Vísbending


Vísbending - 17.03.1994, Blaðsíða 1

Vísbending - 17.03.1994, Blaðsíða 1
ISBENDING 17. mars 1994 V i k u rit um viðskipti og efnahagsmál 11. tbl. 12. árg. Eignarleiga 1993: Eignarleiga, hættuspil? Rekstureignarleigagekkekki sem skyldi í fyrra. Óll eignarleigu- fyrirtækin lögðu háar fjárhæðir í sjóði til þess að mæta kröfum sem kynnu að tapast og arðsemi eiginfjár var lítil í heildina. Afkoma fyrirtækjanna hefur ekki verið lakari frá árinu 1987, en það var fyrsta árið sem allar fjórar eignar- leigurnar störfuðu. Starfsemi eignarleiga Áður en lengra er haldið er rétt að kynna stuttlega starfsemi eignarleiga. Eignarleigur leigja fyrirtækjum eða einstaklingum áhöld, tæki, húsnæði eða aðrar eignir þannig að viðskipta- vinurinn eignast þær smám saman, eða hefur rétt til þess að kaupa þær að ákveðnum tíma liðnum á fyrir fram umsömdu verði. Einnig hafa eignar- leigufyrirtækin boðið upp á annars konar þjónustu, til dæmis bíla- og munalán, hreina útleigu á tækjum og skammtímafjármögnun. Það getur hlotist af því skattalegt hagræði fyrir viðskiptavini eignarleiga að skipta við þær fremur en að kaupa hlutinn sjálfir og afskrifa hann svo. Starfsemi sína hafa eignarleigur einkum fjármagnað með úlgáfu skulda- bréfa á innlendum markaði eða með erlendum lánum. Frá árinu 1987 hafa helstu eignarleigurn- ar verið fjórar: Fé- fang, sem er í eigu Fjárfestingarfélags Islands og fleiri aðila, Glitnir sem er dóttur- félag íslandsbanka, Lind sem er dóttur- félag Landsbankans og Lýsing sem er í eigu Landsbankans, B únaðarbankans, Sjóvár-Almennraog V átryggingarfélags Islands. Markaðs- hlutdeild Glitnis og Lindar er mest ef lilið er á leigu- samninga eingöngu, en hvort fyrirtæki hefur um 29% hlut. Lýsing hefur um 25% hlut og hefur aukið við sína hlutdeild því hún er eina eignarleigan þar sem heildarfj árhæðsamninga hækk- aði mikið á síðasta ári eða um rúmlega 40%. Fél'ang er með um 17% hlut en fyrirtækið hefur fært sig meira inn á aðra tegund fjármögnunar; bíla- og munalán. Aukþessarafyrirtækja starfa smærri fyrirtæki við eignarleigu á þröngu sviði. Miklarafskriftir Athygli vekur hjá öllum cignar- leigunum hve háar fjárhæðir eru lagðar lil hliðar til þess að mæta kröfum sem kunna að tapast. Lægsta fjárhæðin er hjá Lýsingu eða 20 milljónir króna en hæst er hún hjá Glitni eða nær 140 milljónir. Alls nemaniðurfærslurfyrir- tækjanna vegna þessa um 310 milljón- um króna eða helmingi heildartekna. Þessi fjárhæð gefur hugmynd um þrennt: Mikil áhættafylgirrekstrinum, þjónuslan er mjög dýr fyrir þá viðskiptavini sem standa í skilum og borga fyrir tap vegna hinna og reksturinn gæti verið mjög ábata- samur ef áhættu- mat væri betra. Hér er að ýmsu að hyggja. Vitað er að fyrirtækja- rekstur hefur gengið mun lakar undan- farináren nokkurn tíma áður. Hlið- stæð áföll hefur rnátt sjá í banka- og sjóðakerfinu, ekki bara hér á landi heldur einnig erlendis. Þar er því ekki hægt að segja að slæm afkoma eignar- leiga sé einstök á fjármálasviðinu. Engu að síður gefur niðurstaðan til kynna að menn hafi farið of geyst og tekið mjög rnikla áhættu. í ársreikn- ingum fyrirtækjanna kentur fram að stjórnendur eru vel meðvitaðir unt að umbóta sé þörf. Lind herti reglur um leigutaka og Glitnir hel'ur sett hámark á möguleg útlán til eins viðskiptaaðila. Lýsing hefur í langan tíma aðeins gert samninga við fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri. Gera má ráð fy rir því að í framtíðinni rnuni eignarleigurnar sýna meiri var- kárni við útlán og meta í því sambandi þá áhættu sem viðskiptavinirnir ráða við að taka. Minni viðskipti fram- undan? I ársskýrslum eignarleiganna eru ýmsar skýringar gefnar á erfiðum rekstri árið 1993. Má þar nefna almennar efnahagsþrengingar, taprekstur fyrir- tækja og minni fjárfestingu. Verðmæti fasteigna, tækja og annarra trygginga hefur rýrnað vegna minnkandi eftir- spurnar. I ljósi þessa eru forráðamenn eignarleiganna ekki bjartsýnir um þessar mundir. Þó hljóta spár um að botninum sé náð í efnahagslægðinni • Afkoma eignarleigu- fyrirtækjanna 1993 • Samningsstjórnun í opin- berum rekstri Nokkrar stærðir og kennitölur úr rekstri eignarleiga M.kr. Féfang Glitnir Lind Lýsing Afkoma 1993 23 -19 0 20 Afkoma 1992 2 4 26 24 Arðsemi eiginfjár 1993 8% -8% 0% 6% Arðsemi eiginfjár 1992 1% 2% 16% 8% Eiginfé 306 207 192 310 Heildareignir 2.226 3.818 3.221 3.667 Eiginfj árh 1 utfal 1 (BIS) 14,6% 9,7% 8,5% 14,5% Veltufjárhlutfall 1,3 1,9 1,5 1,2 Framlag í afskriftasj. á árinu 85 140 64 20 Heildar afskriftasjóður 137 259 81 104 Afskr.sj./upphæð samninga 6% 9% 3% 3% Afskriftasjóður/eiginfé 45% 125% 42% 33%

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.