Vísbending - 26.10.1988, Síða 4
VÍSBENDING
FRAKKLAND:__________________________
Hagvöxtur byggir á traustari stoðum
en aður, en afram mikið atvinnuleysi
Á undanförnum árum hafa Frakkar
markvisst unnið að breytingum í frjáls-
ræðisátt og þá einkum á fjármagns-
markaði. Pað eru ekki mörg ár síðan
Frakkar stýrðu peningamagni með út-
lánatakmörkunum og þeir stýrðu fjár-
festingum m.a. með því að bjóða upp á
mishagstæð lánakjör. (Allt fram til
1984 fyrirfundust 54 mismunandi leið-
ir til að afla lána með niðurgreiddum
vöxtum). Þá hefur hlutafjármarkaður-
inn orðið mun virkari en áður, og t.d.
hefur verið komið á sérstökum mark-
aði fyrir lítil fyrirtæki. t þessu sam-
bandi skiptir líka máli að mikil einka-
væðingarherferð hefur gengið yfir og
munu alls 138 opinber fyrirtæki hafa
verið seld einkaaðilum á aðeins tveim-
ur árum. Nú hefur sósíalistastjórnin
sem tók við völdum í vor ákveðið að
hægja ferðina í þessum efnum þótt í
meginatriðum verði áfram haldið á
frjálsræðisbraut, m.a. vegna áætlun-
arinnar um sameiginlegan markað
EB-ríkjanna árið 1992.
Flvort sem ofangreindar breytingar
eru ástæðan eða ekki, þá er samt ljóst
að efnahagur Frakka stendur að ýmsu
leyti á traustari fótum en áður. Hag-
vöxtur er t.d. í ár áætlaður á milli 3 og
4%, sem er meiri vöxtur en átt hefur
sér stað á s.l. tíu árum. Og að þessu
sinni er hann ekki drifinn áfram af
aukinni neyslu eins og á undanförnum
árum, heldur af vaxandi útflutningi og
auknum fjárfestingum. Frakkar virð-
ast einnig hafa náð nokkuð góðum
tökum á verðbólgu, en hún er þar á-
ætluð verða innan við 3% í ár. Er
Frökkum það mikið metnaðarmál að
verðbólga fari ekki mikið fram úr
verðbólgu í V.Þýskalandi, enda er
slíkt einkar mikilvægt vegna samstarfs
þjóðanna í Evrópumyntkerfinu. í
þessu sambandi hefur það skipt miklu
máli að launakostnaður hefur vaxið
minna í Frakklandi en víðast annars
staðar. Kaupmáttur launa hefur t.d.
aukist um aðeins 0,7% árlega á sein-
ustu 5 árum og hlutdeild launa í þjóð-
artekjum hefur á sama tíma lækkað
um 4% (niður í 69,2%).
Þetta breytir hins vegar engu um
það að atvinnuleysi er ennþá mjög
mikið í Frakklandi og fátt sem bendir
til að úr rætist í bráð. Það er 10,4% um
þessar mundir og samkvæmt nýlegri
spá er gert ráð fyrir að atvinnuleysið
vaxi upp í 11,6% árið 1990. Hafa
stjórnvöld nú í bígerð áætlanir um
starfsþjálfun og aðra aðstoð við at-
vinnulausa í þeim tilgangi að leysa
vandann. Svo mikið er þó víst að ekki á
að leysa hann með auknum halla á rík-
issjóði, þar sem ríkisstjórnin hefur
boðað áframhaldandi minnkun hall-
ans. Samt hafa skattar ríkisins lækkað
og eiga að lækka enn frekar, en þar
hafa tekjur af sölu ríkisfyrirtækja
hjálpað mikið til. Þetta breytir því hins
vegar ekki að þegar litið er á opinbera
geirann í heild sinni, þá hefur skatt-
byrði aukist úr 42,8% árið 1982 í
44,7% í fyrra.
