Vísbending - 10.02.1988, Síða 4
VISBENDING
4
Skuldir og útflutningur
Hlutfall erlendra skulda af
landsframleiðslu er ekki heldur
einhlítur mælikvarði á skulda-
byrði. Þetta á sér þá einföldu
skýringu, að útflutningstekjur
þjóða, og þar með geta þeirra til
að greiða vexti og afborganir af er-
lendum skuldum, geta verið
mismunandi, jafnvel þótt tekjur
þeirra séu hinar sömu.
Þess vegna er hlutfall erlendra
skulda af útflutningstekjum yfir-
leitt talið vera áreiðanlegri mæli-
kvarði á erlendar skuldir en hlut-
fall skulda af landsframleiðslu.
Með útflutningstekjum er hér átt
við tekjur af útflutningi bæði vöru
og þjónustu. Sé þessi kvarði not-
aður, verður listinn yfir tíu skuld-
ugustu þjóðir heims aðeins
öðruvísi en áður, eins og sýnt er í
töflu 3.
Tafla 3:
Hlutfall erlendra skulda og útflut-
ningstekna
Erlendar skuldir
sem hlutfall
útflutningstekna
í árslok 1985
(i prósentum)
1. Sómalía ........................... 1.710
2. Nígaragúa ......................... 1.370
3. Malí .............................. 1.060
4. Madagaskar .......................... 730
5. Máritanía ........................... 510
6. Zaíre ............................. 510
7. Marokkó ............................. 490
8. Senegal ............................. 490
9. Perú ................................ 450
10. Kosta Ríka ......................... 430
Heimild: The Economist: The Worid in Figures
1987.
Af þessum tölum má sjá, að
Sómalir væru meira en 17 ár að
endurgreiða erlendar skuldir og
gerðu ekki annað á meðan að öðru
jöfnu. Til samanburðar var hlut-
fall erlendra skulda íslendinga af
útflutningstekjum í árslok 1985
um 110% og þar með miklu lægra
en þyrfti til að komast á listann
yfir tíu skuldugustu þjóðirnar á
þennan mælikvarða. Við værum
því um 13 mánuði að endurgreiða
skuldir okkar við útlendinga að
öðru óbreyttu.
Heildarskuldir
Það er eftirtektarvert, að marg-
ar skuldugustu þjóðir heims, svo
sem Brasilíu og Mexíkó, er hvergi
að finna á þessum listum. Ástæðan
er sú, að þessar þjóðir og aðrar,
sem skulda öðrum þjóðum hæstar
upphæðir, eru fjölmennar og
þokkalega efnaðar yfirleitt og hafa
því góð skilyrði til að standa skil á
skuldum sínum. Tíu skuldugustu
þjóðirnar og erlendar skuldir
þeirra í dollurum eru taldar í töflu
4.
TaHa 4: Heildarskuldir
Erlendar skutdir
i milljörðum
Bandankjadollara
i ársiok 1985
1. Brasilía ................................ 86
2. Mexíkó .................................. 78
3. Indland ................................. 42
4. Indónesía ............................... 42
5. Argentína ............................... 38
6. Suður-Kórea ............................. 35
7. Tyrkland ................................ 23
8. Egyptaland .............................. 22
9. Alsír ................................... 18
10. Filippseyjar .......................... 18
Heimild: The Economist: The Worid in Figures
1987.
Til samanburðar nema skuldir
íslands rösklega 1 milljarði dollara
og eru því hverfandi í þessu
samhengi. Erlendar skuldir allra
þróunarlanda í heild námu um 780
milljörðum dollara í árslok 1985.
ísland og skuldugustu löndin
Hversu þung er skuldabyrði
íslendinga í samanburði við
skuldabyrði þeirra þjóða, sem
skulda mest?
Tafla 5 sýnir hlutfall erlendra
skulda af landsframleiðslu þeirra
20 þjóða, sem skulda öðrum þjóð-
um mest, auk íslands. Nú er ísland
sem sagt borið saman við sæmilega
stöndugar þjóðir, en ekki blá-
snauð Afríkulönd. ísland hafnar í
áttunda sæti í þessum samanburði,
en er þó eftir sem áður eina há-
tekjulandið á listanum ásamt ísra-
el. Til samanburðar námu er-
lendar skuldir Brasilíu 41% af
landsframleiðslu í árslok 1985 og
Mexíkó 44%.
Tafla 5:
Hlutfall erlendra skulda og lands-
framleiðslu skuldugustu
þjóðanna
Eriendar skuldir
sem hlutfall
af landsframleiðslu
i árslok 1985
(í prósentum)
1. Marokkó ................................ 128
2. Perú .................................... 93
3. Chfle ................................. 90
4. Israel .................................. 76
5. Portúgal ................................ 68
6. Argentína ............................... 55
7. Filippseyjar ............................ 55
8. Island .................................. 51
9. Malaysía ................................ 51
10. Indónesía .............................. 48
Heimild: The Economist: The Worid in Figures
1987 og Sedlabanki Islands fyrir Island.
Niðurlag
Hversu skuldugir erum við þá,
íslendingar?
Svarið fer eftir því, við hvaða
þjóðir við berum okkur saman. Af
því töluefni, sem hér hefur verið
lýst, má ráða, að margar aðrar
þjóðir bera mun þyngri skulda-
bagga en við. Þessar þjóðir eru þó
allar margfalt fátækari en við og
þurfa því að færa miklu meiri fórn-
ir til að standa skil á skuldum
sínum. Hins vegar er skuldabyrði
okkar íslendinga miklu þyngri en
skuldabyrði grannþjóðanna og
annarra efnaþjóða, sem við berum
okkur yfirleitt saman við. Það er
alvarlegt umhugsunarefni.
Ritstj. og ábm.: Finnur Geirsson. Útg.: Kaupþing hf. Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7.103 Reykjavik. Slmi 68 69 88. Umbrot og útlitshönnun: Kristján Svansson.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita með neinum hœtti svo sem með Ijósritun eða á annan hátt að hluta eða í heild sinni án leyfis útgefanda.