Vísbending - 22.06.1989, Qupperneq 1
VIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
24.7. 22. JÚNÍ 1989
GENGI,
VEXTIR
OG
HAMSTUR
GENGISFELLING OG INNFLUTNINGUR*
ÁRIN 1968 OG 1974
1968 Medaltal þriggja næstu ára á undan
% ......................... .............................
1974 Medaltal þriggja næstu ára á undan
% ------------------------ ------------------------------
* Innflutningur hvers mánaöar er sýndur sem hlutfall af þjóðarframleiöslu
Dr. Guðmundur Magnússon
Samspil gengis og vaxta
Á frjálsum gjaldeyrismarkaði þar
sem mynlir ganga kaupum og sölum
veldur aukin eftirspurn eftir tilteknum
gjaldmiðli hækkun á gengi hans að
öðru jöfnu. Ástæður aukinnar eftir-
spurnar geta verið mismunandi; meiri
ásókn í fjármagn, innlausn á eldri
kröfum, aukið traust á gjaldmiðlinum
vegna góðs árangurs í efnahagsmálum,
vaxtahækkun eða væntingar um hana
o.fl. Hluti þessa gæti birst í mynd
spákaupmennsku, þ.e. kaupunt á mynt
til að selja aftur eftir skamma hríð.
Væntingar um gengisbreytingu hafa
einnig áhrif á innkaupavenjur einstakl-
inga og fyrirtækja, sbr. hamstur fyrir
gengisfellingar.
Af framansögðu leiðir að unnt er
að stuðla að breylingunt á gengi
gjaldmiðils með því að hafa áhrif á
vexti og væntingar. Það er reyndar
raunvaxtamunur milli landa sem skiptir
máli í þessu sambandi. Sem dæmi má
nefna að bandaríkjadalur hefur að
undanförnu hækkað hressilega
gagnvart vestur-þýsku marki og
japönsku jéni. Menn eru því að velta
því fyrir sér hvað sé jafnstöðugengi
þessara gjaldmiðla og hver verði
viðbrögð landanna við risi dollarans.
Fæstir búast við 'vaxtalækkun í
Bandaríkjunum fyrr en ntenn hafa
sannfærst um að verðbólguhætta sé
liðin hjá þar í landi. Á hinn bóginn
búast margir við vaxlahækkunum í
Vestur-Þýskalandi og Japan. Er þetta
bæði vegna þess að þessi lönd eru
ekkert alltof hrifin af því að verðbólga
aukist hjá þeim með dýrari innflutningi
og eins vegna þess að tilraunir til að
aftra frekari hækkun dollarans með
sölu dollara af háll'u seðlabankanna
hafa ekki dugað til að hefta uppgang
hans.
Gengi og spákaupmennska
Það virðist útbreiddur misskilningur
að spákaupmennska í gjaldmiðli sé
alltaf til ills. Þctta er sennilega vegna
Efni:
• Gengi, vextir og hamstur
• Hlutaskipti: Trygging gegn
atvinnuleysi (síðari hluti)
• Erlend fréttabrot