Vísbending


Vísbending - 08.10.1992, Side 1

Vísbending - 08.10.1992, Side 1
V V i k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 8. október 1992 40. tbl. 10. árg. Ríkið missir ekki tök á bönkunum þótt það selji þá í nýju fjárlagafrumvarpi segir að selja skuli ríkiseignir fyrir 1.500 milljónir króna árið 1993. Engin áætlun hefur verið birt um hvað eigi að selja og í hvaða röð, en ljóst þykir að koma þurfi stærri fyrirtækjum í verð en þegar hefur verið gert, ef markið eigi að nást. Senni- legt þykir að ráðamenn hafi Búnaðar- bankann í huga. Að líkindum verður frumvarp um að breyta ríkisbönkum í hlutafélög lagt fyrir þing í haust þannig að hægt yrði að byrja að selja bankann fyrirárslok 1993. Því hefur verið haldið fram að bankar séu svo mikilvæg fyrirtæki að ríkið geti ekki sleppt hendinni af þeim. Til dæmis yrðu sparifjáreigendur vart látnir tapa innstæðum sínum þótt einkabanki yrði gjaldþrota. Margtertil íþessu. Glæfra- menn gætu unnið mikinn skaða ef þeir fengju að leika lausum hala í banka- rekstri. En í raun hættir ríkið alls ekki afskiptuin af rekstrinum þótt það selji bankana. Bankaeftirlit hefur aðgang að öllu bókhaldi banka og sparisjóða og getur sagt þeim fyrir verkum ef það telur að ekki sé nægrar varúðar gætt í rekstri, eða að reksturinn sé að öðru leyti í ósamræmi við lög og eðlilega viðskipta- hætti. Hins vegarreynireftirlitið ekki að fá bankana til þess að lána einum fremur en öðrum, ef báðireru jafntraustir, hvað þá að það útvegi vanhæfum fyrirtækjum lán, til þess að halda uppi atvinnu. Vitað er að stjómmálamenn hafa gert hvort tveggja. Ætla má að pólitísk sjónarmið hafi ekki lengur áhrif á lánveitingar bankanna, en á hinn bóginn baka afskipti • Sala ríkisbanka • Lífeyrismál • Vinnumarkaður • Fasteignaverð stjómmálamannaafútlánum fyrráámm Landsbankanum enn vandræði. Eigendur Islandsbanka krefjast arðs af eign sinni eins og eigendur annarra einkafyrirtækja. Ríkisbankar greiða aftur á móti engan arð. Getur verið að þeir leggi minna upp úr að skila hagnaði en einkafyrirtæki, og Islandsbanki þurft því að kljást við óeðlilega samkeppni? Myndin sýnir að arðsemi eiginfjár hefur verið mun minni hjá ríkisbönkum en einkabönkum undanfarin ár. Hér verður reyndar að gæta þess að arðsemin hefur einkum verið lítil hjá Landsbankanum. Þjónustugjöld hans hafa löngum verið lægri en annars staðar. I könnun Arðsemi eiginfjár 19B7 1968 1969 1990 1991 ArÖsemi einkabanka var meiri en hjá ríkisbönkum 1987-1991. Athugið að hér er 350 milljóna króna aukaafskrift, sem Landsbankinn færði framhjá rekstrar- V^rcikningi árið 1989, færð á reksturinn. Verðlagsstofnunar í upphafi árs 1991 voru tekin tvö dæmi um bankakostnað einstaklings á einu ári. I báðum dæmum reyndist kostnaðurinn 6% lægri hjá Landsbankanum en Islandsbanka. Vafalaust hefur Landsbankinn með þessu haldið aftur af hækkunum annarra. I sumarhækkuðu þjónustugjöld bankans umtalsvert, þannig að nú er munurinn minni en áður. Fyrir tveimur áruin tók Islandsbanki um skeið forystu í vaxtaákvörðunum, og hækkaði vexti í samræmi við verðbólguvæntingar. Þá biðu ríkisbankamir átekta að undirlagi stjórnvalda. Pólitísk markmið um lága vexti vógu þarna þyngra en markmið um góða arðsemi. En að undanfömu hefur ekki mátt merkja mikinn mun á vaxtastefnu bankanna. Að öllu samanlögðu virðist sennilegt að fremur lítil breyting verði á rekstri ríkisbankanna,þóttþeirverði seldir. Sú spurning vaknar hvaða ástæða sé þá orðin fyrir ríkið að binda fé sitt í þessari starfsemi. ö Mismikill lífeyrir Flestir lífeyrissjóðir á almennum markaði lofa svipuðum lífeyri, en þeir laga loforðin að eignum ef misræmi er þar á milli. Avöxtun og kostnaður ráða því í raun lífeyrinum. A efri myndinni sést að ávöxtun sjóða minnkar eftir því sem lán til félaga aukast, en vextir þessara lána em jafnan undir markaðsvöxtum. Neðri myndin sýnir að ódýrara er að reka stóra sjóði en litla. Þetta er aðalástæða þess að nú er verið að sameina lífeyris- sjóði. Ekki er greinilegt samhengi milli ávöxtunar og stærðar sjóðanna. Unt lífeyrissjóði opinberra starfs- manna gegnir öðru máli en almennu sjóðina, ávöxtun þeirra skiptir félags- menn engu máli, því að launagreiðendur ábyrgjast lífeyrisgreiðslur. Ellilífeyris- réttindi opinberra starfsmanna aukast um 2% af dagvinnulaunum á ári, að vissu marki. Hjá almennum sjóðum er lofað 1,8% launa, en þetta erekki eini munur- inn. 139. tölublaði kom fram að lífeyris- rétt indi opinberra starfsmanna voru talin 70% meiri en réttindi SAL-sjóða. Þetta mat er frá þeim tíma að greitt var af dagvinnulaunum í flestalla lífeyrissjóði, en nú er farið að borga af öllum launum í sjóði á almennum markaði.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.