Vísbending - 23.11.1988, Blaðsíða 1
VIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
46.6 23. NÓVEMBER1988
BREYTT
MYNSTUR
ORKUNOTK-
UNAR
Dr. GtiðiniinúiirMagnússon
Orkunotkun og hagvöxtur____________
Allar athuganir staðfesta jákvætt
samband milli orkunotkunar og hag-
vaxtar. Petta er ofur eðlilegt því að
framleiðslan krefst orku, fjármagns,
vinnu og annarra aðfanga. Þótt fram-
leisluaðferðir séu oft þannig að þessir
þættir séu notaðir í nokkuð föstum
hlutföllum geta þeir einnig komið í
stað hvers annars að vissu marki, sér-
staklega til lengri tíma litið. Pví fer það
eftir verði þeirra hve mikið er hag-
kvæmast að nota af þeim á hverjum
tíma. Þetta kemur berlega í ljós ef litið
er á orkunotkun fyrir og eftir olíuskell-
ina á áttunda áratugnum. Lækkun
olíuverðs á heimsmarkaði nú er ekki
tilviljun. í fyrsta lagi minnkaði orku-
notkun vegna minni hagvaxtar, sér-
staklega meðan hækkunarholskeflur
olíunnar riðu yfir. í öðru lagi hefur
verið leitað allra leiða til að spara orku
og breyta framleiðsluaðferðum. í
þriðja lagi hefur leit að nýjum olíu-
lindum borið góðan árangur þannig að
áhrif OPEC-ríkja hafa minnkað. Allt
þetta sýnir vel að skortur er afstætt
hugtak, háð verði, tækni og hugviti
ekki síður en náttúruauðlindum.
Betri nýting orkunnar
Ótrúlegur árangur hefur náðst í
orkusparnaði síðastliðin fimmtán ár.
Hús eru betur einangruð en áður, bíl-
1. mynd AflþÖrf
Samanburður á nýrri og eldri spám Orkuspárnefndar MW
Heimildir: Orkuspámefnd 1985.
2. mynd Raforkuspár
Samanburður á nýrri og eldri spám Orkuspárnefndar TWh/ári
Heimildir: Orkuspámefnd 1985.
ar, skip og flugvélar eru hannaðar með
sparneytni í huga, afgangsorka er nýtt,
dreifikerfi hafa verið stórlega endur-
bætt o.s.frv.
Ekki síður hafa menn leitað nýrra
leiða til að -nota aðra orku en olíu og
leitast við að leysa orkunotkun al-
mennt af hólmi með nýjum fram-
leiðsluaðferðum. Á tíma voru gerðar
tilraunir með framleiðslu “gervields-
neytis“, svo sem úr alkóhóli og lýsi.
Kjarnorkan var álitlegur kostur um
hríð, en hún á sér vart uppreisnar von í
bráð eftir hin geigvænlegu slys sem
orðið hafa í Bandaríkjunum og Rúss-
landi.
Allt þetta hefur valdið því að sam-
bandið milli hagvaxtar og orkuþarfar
hefur breyst bæði í heild og í einstök-
um atriðum. Áætlað hefur verið að
milli 1975 og 1985 hafi orkunotkun
sem hlutfall af landsframleiðslu
Bandaríkjanna minnkað um 24%.
Hér er átt við orkunotkun á fram-
leiðslueiningu í dollurum reiknað en
ekki áhrif hagvaxtarins, sbr. 3. mynd.
Athyglisvert er að hlutur raforku hef-
ur heldur aukist, sem er sennilega
einkum vegna meiri brennslu á kolum
Efni:
• Breytt mynstur orkunotkunar
• Gengisfelling og skuldabyrði
fyrirtækja__________________
• Erlend fréttabrot