BRASILÍA:
Fjármálaráöherra hyggst beita að-
haldi í ríkisfjármálum sem höfuð-
vopn gegn óoaveröbólgu_____________
Brasilíumenn hafa löngum þurft að
þola afar mikla verðbólgu, en hún hef-
ur sjaldan verið eins mikil eins og um
þessar mundir, eða um 2000% á árs-
grundvelli. Og það aðeins rúmlega
tveimur árum eftir umfangsmiklar
efnahagsaðgerðir sem fólu aðallega í
sér launa- og verðstöðvun. Ríkisfjár-
málin hafa hins vegar setið á hakanum
og t.d. jókst halli ríkissjóðs úr 4% af
landsframleiðslu í 7% árið 1987. Nú er
ætlun fjármálaráðherrans, Mailson
Fereira da Nobrega, að gera alvöru úr
því að ráðast að orsökum verðbólg-
unnar og leggur hann í því skyni höf-
uðáherslu á minnkun ríkissjóðshall-
ans. Var ætlunin að minnka hallann
niður í 4% af landsframleiðslu á þessu
ári og í 2% á því næsta, en það er í sam-
ræmi við samkomulag ríkisstjórnar-
innar við erlenda lánadrottna, sem
hafa sett þetta skilyrði fyrir möguleg-
um skuldbreytingum.
Það gerir fjármálaráðherranum
erfitt fyrir í þessu sambandi, að fólk
hefur mjög takmarkaða trú á árangur
efnahagsaðgerða eftir bitra reynslu
undanfarinna ára. Aðhaldsáætlun
ráðherrans á líka eftir að þýða versn-
andi afkomu fyrir fólk, a.m.k. til
skamms tíma litið, enda gengur hún
undir nafninu „baunir og hrísgrjón“
vegna þess að margir munu væntan-
lega neyðast til að halda sig eingöngu
við þessar fæðutegundir. Það kann
líka að standa í vegi fyrir árangri í þess-
um efnum að nýlega voru sett lög sem
banna hærri raunvexti en 12%, en að-
hald í peningamálum verður ekki síð-
ur nauðsynlegt en aðhald í ríkisfjár-
málum ef árangur á að nást.
EB:__________________________________
Framkvæmdanefndin reynir að eyða
áhyggjum Ianda utan EB um verndar-
stemu________________________________
Lönd utan EB hafa sem kunnugt er
haft verulegar áhyggjur af því að ein-
angrast frá „sameiginlega markaðin-
um“ eftir að hann verður að veruleika.
Þetta á jafnvel við um lönd sem hafa
þegar náð fótfestu með eigin fyrirtæki
innan EB, þar sem engin afdráttarlaus
yfirlýsing hefur legið fyrir um annað.
Leiðtogar EB hafa gjarnan vísað þess-
um ásökunum á bug, án þess þó að
veita viðkomandi aðilum fullvissu fyrir
því að utanaðkomandi fyrirtæki fái að
njóta sams konar skilyrða. Nýlega
sendi framkvæmdanefndin hins vegar
frá sér yfirlýsingu um að ótti annarra
ríkja um aukna verndarstefnu væri
ástæðulaus.
í yfirlýsingunni segir að Evrópu-
bandalagið sé stærsti útflytjandi í
heiminum og stendur fyrir 1/5 af
heimsviðskiptunum. Það væri þess
vegna alls ekki í þágu bandalagsins að
reisa múra viðskiptahindrana um-
hverfis sig. Þar að auki myndu við-
skiptaþjóðir bandalagsins eiga eftir að
njóta þess að skipta við svo stóran
markað sem væri laus við landamæra-
hömlur og hefði staðlaðar reglur.
Yfirleitt var yfirlýsingunni vel tekið,
en þó eru ennþá verulegar efasemdir
til staðar um að allir fái að njóta jafn-
ræðis. Ýmsum bandarískum og
japönskum bankastofnunum þykir
t.d. ekki tekið nægilega skýrt fram að
útibú þeirra í Evrópu fái að njóta sömu
möguleika og innlendar bankastofn-
anir á meðan sams konar heimildir
liggi ekki fyrir í þeirra heimalöndum.
Ritstj. og ábm.: Finnur Geirsson.
Útg.: Kaupþing hf. Húsi Verslunarinnar,
Kringlunni7.103 Reykjavík. Sími 68 69 88.
Umbrot og útlitshönnun: Kristján Svansson.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita með
neinum hætti svo sem með Ijósritun eða á
annan hátt að hluta eða í heild sinni án leyfis
útgefanda.