batnað undanfarið auk þess sem bæði Japan og Þýskaland hafa stöðugt neitað að örva vöxt eigin hagkerfa eins og Bandaríkin hafa sífellt farið fram á við þau. Tillögur um lausn þessa vanda Sú þróun sem myndirnar sýna nær í reynd langt til baka eða allt til þess tíma þegar G-5 fundurinn átti sér stað á seinni helming árs 1985 og sam- þykkt var að stuðla að því að gengi Bandaríkjadollar gagnvart helstu myntum lækkaði. Nú er svo komið að líklegt þykir að ftlndað verði á allra næstu dögum eða vikum af sömu aðil- um og þá funduðu og nú er vanda- málið hvernig hægt sé að stöðva áframhaldandi lækkun dollarans gagnvart sömu myntum. Ýmsar til- Iögur hafa verið settar fram hvað þetta varðar eins og t.d. tillögur Frakka sem útlistaðar eru hér á eftir í grófum dráttum. Áður en slíkt verður þó gert þá er rétt að benda á að Bandaríkjamenn hafa nú í alllangan tíma lagt á það áherslu að það sem verði að koma til í löndum eins og Japan og Vestur-Þýskaland sem hafa hagstæðastan viðskiptajöfnuð, en dollari hefur einmitt lækkað einna mest gagnvart myntum þessara landa, er að vextir verði lækkaðir með það fyrir augum að örva innlenda eftir- spurn í löndunum sem að mati Banda- ríkjamanna hefur verið of Iítil til þessa. Að tilstuðlan franska fjármálaráð- herrans E. Balladur hafa Frakkar nú áform um að leggja fram nýjar tillögur varðandi gengis- og gjaldeyrismál sem þeir telja að geti leitt til meiri stöðugleika á gjaldeyrismörkuðum en verið hefur. Þær tillögur sem hér um ræðir miðast við að taka upp mun samtengdari stjórnun peningamála almennt innan Efnahagsbandalags Evrópu, eins og reyndar kveðið er á um í upphaflega sáttmála bandalags- ins, og þá sérstaklega innan landa aðila evrópska gjaldeyriskerfisins. í fyrsta lagi er um að ræða að taka upp miklu samstilltari stjórnun peninga- mál í formi nánara samstarfs seðla- banka viðkomandi landa og þá sér- staklega með tilliti til þess þegar Gengisskráning nokkurra mynta gagnvart dollar ---------Seölabankinn......Wall Street Joumal 25. febrúar 1987

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.